Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Atli Ísleifsson skrifar 1. janúar 2026 10:08 Einstaklingar leiddu þann mikla vöxt sem var milli ára í nýskráningum nýrra fólksbíla. Vísir/Vilhelm Alls voru 14.556 nýir fólksbílar skráðir á nýliðnu ári sem jafngildir 42 prósenta aukningu milli ára. Aukningin var að stórum hluta drifin áfram af nýskráningum einstaklinga en auk þess jukust nýskráningar hjá ökutækjaleigum og öðrum fyrirtækjum milli ára eftir rólegt ár 2024. Kia var mest skráða einstaka bílategundin.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bílgreinasambandinu. Þar segir að framan af ári hafi nýskráningar fólksbíla verið í hefðbundnum takti miðað við meðaltal síðastliðinna ára. „Á síðustu tveimur mánuðum ársins, nóvember og desember, voru nýskráningar töluvert umfram það sem tíðkast að jafnaði á þeim árstíma. Líkleg skýring kann að felast í viðbrögðum heimila og fyrirtækja við annars vegar breytingum á vörugjaldi af ökutækjum, og hins vegar lækkun rafbílastyrks um áramótin. Má gera ráð fyrir að þessar tvær breytingar hafi leitt til að hluti bílakaupa hafi færst fram í tímann, þannig að viðskiptin eigi sér stað áður en breytingarnar taka gildi. Það gæti aftur leitt til samdráttar í nýskráningum á næsta ári. Hlutfall rafmagns- og tengiltvinnbíla náði á ný fyrra hármarki eftir bakslag árið 2024. Rafmagn var jafnframt algengasti orkugjafinn meðal nýrra fólksbíla á árinu 2025 með 41% hlutdeild. Þar á eftir komu tvinnbílar (e. hybrid) og síðan tengiltvinnbílar (e. PHEV). Einstaklingar leiddu þann mikla vöxt sem var milli ára í nýskráningum nýrra fólksbíla. Alls nýskráðu einstaklingar 6.684 nýja fólksbíla sem er um 75% aukning milli ára. Þessi mikla hækkun helgast að miklu leyti af óvenjufáum nýskráningum einstaklinga árið á undan. Nýskráningum einstaklinga fjölgaði þegar líða tók á árið. Stærstu mánuðir ársins í tilviki einstaklinga reyndust vera nóvember og desember, sem er óvenjulegt miðað við árstíðasveiflur síðustu ára. Líkt og áður hefur verið nefnt er líklegt að sú þróun endurspegli viðbrögð heimilanna við breytingum á vörugjaldi af ökutækjum og rafbílastyrk sem tóku gildi um áramótin. Sé litið til orkugjafa má sjá að rafmagn var vinsælasti orkugjafinn og voru 2 af hverjum 3 nýjum fólksbílum sem einstaklingar nýskráðu á árinu 2025 rafmagnsbílar. Aðeins árið 2023 var hlutfallið hærra, en það var jafnframt síðasta árið sem VSK-ívilnun var í gildi fyrir rafmagnsbíla, en árið 2024 tók rafbílastyrkur við af því fyrirkomulagi,“ segir í tilkynningunni. Kia mest skráður Ennfremur segir að Kia hafi verið mest skráða einstaka bíltegundin á árinu 2025, með samanlagt 2.004 nýja fólksbíla eða sem nemi 13,8 prósenta hlutdeild. „Næst mest skráða bíltegundin á árinu var Tesla með 1.901 nýja fólksbíla eða 13,1% hlutdeild. Þar á eftir var Toyota með 1.737 nýja fólksbíla eða sem nemur 11,9% af hlutdeild.“
Bílar Vistvænir bílar Fréttir ársins 2025 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira