Viðskipti innlent
Ísland er grænasta landið fyrir netþjónabú Ísland er efst á lista yfir staði sem taldir eru þeir „grænustu" hvað varðar staðsetningar og rekstur á netþjónabúum og gagnasetrum. Listinn var tekinn saman af Ronald Bowman forstjóra Tishman Technologies. Viðskipti innlent 13.10.2009 09:23
Erlendir minnka ríkisvíxlaeignir en auka við í ríkisbréfum Erlendir aðilar hafa minnkað ríkisvíxlaeignir sínar en á móti hafa ríkisbréfaeignir þeirra aukist nokkuð. Þetta kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans Viðskipti innlent 13.10.2009 08:07
Dagvöruverslun dróst saman um 4,4% í september Velta í dagvöruverslun dróst saman um 4,3% á föstu verðlagi í september miðað við sama mánuð í fyrra en jókst um 13,3% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu dagvöruverslana í september 4,4% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hækkaði um 18,4% á síðastliðnum 12 mánuðum. Viðskipti innlent 13.10.2009 07:58
Kaupþing lánaði NIBC tugi milljarða vegna bandarískra undirmálslána Kaupþing lánaði eigendum hollenska bankans NIBC tugi milljarða króna til að hreinsa bankann af bandarískum undirmálslánum en heimtur af slíkum lánum hafa verið um tvö prósent. Undirmálslánin fóru inn félag í eigu þessara aðila sem skráð var á Cayman eyjum. Viðskipti innlent 12.10.2009 18:30
Um 90% fást upp í Icesave skuldbindingarnar Allt bendir til þess að níutíu prósent fáist upp í Icesaveskuldbindingar Íslands miðað við uppgjör milli gamla og nýja bankans sem gert var um helgina. Um 75 milljarðar króna falla þá á íslensku þjóðina auk vaxta. Viðskipti innlent 12.10.2009 18:21
Rólegur dagur í kauphöllinni Dagurinn var mjög rólegur í kauphöllinni og er OMX16 úrvalsvísitalan nær óbreytt frá því á föstudag í rúmum 810 stigum. Viðskipti innlent 12.10.2009 15:51
Havila Shipping lýkur kaupum á íslenskum skuldabréfum Norska skipafélagið Havila Shipping hefur lokið kaupum á íslenskum skuldabréfum sem voru gefin út 2005 og áttu að koma til borgunar á næsta ári. Skuldabréfin voru skráð í kauphöllinni og námu 250 milljónum norskra kr. eða ríflega 5 milljörðum kr. Viðskipti innlent 12.10.2009 15:30
VÍ: Óskynsamlegt að kollsteypa lífeyrissjóðakerfinu Viðskiptaráð Íslands (VÍ) segir að það væri óskynsamlegt að leggja í illa ígrundaðar kollsteypur á lífeyrissjóðakerfinu þrátt fyrir þær miklu þrengingar sem nú standa yfir. Engu að síður er mjög mikilvægt að kanna alla fleti þess að lífeyrissjóðirnir verði nýttir til að efla viðnám hagkerfisins, án þess að langtímahagsmunum þjóðarinnar sé ógnað. Viðskipti innlent 12.10.2009 12:37
Raunvirði eigna lífeyrissjóðann minnkaði um tæp 16% Í ágústlok hafði hrein eign lífeyrissjóðanna rýrnað um 4,7% að nafnvirði frá sama mánuði árið 2008. Sé hins vegar tekið mið af verðbólgu minnkaði hrein eign að raunvirði um tæplega 16% á tímabilinu. Viðskipti innlent 12.10.2009 12:18
Atvinnuleysi var 7,2% í september Skráð atvinnuleysi í september 2009 var 7,2% eða að meðaltali 12.145 manns og minnkar atvinnuleysi um 9,3% að meðaltali frá ágúst eða um 1.242 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,3%, eða 2.229 manns. Viðskipti innlent 12.10.2009 12:07
