Ástandið hvergi jafnslæmt 4. júlí 2004 00:01
Í 21 ár hefur borgarastyrjöld verið ríkjandi í Súdan, á milli arabískra múslima í norðurhluta landsins, sem einnig eru í meirihluta ríkisstjórnar landsins og svartra afríkubúa í suðurhlutanum, sem eru að megninu til andatrúar eða kristnir. Á þessum tíma hafa rúmlega tvær milljónir manna látið lífið, meirihlutinn úr hungri. Alþjóðlegir eftirlitsmenn telja nú að ástandið í Darfur-héraði, sem er í vesturhluta Súdan sé slíkt að hvergi í heiminum búi íbúar við jafnmikla ógn. Talið er að um milljón manna hafi flúið til flóttamannabúða, líf hundruð þúsunda er ógnað vegna hungurs og um 30.000 manns hafa látið lífið á síðustu 16 mánuðum vegna árása arabísku herflokkana. Þrátt fyrir samkomulag um vopnahlé eru vopnuð átök enn daglegt brauð í Darfur-héraði. Jan Egeland, fulltrúi neyðaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna, segir í samtali við BBC að hann hafi upplýsingar um sprengingar í þorpum í norðurhluta Darfur og að nýlega hafi fjórir vörubílar neyðaraðstoðarinnar hafi verið rændir. Bandarísk stjórnvöld hafa hótað að taka upp refsiaðgerðir gegn Súdan ef ekki tekst að stöðva átökin og eru vangaveltur uppi um frekari afskipti Bandaríkjamanna. Ekki síst eftir að Colin Powell heimsótti héraðið í lok síðustu viku, en svo háttsettur Bandaríkjamaður hafði ekki heimsótt landið í 25 ár. Samkvæmt kröfu Bandaríkjamanna er nú komið uppkast af ályktun Sameinuðu þjóðanna sem bannar stjórninni að vopna eða þjálfa arabísku herflokkana. Einnig er þar krafa um að leiðtogar herflokkanna verði settir í farbann og er stjórninni í Súdan gefinn 30 daga frestur til að stöðva alla starfsemi herflokkanna. Stjórnvöld í Súdan hafa samþykkt að fjarlægja allar hindranir sem standa í vegi mannúðarsamtaka, en þau höfðu áður ákveðið að einungis súdönsk mannúðarsamtök mættu ferðast um átakasvæðið. Mannréttindasamtök segjast eiga erfitt með að taka loforð ríkisstjórnarinnar trúanleg, þar sem hún styðji við bakið á arabísku herflokkunum en súdönsk stjórnvöld þvertaka fyrir það. Súdan er enn á lista Bandaríkjamanna yfir þau lönd sem styðja hryðjuverk og eru diplómatísk samskipti ríkjanna tveggja mjög lítil.
Erlent Fréttir Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Fleiri fréttir Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Sjá meira