Erlent

Vekur heimsathygli

Allir stærstu vestrænu fjölmiðlar heims fjalla í dag um tilboð íslenskra stjórnvalda um dvalarleyfi til handa Fischer. Til að mynda hafa fréttastofur BBC, ABC, CNBC, CNN, Reuters, írskir fjölmiðlar ásamt fleirum fjallað nokkuð ítarlega um málið í morgun. BBC segir um málið að stuðningsmenn hans og forsvarsmenn samtakanna Free Bobby Fischer hafi vart ráðið sér fyrir kæti þegar fregnirnar bárust, og að Fischer hafi sagt í viðtali við Stöð 2 fyrr í vikunni að hann vonaðist til að fá pólitískt hæli á hér á landi. Nokkrar efasemdir koma fram hjá flestum miðlanna um að það sé mögulegt fyrir Fischer að komast til Íslands, þrátt fyrir boðið. Þó greinir m.a. Reuters frá því að japönsk innflytjendayfirvöld útiloki ekki þann möguleika að Fischer fái að fara til Íslands, geti hann sýnt gilt vegabréf. Hinsvegar sé venjan sú að menn séu sendir til þess lands sem þeir hafa ríkisborgararrétt í og Fischer sé ekki með tilboð um ríkisborgararrétt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×