Spennandi að sjá þátttökuna í ríkisvíxaútboði á morgun Í vikunni verður haldið útboð á ríkisvíxlum og líklega einnig á ríkisbréfum. Víxlaútboðið heldur Seðlabankinn á morgun, þriðjudag, kl. 11 og verða boðnir út 4ra mánaða víxlar. Greining Íslandsbanka segir spennandi að sjá hvort innlendir aðilar taki þátt í víxlaútboðinu af jafnmiklum krafti og raunin varð í september. Viðskipti innlent 12.10.2009 12:02
Unnið úr 1.700 tonnum af síld hjá Síldarvinnslunni Um helgina hefur síldarvinnsla hjá Síldarvinnslunni hf. í Fjarðabyggð verið í fullum gangi en Bjarni Ólafsson kom með 500 tonn til vinnslu í gærmorgun. Háberg GK og Börkur NK komu báðir með 600 tonn. Samtals er því verið að vinna 1.700 tonn af síld sem veiddist í nót í síldarsmugunni en um sólarhringsstím er á miðin. Viðskipti innlent 12.10.2009 11:27
Útflutningsráð skrifar undir Global Compact Útflutningsráð nú skrifað undir Global Compact samkomulag Sameinuðu þjóðanna. Með því að skrifa undir samkomulagið skuldbindur Útflutningsráð sig til að taka þátt í umræðunni um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja á sínum vettvangi ásamt því að hvetja þau til þess að tileinka sér samfélagslega ábyrgð í starfsháttum sínum. Viðskipti innlent 12.10.2009 09:49
Töluverður áhugi á útboði Lánasjóðs sveitarfélaga Töluverður áhugi var á skuldabréfaútboði Lánasjóðs sveitarfélaganna fyrir helgina. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 425.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 5,45%. Viðskipti innlent 12.10.2009 09:19
Eignir lífeyrissjóðanna jukust um tæpa 46 milljarða í ágúst Hrein eign lífeyrissjóðanna var 1.779 milljarðar kr. í lok ágúst sl. og hækkaði um 45,9 milljarða kr. í mánuðinum. Sé miðað við ágúst 2008 hefur hrein eign hins vegar lækkað um 44,6 milljarða kr. eða 2,4 %. Viðskipti innlent 12.10.2009 08:52
Nauðungarsölur fasteigna í borginni fleiri en allt árið í fyrra Í lok september höfðu 166 fasteignir verið seldar nauðungarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík á árinu 2009. Til samanburðar voru þessar sölu 161 talsins allt árið í fyrra. Viðskipti innlent 12.10.2009 08:37
NRK: Íslendingar vilja helst fjármagn frá Norðmönnum Í nýrri könnun sem gerð var fyrir hóp af stjórnendum Sparebankgruppen 1 í Noregi kemur fram að Íslendingar vilja helst að norrænir fjárfestir komi til landsins og aðstoði við uppbyggingu Íslands í kreppuni. Og af norrænum aðilum eru Norðmenn í sérstöku uppáhaldi. Viðskipti innlent 12.10.2009 08:25
Góður hagnaður hjá Icelandair í ágúst Rekstur Icelandair Group samstæðunnar gekk vel í ágúst. Samkvæmt óendurskoðuðu uppgjöri var hagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta 0,5 milljörðum hærri en í ágúst 2008 eða 3,1 milljarður króna. Viðskipti innlent 12.10.2009 08:03
Meint sýndarviðskipti með hlutabréf í Kaupþingi í rannsókn Meint sýndarviðskipti með hlutabréf í Kaupþingi upp á hátt í 40 milljarða króna eru í rannsókn hjá opinberum aðilum. Viðskipti Gertner-fjölskyldunnar bresku og Katarbúans Al-Thani eru stærstu málin en fjölmargir einstaklingar liggja undir grun. Viðskipti innlent 11.10.2009 18:32
19 starfsmönnum Mílu sagt upp 19 starfsmönnum verður sagt upp hjá Mílu ehf. en fyrirtækið rekur fjarskiptanet hér á landi og er í eigu Skipta. Í kjölfar niðurskurðar í framkvæmdum í byggingariðnaði þarf fyrirtækið að gera breytingar á starfsemi sinni og eru uppsagnirnar liður í þeim breytingum. Viðskipti innlent 11.10.2009 13:34
