Jakob Jóhann setti Íslandsmet 14. ágúst 2004 00:01
Jakob Jóhann Sveinsson fór á kostum í Aþenu í gær er hann sigraði í sínum riðli í 100 metra bringusundinu og setti um leið nýtt Íslandsmet en hann átti sjálfur það gamla. Jakob endaði í 23. sæti af 60 keppendum og synti á 1:02.97 en gamla metið hans var 1:03.1. Þrátt fyrir þetta glæsilega sund Jakobs þá dugði það honum ekki til þess að komast áfram en hann var 9/10 úr sekúndu frá því að komast áfram. Hann var ekkert sérstaklega kátur er blaðamaður Fréttablaðsins hitti hann skömmu eftir sundið. "Ég vissi að þetta yrði frekar hægur riðill og ég var ekki nógu ánægður með að lenda á fjórðu brautinni því mig langaði að hafa sterkari menn fyrir framan mig en ég varð að synda alveg sjálfur," sagði Jakob frekar fúll en hann ætlaði sér stærri hluti. Það að vinna riðilinn var lítil sárabót. "Það breytir engu. Ég hef oft unnið riðla á þessum stórmótum en það færir manni ekki neitt. Ég er líka mjög ósáttur við tímann því ég vildi synda hraðar. Ég hefði viljað vera 1:02,00 mínútur. Miðað við allt sem ég er búinn að gera þá hélt ég að það yrði ekkert mál og því er ég frekar fúll. Þessir kallar eru ekkert búnir að vera að synda betur en ég." Jakob á eitt sund eftir en hann tekur einnig þátt í 200 metra bringusundi. Þar ætlar hann að gera betur. "Ég er í hröðum riðli í 200 metrunum og það verður miklu betra. Ég verð bara að spýta í lófana og koma tvíefldur í það sund," sagði Jakob Jóhann Sveinsson.
Íþróttir Mest lesið „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Fótbolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Sport Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Enski boltinn Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Fótbolti Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Martin fékk stóra rós í hnappagatið Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum „Ég held að við séum á heimleið“ Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Segja Breka á leiðinni til Benfica Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Okeke farinn frá Álftanesi Børge Lund tekur við stórliði Kiel Thelma hetjan og Häcken á toppinn Sviss tryggði sér toppsætið eftir sigur á Kanada Hörð keppni milli Margrétar Láru og Mistar Bruno um Ronaldo: „Mikilvægt fyrir okkur að hann skoraði“ Kerfið hrundi á Wimbledon-mótinu vegna mikils hita Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi? Goðsögn í alpagreinum handtekin með „töfrasveppi“ í fórum sínum Ronaldinho tók skóna af hillunni eftir níu ár: „Við munum gera eitthvað sérstakt“ Stolt að fá að spila á móti frænku sinni Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Hollendingar hjálpa Frökkum við að halda Ólympíuleikana Ancelotti staðfesti að hann getur notað Neymar í fyrsta sinn í kvöld „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum Sjá meira