Spennandi að sjá þátttökuna í ríkisvíxaútboði á morgun 12. október 2009 12:02
Í vikunni verður haldið útboð á ríkisvíxlum og líklega einnig á ríkisbréfum. Víxlaútboðið heldur Seðlabankinn á morgun, þriðjudag, kl. 11 og verða boðnir út 4ra mánaða víxlar. Greining Íslandsbanka segir spennandi að sjá hvort innlendir aðilar taki þátt í víxlaútboðinu af jafnmiklum krafti og raunin varð í september. Í Morgunkorni greiningarinnar segir að Íí útboði septembermánaðar seldi Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs víxla fyrir 8,4 milljarða kr. á 8,53% meðalvöxtum. Samkvæmt nýbirtum Markaðsupplýsingum voru innlendir bankar fyrirferðarmestir í septemberútboðinu. Keyptu þeir víxla fyrir 5,1 milljarða kr., verðbréfasjóðir keyptu víxla fyrir 1,1 milljarða kr. en aðrir, þar með talið erlendir fjárfestar, keyptu bréf fyrir 2,2 milljarða kr. Lítil þátttaka útlendinga í útboðinu er athyglisverð, þar sem í september voru á gjalddaga 20 milljarða kr. af ríkisvíxlum sem útlendingar keyptu alfarið í útboði maímánaðar. Bendir það til þess að stór hluti þessara erlendu kaupenda hafi fært sig í aðra fjárfestingarkosti með lengri líftíma, jafnvel fyrir gjalddaga víxlanna. Erlendir aðilar gætu sömuleiðis orðið atkvæðalitlir í útboðinu á morgun í ljósi þess að þeir keyptu aðeins 1,2 milljarða kr. af þeim ríkisvíxlum sem eru á gjalddaga þennan mánuðinn. „Verður forvitnilegt að sjá hvort innlendir aðilar taka þátt í útboði morgundagsins af jafn miklu kappi og raunin var í síðasta mánuði, og hvort hækkun millibankavaxta í síðustu viku eftir umtalsverða útgáfu innstæðubréfa hefur áhrif á vaxtastig útboðsins," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira