Maggi Þóris enginn heimadómari 15. júlí 2004 00:01
Víkingum tókst ekki að landa heimasigri gegn Fram í fyrrakvöld þrátt fyrir stórskotahríð að marki Safamýrarliðsins í seinni hálfleik. Ástæðan var kannski sú að dómari leiksins var Keflavíkingurinn Magnús Þórisson en hann hefur ekki reynst heimaliðunum vel það sem af er í Landsbankadeild karla. Magnús var í Víkinni að dæma sinn sjötta leik í deildinni í sumar og heimaliðunum hefur aldrei tekist að vinna í þessum sex leikjum. Fjórum sinnum hafa leikirnir endað með jafntefli og tvisvar hafa útiliðin farið með sigur af hólmi. Magnús er einn af níu dómurum í deildinni en heimasigrar hafa orðið hjá öllum hinum átta dómurum deildarinnar. Hins vegar hafa útiliðin aldrei tekið með sér öll þrjú stigin þegar Garðar Örn Hinriksson og Jóhannes Valgeirsson sjá um dómgæslu. Það er þó ekki að sjá á tölfræðinni að Magnús dæmi á móti heimaliðunum en þau hafa fengið fjórum fleiri aukaspyrnur og einu spjaldi fleira en útiliðin í þessum leikjum. Þau lið sem hafa verið á heimavelli þegar Magnús hefur flautað eru Fram (tap), Grindavík (tap), ÍA, Víkingur, KA og ÍBV en leikir þeirra fjögurra síðastnefndu enduðu með jafntefli. Útiliðin voru fyrst til að skora í öllum sex leikjunum. Tölfræði Magnúsar Þórissonar í sumar: Leikir 6 Heimsigrar 0 Jafntefli 4 Útisigrar 2 Aukaspyrnur dæmdar 226 (37,7) Gul spjöld 27 (4,5) Rauð spjöld 2 Víti dæmd 1
Íslenski boltinn Mest lesið „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Fótbolti „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Sport Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Íslenski boltinn Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Fótbolti Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Enski boltinn Fleiri fréttir Gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Martin fékk stóra rós í hnappagatið Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum „Ég held að við séum á heimleið“ Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Segja Breka á leiðinni til Benfica Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Okeke farinn frá Álftanesi Børge Lund tekur við stórliði Kiel Thelma hetjan og Häcken á toppinn Sviss tryggði sér toppsætið eftir sigur á Kanada Hörð keppni milli Margrétar Láru og Mistar Bruno um Ronaldo: „Mikilvægt fyrir okkur að hann skoraði“ Kerfið hrundi á Wimbledon-mótinu vegna mikils hita Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi? Goðsögn í alpagreinum handtekin með „töfrasveppi“ í fórum sínum Ronaldinho tók skóna af hillunni eftir níu ár: „Við munum gera eitthvað sérstakt“ Stolt að fá að spila á móti frænku sinni Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Hollendingar hjálpa Frökkum við að halda Ólympíuleikana Ancelotti staðfesti að hann getur notað Neymar í fyrsta sinn í kvöld „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum Sjá meira