Rumsfeld rekinn? 17. desember 2004 00:01
Donald Rumsfeld verður ekki langlífur í embætti, fái félagar hans í Repúblíkanaflokknum einhverju ráðið. Bæði þingmenn og þungavigtarmenn í flokknum gagnrýna Rumsfeld og segja hann ótrúverðugan. Í þessu felst óbein gagnrýni á stefnu og störf Bush forseta. Stutt er síðan George Bush Bandaríkjaforseti ákvað að Rumsfeld héldi áfram sem varnarmálaráðherra en eftir kosningar var talið að hann væri meðal þeirra sem yrði skipt út. En nú virðist óvíst að Bush takist að halda í Rumsfeld þar sem þungavigtarþingmenn úr röðum Repúblíkana vilja að hann verði rekinn og gagnrýna hann fyrir að hlusta ekki nægilega vel á ráðgjafa sína úr röðum hermanna. Gagnrýni á Rumsfeld hefur vaxið mjög undanfarið, ekki síst í kjölfar svars hann við umkvörtunum bandarísks hermanns í Írak þegar Rumsfeld var þar í heimsókn nýlega. Þegar hermaðurinn kvartaði undan skorti á vopnum og farartækjum svaraði Rumsfeld: „Maður fer í stríð með þann her sem maður hefur.“ Íhaldsmenn hafa gert aðför að Rumsfeld undanfarið, saka hann um að misreikna sig og vera ótrúverðugur. Meðal gagnrýnendanna eru þingmennirnir John McCain og Trent Lott og hershöfðinginn fyrrverandi, Norman Schwarzkopf. Þeir segja ótækt að hann hafi ekki fjölgað hermönnum í Írak fyrir löngu og að með öllu sé ólíðandi að hermenn vanti vopn. Fréttaskýrendur segja að í þessu felist um leið breyting á viðhorfi ráðandi repúblíkana gagnvart stríðinu í Írak. Fram til þessa hafa þeir stutt stefnu Bush forseta en nú eru sagðar komnar upp verulegar efasemdir um framgang mála í landinu. Þó að McCain sé þekktur fyrir að fara sínu fram eru aðrir gagnrýnendur á meðal tryggustu fylgismanna Bush, sem er túlkað sem svo að efasemdirnar séu ekki bundnar við nokkra þverhausa.
Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Fleiri fréttir Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Sjá meira