Hörð skilyrði fyrir viðræðum 17. desember 2004 00:01
Hörð skilyrði eru fyrir viðræðum Evrópusambandsins við Tyrki um aðild. Tyrkir eru fúlir og enn er þjarkað um skilyrðin. Innan sambandsins er heldur ekki eining um hugsanlega aðild Tyrklands. Tyrkir verða að viðurkenna ríkisstjórn Kýpur-Grikkja í Nikósíu en á Norður-Kýpur ráða Kýpur-Tyrkir ríkjum. Þetta er meginskilyrðið fyrir aðildarviðræðum við Tyrki og stór biti fyrir þá að kyngja. Uppfylli þeir þetta skilyrði hefjast viðræður í október á næsta ári. Tyrkir vilja ganga í sambandið en höfðu fyrirfram lýst því yfir að þeir gætu ekki sætt sig við ýmis skilyrði sem rædd voru þar sem þau væru ósanngjörn og niðurlægjandi. Að loknum fundi með Jan Peter Beklenende, forsætisráðherra Hollands, í gær kvaðst Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, nokkuð bjartsýnn en í morgun hafa erlendar fréttastofur haft eftir ónafngreindum tyrkneskum embættismönnum að Tyrkir séu síður en svo sáttir við þetta skilyrði. Ef að verður er einnig hugsanlegt að hömlur verði settar á frjálst flæði verkafólks frá Tyrklandi, enda óttast ráðamenn í mörgum Evrópusambandsríkjum flóðbylgju ódýrs vinnuafls frá Tyrklandi. Ekki ríkir heldur einhugur um hvort Tyrkland eigi heima í Evrópusambandinu. Bretar og Þjóðverjar eru talsmenn aðildar en önnur ríki eru sum hver á því að Tyrkland sé of stórt, of fjölmennt, of fátækt og of menningarlega ólíkt sambandsríkjunum til að falla inn í hópinn. Bent er á að það sé múslímaríki og verði það hluti Evrópusambandsins eigi sambandið landamæri að Sýrlandi, Írak og Íran. Stuðningsmenn aðildar segja á móti að aðild Tyrklands sé til þess fallinn að breiða út stöðugleika og öryggi í heimshluta þar sem ekki fer mikið fyrir slíku. Það sýni einnig fordómaleysi og geti stuðlað að betri samskiptum við múslímaríki. Króötum var í morgun einnig boðið að ganga til viðræðna við Evrópusambandið um aðild. Viðræðurnar eiga að hefjast í apríl á næsta ári, að því tilskildu að Króatar starfi með stríðsglæpadómstólnum í Haag. Búlgaríu og Rúmeníu verður einnig boðið til viðræðna, með það að markmiði að löndin gangi í sambandið árið 2007.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Sjá meira