Sport

Shelbourne munu spila til sigurs

KR-ingar mæta írska liðinu Shelbourne í fyrri leik liðanna í forkeppni meistaradeildar Evrópu í kvöld. Shelbourne hefur verið yfirburðalið á Írlandi undanfarin ár og er sem stendur með örugga forystu í írsku úrvalsdeildinni þegar vel er liðið á tímabilið. Liðið kemur því hingað til lands með mikið sjálfstraust og í mjög góðu formi - algjörlega öfugt við það sem oft er í fyrstu leikjum íslenskra liða í Evrópukeppninni. Oftast eru þau að þá að mæta liðum sem nýkomin eru úr sumarfríi, enda ekki algengt að leikið sé í knattspyrnudeild í Evrópu yfir sumartímann líkt og hér á Íslandi. Shelbourne er í dag skipað eintómum atvinnumönnum og hefur liðið fengið til sín marga frambærilega knattspyrnumenn á síðustu árum, flesta frá heimalandinu Írlandi. Það er því ljóst að KR-ingar mega eiga von á tveimur hörkuleikjum. <\t>"Við erum með góða blöndu af ungum leikmönnum og þeim sem eru eldri og reyndari. Meðalaldurinn í liðinu er í kringum 29 ár og í Evrópukeppni skiptir reynslan alltaf miklu máli," sagði Pat Fenlon, framkvæmdastjóri Shelbourne, í samtali við Fréttablaðið í gær. "Það er ekki í eðli míns liðs að spila varnarleik og við förum í leikinn til að vinna hann. Við horfum til leiksins eins og um venjulegan deildarleik sé að ræða og við munum spila okkar bolta. Við erum miklu meira sóknarlið en varnarlið og ætlum að reyna að skora mark á útivelli," segir Fenlon. <\t>Leikurinn hefst kl. 20 í kvöld og fer fram á Laugardalsvelli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×