Landamæri ESB að Írak og Íran? 17. desember 2004 00:01
Landamæri Evrópusambandsins munu liggja að Írak, Íran og Sýrlandi ljúki aðildarviðræðum við Tyrki með því að þeir gangi inn í sambandið. Ýmis ljón eru þó í veginum og efasemdir báðum megin borðsins. Ýmis skilyrði voru sett sem Tyrkir verða að uppfylla áður en viðræður geta hafist. Þau snúa ekki síst að eynni Kýpur. Nokkuð óljóst skilyrði má skilja sem svo að Tyrkir viðurkenni stjórnvöld á gríska hluta eyjarinnar en síðdegis áréttaði Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, þá skoðun sína að engin viðurkenning fælist í yfirlýsingu sem undirrituð var. Þó að Kýpur sé það sem stendur í hálsinum á tyrkneskum stjórnmálamönnum og almenningi er ljóst að það er ekki erfiðasti bitinn. Tyrkjum stendur til að mynda líklega ekki til boða full aðild að innri markaðinum hvað frjálst flæði vinnuafls ræðir, þar sem margar Evrópuþjóðir óttast flóðbylgju ódýrs vinnuafls. Að auki ríkja efasemdir eða fordómar gagnvart aðild Tyrkja víða í álfunni þar sem litið er svo á að Tyrkland tilheyri alls ekki Evrópu, hvorki landfræðilega né menningarlega. Tyrkland er líka stórt, fátækt múslímaríki, nokkuð sem vekur ugg í brjósti sumra evrópskra stjórnmálamanna. Stuðningsmenn aðildar Tyrklands, einkum Bretar og Þjóðverjar, segja hins vegar rétt að bjóða Tyrki velkomna í fjölskylduna; það sé tákn umburðarlyndis og sendi múslímaríkjum merki um vinsemd í vestri.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Fleiri fréttir Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Sjá meira