Erlent

Lokaðir inni í brennandi verslun

Eigandi brennandi stórmarkaðar, í Paragvæ, skipaði öryggisvörðum að loka öllum dyrum, til þess að viðskiptavinir kæmust ekki út án þess að borga. Um 300 manns fórust. Stórmarkaðurinn er einn af hinum stærstu sinnar tegundar, sem er höfuðborg Suður-Ameríkuríkisins Paragvæ. Eldurinn kom upp í gær, eftir mikla gassprengingu, í matvörudeildinni. Skelfing greip um sig meðal viðskiptavina, sem hlupu af stað til þess að forða sér. Þá heyrðist hinsvegar kölluð skipun til öryggisvarða um að loka öllum dyrum. Héðan fer enginn út án þess að borga, sagði sá sem skipaði fyrir. Eldurinn breiddist út með ógnarhraða og skelfingin var alger. Slökkviliðið kom á staðinn, en öryggisverðirnir virðast hafa verið staðráðnir í að hlýða yfirboðara sínum. Einn slökkviliðsmannanna skýrði frá því að öryggisverðir hefðu skotið á þá, þegar þeir reyndu að brjótast inn í markaðinn, til þess að hleypa fólkinu út. Afleiðingin var sú að 300 manns brunnu til bana og 300 til viðbótar, brenndust, mismunandi alvarlega. Eigandi stórmarkaðarins hefur verið handtekinn, fyrir að skipa öryggisvörðum sínum að loka fólkið inni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×