Seðlabankinn þarf ekki spilapeninga Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, tekur undir með Má Guðmundssyni, seðlabankastjóri, sem segir að íslenska ríkið þurfi ekki nauðsynlega á öllum þeim erlendu lánum að halda sem eru í boði. Ólafur segir ennfremur að Seðlabankinn þurfi ekki á spilapeningum að halda. Viðskipti innlent 11.10.2009 11:28
Sigurður Einarsson með stöðu grunaðs manns Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, er með réttarstöðu grunaðs manns í rannsókn sérstaks saksóknara á kaupum Katarbúans Al-Thani á rúmlega fimm prósent hlut í bankanum. Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag. Viðskipti innlent 11.10.2009 07:55
Seðlabankastjóri segir þörfina á lánum hugsanlega ofmetna Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að íslenska ríkið þurfi ekki nauðsynlega á öllum þeim erlendu lánum að halda sem eru í boði. Það myndi lækka skuldastöðu ríkisins um hundruð milljarða og minnka vaxtakostnað verulega ef einungis hluti lánanna yrði þeginn. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. Viðskipti innlent 10.10.2009 19:56
Kauphallargögnin í rannsókn Fjármálaeftirlitið fékk í gær gögn Existu er varða birtingu upplýsinga í Kauphöll. Viðskipti innlent 10.10.2009 07:15
Kaupás kannar bótarétt sinn Kaupás kannar nú hugsanlegan skaðabótarétt sinn gegn Högum vegna brota síðarnefnda félagsins á samkeppnislögum. Matsmenn, sem meta eiga hugsanlegt tjón Kaupáss vegna brotanna, voru kvaddir til í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Viðskipti innlent 10.10.2009 06:45
Actavis: Borgar 55 milljarða í vexti Lyfjafyrirtækið Actavis tapaði þrjátíu og fjórum milljörðum króna í fyrra og greiddi fimmtíu og fimm milljarða króna í vexti. Félagið er skuldasettasta fyrirtæki landsins og skuldaði tæpa þúsund milljarða í árslok 2008. Hugmyndir eru um að skrá félagið í kauphöll að nýju. Viðskipti innlent 9.10.2009 18:33
Leiðrétting Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld, að Áslaug Árnadóttir, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu, hefði setið í stjórn Nýja Landsbankans, dagana eftir hrun. Áslaug vill koma því á framfæri að hún vék úr stjórninni 8. Október í fyrra, daginn eftir að hún var skipuð í hana, Því hafi hún ekki komið nálægt ákvörðunum um að greiða tugi milljarða króna inn í peningamarkaðssjóði Landsbankans. Viðskipti innlent 9.10.2009 16:47
Grænn dagur í kauphöllinni Það var grænt á öllum tölum í kauphöllinni í dag. Úrvalsvísitalan OMX16 hækkaði um tæpt prósent og stendur í 810 stigum. Viðskipti innlent 9.10.2009 15:46
Fjármálaeftirlitið heimsótti Exista í dag Fulltrúar Fjármálaeftirlitsins mættu í höfuðstöðvar Exista í dag og óskuðu eftir aðgangi að gögnum. Talsmaður Exista staðfestir þetta við fréttastofu og segir að óskað hafi verið eftir gögnum er varða birtingu upplýsinga í Kauphöll, en Exista er skráður skuldabréfaútgefandi. „Þessi gögn voru góðfúslega veitt enda mun Exista verða FME innan handar í þeirri athugun sem nú fer fram,“ segir ennfremur. Viðskipti innlent 9.10.2009 15:45
Hafnarfjörður tapaði 347 milljónum fyrrihluta ársins Milliuppgjör Hafnarfjarðarbæjar fyrir fyrstu 6 mánuði ársins hefur verið lagt fram en samkvæmt niðurstöðutölum þess eru rekstrartekjur í góðu samræmi við áætlun. Afkoma rekstrarreiknings er neikvæð um 138 milljónir í samstæðu en um liðlega 347 milljónir í A-hluta, þe. aðalsjóði og eignasjóði. Viðskipti innlent 9.10.2009 15:22