Meistaramót Íslands í frjálsum 23. júlí 2004 00:01
77. Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fer fram á Laugardalsvelli um helgina. Stutt er í ólympíuleikana í Aþenu og þetta mót er einn síðasti möguleiki fyrir keppendur að ná ólympíulágmarkinu. Samkvæmt skráningu í gær mæta 192 keppendur frá 17 félögum til leiks en flestir þátttakendur koma frá FH eða 50 og næstflestir koma frá ÍR eða 34. Dagskrá mótsins hefst á laugardag kl. 11:00 með forkeppni í langstökki kvenna. Mótssetning er síðan kl. 13:50 og síðasta keppnisgreinin er kl. 15:45 á sunnudag í 4 x 400 metra boðhlaupi kvenna. Það er Ungmennafélagið Fjölnir í Grafarvogi sem er framkvæmdaraðili að Meistaramóti Íslands að þessu sinni. Fréttablaðið hitti að máli þá Guðmund Karlsson, þjálfara frjálsíþróttalandsliðsins, og Jón Arnar Magnússon, tugþrautarkappa en hann ásamt Þóreyju Eddu Elísdóttur hafa tryggt sér þátttökurétt á ólympíuleikunum. Guðmundur Karlsson er bjartsýnn á góðan árangur á Meistaramótinu: "Það væri mjög gaman að sjá fólk skila toppárangri núna um helgina og sjá að það sé stígandi hjá þeim keppendum sem komnir eru á ólympíuleikana eða eru nálægt því - maður vill auðvitað sjá toppárangur á Meistaramóti Íslands. Ég vildi gjarnan sjá fleiri en Jón Arnar og Þóreyju Eddu ná inn á ólympíuleikana og vonast eftir því að 2-3 keppendur bætist í ólympíuhópinn og það gæti gerst um helgina. Það blása ferskir vindar um þessar mundir og ég tel að það sé góð innistæða fyrir frekari bætingum," sagði Guðmundur Karlsson. Jón Arnar Magnússon er í fínu formi og hlakkar til komandi átaka: "Staðan á mér núna er hörkugóð og mér hefur gengið mjög vel að undanförnu. Ég stefni að sjálfsögðu að góðum árangri á Meistaramótinu en stefnan er auðvitað sett á að toppa á ólympíuleikunum." Hvert er markmið Jóns fyrir ólympíuleikana? "Ég vonast til að vera á meðal átta efstu og það tel ég alveg vera raunhæft markmið og það væri ekki verra ef maður næði kannski að gera góða atlögu að íslandsmetinu," sagði Jón Arnar Magnússon.
Íþróttir Mest lesið Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum Íslenski boltinn Handtekin fyrir að lemja kærastann en hann vildi ekki kæra Sport Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög Körfubolti Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Körfubolti Sveindís spilaði fyrsta leikinn fyrir Angel City Fótbolti Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Enski boltinn „Erfið og flókin staða“ Enski boltinn Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun Enski boltinn „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ Íslenski boltinn „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Handbolti Fleiri fréttir Ísland mátti þola stórt tap Ramsdale mættur til Newcastle Eggert Aron skoraði og lagði upp í stórsigri Brann „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ Davíð Snær og Guðlaugur Victor lögðu upp mörk „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Leclerc óvænt á ráspól í Ungverjalandi Ledecky lenti í vandræðum en hélt krúnunni Arnór og Ísak skoruðu í stórfurðulegum tíu marka leik Settu Íslandsmet í síðasta sundinu á HM í Singapúr Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ Handtekin fyrir að lemja kærastann en hann vildi ekki kæra „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ Sveindís spilaði fyrsta leikinn fyrir Angel City Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Dagskráin í dag: Þjóðhátíðarleikur í Eyjum og allskonar annað Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Sjá meira