300. leikurinn hjá Birki í kvöld 13. október 2005 14:24
Birkir Kristinsson, fyrirliði og markvörður ÍBV í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, spilar sannkallaðan tímamótaleik á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum í kvöld því þessi 39 ára markvörður nær tveimur stórum áföngum á ferlinum þegar Eyjamenn taka á móti Grindvíkingum í 10.umferð. Það er ekki nóg með það að þetta sé 300. leikur Birkis í efstu deild því þessi leikur er einnig hans 100. fyrir Eyjaliðið í úrvalsdeild. Birkir verður í kvöld ennfremur fyrstur í sögunni til að spila 300 leiki í efstu deild á Íslandi sem er mikið afrek í deild þar sem aðeins eru spilaðir 18 leikir á hverju ári. Birkir hefur spilað alla leiki Eyjaliðsins síðan hann kom til félagsins fyrir tímabilið 1999. Birkir hefur í raun ekki misst úr leik frá árinu 1985 þegar tekin eru inn í myndina ár sem hann hefur spilað hér á landi en hann spilaði 198 leiki í röð áður en hann fór út í atvinnumennsku til Noregs 1996. Birkir hefur þegar því spilað 16 heil tímabil (18 leikir) og er þegar á góðri leið með því að bæta því sautjánda við í sumar. Leikjametið hans Gunnars Oddssonar, frá 2001, féll í fimmtu umferð og það verður að teljast ólíklegt að meti Birkis verði ógnað í framtíðinni. Það er ekki nóg með að það þurfi að spila að minnsta kosti 17 heil tímabil því Birkir er hvergi nærri hættur og ef marka má frammistöðuna í sumar á hann nóg eftir. Birkir er auk þess leikjahæsti íslenski landsliðsmarkvörðurinn frá upphafi með 73 landsleiki, 32 leikjum meira en næsti maður sem er Bjarni Sigurðsson með 41 leik. Árni Gautur Arason hefur spilað 37 landsleiki og á því enn 36 leiki í að jafna met Birkis. Birkir lék sinn fyrsta leik í efstu deild með liði KA á Akureyrarvelli 22. júní 1984 þegar Blikar komu í heimsókn. Breiðablik vann leikinn 1-0. Birkir spilaði einnig næsta deildarleik gegn Fram en varð síðan fyrir því að fótbrotna í bikarleik gegn Val og spilaði því ekki meira sumarið 1984. Birkir gekk til liðs við Skagamenn fyrir tímabilið 1985 og spilaði þar næstu þrjú ár allt þar til að hann fór til Fram. Birkir lék síðan með Fram í átta ár eða þar til að liðið féll sumarið 1995. Frá 1996 til 1998 var Birkir í atvinnumennsku með Brann í Noregi og Norrköping í Svíþjóð en snéri síðan til æskuslóðanna í Vestmannaeyjum 1999 þar sem hann hefur spilað síðan við mjög góðan orðstír. Hægt er að hlusta á viðtal við Birki úr eittfréttum Bylgjunnar með því að smella á hlekkinn sem fylgir fréttinni. Leikir Birkis með einstökum félögum í efstu deild: KA (1984) 2 leikir / 3 mörk á sig ÍA (1985-1987) 54/ 72 Fram (1988-1995) 144/ 188 ÍBV (1999- ) 99/ 104 Úrslit í leikjum Birkis í efstu deild: Leikir 299 (99 með ÍBV) Sigurleikir 146 (45) Jafnteflisleikir 55 (24) Tapleikir 97 (30) Leikjametið í efstu deild: Birkir Kristinsson 299 Gunnar Oddsson 294 Sigurður Björgvinsson 267 Andri Marteinsson 246 Júlíus Tryggvason 243 Þormóður Egilsson 239 Heimir Guðjónsson 233 Pétur Ormslev 231 Sigursteinn Gíslason 229 Guðmundur Steinsson 228
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Stefnir á heimsmet og segist aldrei hafa verið í betra formi Sport „Ég eiginlega bara trúi þessu ekki“ Fótbolti Ragnhildur endaði önnur eftir bráðabana Golf De Bruyne og Højlund skoruðu gegn Albertslausu Fiorentina Fótbolti Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll Íslenski boltinn Carvalho rændi stigi af Chelsea Fótbolti Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik Handbolti Fyrsta mark Ísaks í efstu deild Þýskalands Fótbolti Mark Sveindísar duggði skammt Fótbolti Fjórir markaskorarar er Bayern valtaði yfir Hamburger Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Manchester-slagur á sófasunnudegi Stefnir á heimsmet og segist aldrei hafa verið í betra formi Ragnhildur endaði önnur eftir bráðabana „Ég eiginlega bara trúi þessu ekki“ De Bruyne og Højlund skoruðu gegn Albertslausu Fiorentina Fjórir markaskorarar er Bayern valtaði yfir Hamburger Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik Mark Sveindísar duggði skammt Carvalho rændi stigi af Chelsea Endurkomusigur í ótrúlegum sjö marka leik Sævar hetjan í endurkomusigri Brann Arnór tryggði Norrköping stig í Íslendingaslag „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Sigur í fyrsta leik Andra í enska boltanum Grótta og Ægir upp í Lengjudeildina Nýi maðurinn hetja Newcastle og skrautlegt sjálfsmark Leeds Spurs í engum vandræðum með tíu Hamra Fyrsta mark Ísaks í efstu deild Þýskalands Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll Heimsmethafinn hélt út Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Enginn Orri er tíu Madrídingar unnu Real Sociedad Zubimendi með tvö í frábærum sigri Fagnar eins og Gyökeres og bjó til skýringu Reiður eftir að Yamal var látinn taka verkjalyf til að geta spilað Sneri við á HM og studdi keppinaut í mark Ekki keyptur til að gera það sama og Ederson Sjá meira