Fjöldamorðingi vísar á lík 3. júlí 2004 00:01
Lögregla í Frakklandi leitar að líkum tveggja fórnarlamba franska fjöldamorðingjans Michels Fourniret undir gömlu sveitasetri í Norður-Frakklandi. Fourniret, sem viðurkenndi í liðinni viku að hafa framið níu morð, benti lögreglu sjálfur á staðinn. Belgar eru felmtri slegnir yfir máli Fournirets enda aðeins rúm vika síðan réttað var yfir barnaníðingnum og morðingjanum Marc Dutroux í landinu. Í belgískum fjölmiðlum er talað um hinn franska Dutroux eða óvættinn frá Ardenne þegar Fournieret ber á góma. Hinn 62 ára gamli morðingi, sem flutti til Belgíu árið 1987, var handtekinn fyrir ári síðan eftir mislukkaða tilraun til ráns á 13 ára gamalli stúlku í Suður-Belgíu. Áður en Fourniret flutti til Belgíu hafði hann setið í fangelsi fyrir kynferðisafbrot á börnum í heimalandi sínu, Frakklandi. Í júní síðastliðnum kom hins vegar alvarleiki brota hans fyrst fyrir alvöru í ljós þegar kona hans, Monique Olivier, lýsti því yfir að maður hennar gæti hafa orðið að minnsta kosti níu manns að bana. Olivier upplýsti lögreglu um brot manns síns í kjölfar réttarhaldanna á Marc Dutroux. Hún á nú yfir höfði sér ákæru fyrir að hafa ekki hjálpað einstaklingi í hættu og gæti átt yfir höfði sér alvarlegri ákærur þegar fram líða stundir. Í síðustu viku játaði Fourniret að hafa orðið níu manns að bana, þar af sjö unglingsstúlkum eftir komu sína til Belgíu. Líkin sem nú er verið að leita gróf Fourniret árið 1989 undir sveitasetri sem hann sjálfur átti. Fourniret fór ásamt lögreglu á staðinn í dag eftir að hafa samþykkt að hjálpa til við að finna líkin.
Erlent Fréttir Mest lesið Öllum sem geri lítið úr morðinu „verði refsað“ Erlent Ósætti með nýtt grenndargámasvæði: „Þetta er bara mikið áhyggjuefni“ Innlent Í straffi fyrir skilaboð á vegg Kaffibarsins: „Þetta eru bara skemmdarverk“ Innlent Hefja frumkvæðisathugun á dauðsföllum tengdum bóluefnum Erlent Stærsti skjálfti síðan í maí fannst í byggð Innlent Áköf úrkoma hætti á skriðuföll á Ströndum Innlent Bregðast við árás á barnaníðing í Fellabæ Innlent Hinn 22 ára Tyler Robinson grunaður um morðið á Kirk Erlent Ákærður fyrir tilraun til manndráps í Úlfarsárdal Innlent Þurfi að jafna réttindi upp á við en ekki skerða hjá einum hóp Innlent Fleiri fréttir Öllum sem geri lítið úr morðinu „verði refsað“ Hefja frumkvæðisathugun á dauðsföllum tengdum bóluefnum Allsherjarþingið ályktar um palestínskt ríki NATO eflir varnir í austri Erna Solberg hættir Hinn 22 ára Tyler Robinson grunaður um morðið á Kirk Trump segist nokkuð viss um að grunaður morðingi hafi verið handsamaður Bandaríkjastjórn fargar getnaðarvörnum fyrir 9,7 milljónir dala Stjórnvöld höfða mál á hendur Uber vegna mismununar gegn fötluðum Alríkislögreglan birtir myndskeið af morðingjanum Dæmdur í tuttugu og sjö ára fangelsi fyrir valdaránstilraun Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Breskur sendiherra rekinn vegna tengsla við Epstein Hver var Charlie Kirk? Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Neyðarfundur verði boðaður í Öryggisráði SÞ Vill draga Netanyahu fyrir dóm vegna árásarinnar í Doha Trump segir öfga-vinstrið bera ábyrgð á morðinu Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Íslendingur fastur í Nepal: „Við erum búin að halda okkur inni allan tímann“ Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Boða hertar aðgerðir gegn afbrotaunglingum Pólland ekki verið nær stríði frá því í seinni heimsstyrjöldinni Herinn skakkar leikinn í Katmandú Europol og Bandaríkin lýsa eftir úkraínskum tölvuþrjót Hyggjast bólusetja kóalabirni gegn klamydíu Rússneskir drónar skotnir niður í lofthelgi Póllands Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Efast um að Bandaríkin leyfi sjálfstætt Grænland Taka tolla Trumps í flýtimeðferð Sjá meira