Erlent

Senda ekki herlið til Írak

Pakistanar munu ekki senda herlið til Íraks tilkynnti upplýsingaráðherra Sheikh Rashid Ahmed í gær aðeins nokkrum klukkutímum eftir að forsætisráðherra landsins sagði slíka ákvörðun ráðast af vilja fólksins. Ahmed sagði á fréttamannafundi að Pakistan gæti ekki verið að senda herlið þegar önnur lönd væru að draga herlið sín frá landinu. Stjórnvöld í Pakistan hafa lengi verið óákveðin gagnvart því hvort senda eigi hermenn til Íraks eður ei, og hefur það valdið nokkrum deilum í landinu. Málið varð ennþá viðkvæmara eftir að tveir Pakistanskir gíslar voru teknir af lífi í Írak í síðustu viku. Hefur stjórnin verið gagnrýnd fyrir að gefa ekki út yfirlýsingu fyrr um að ekkert herlið verði sent til Írak og telja sumir að slíkt hefði getað bjargað mönnunum tveimur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×