Dagvöruverslun dróst saman um 4,4% í september 13. október 2009 07:58
Velta í dagvöruverslun dróst saman um 4,3% á föstu verðlagi í september miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 13,3% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu dagvöruverslana í september 4,4% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hækkaði um 18,4% á síðastliðnum 12 mánuðum. Þetta kemur fram í frétt frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar segir að sala áfengis minnkaði um 11,5% í september miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og jókst um 20,3% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í september 14% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 36% hærra í september síðastliðnum en í sama mánuð í fyrra. Fataverslun var 0,3% minni í september miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi en jókst um 23,7% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Í september dróst fataverslun saman um 17,6% frá mánuðinum á undan á föstu verðlagi. Verð á fötum var 24% hærra í september síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Velta skóverslunar jókst um 0,9% í september á föstu verðlagi og um 23,7% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm hækkaði í september um 22,6% frá september í fyrra. Velta húsgagnaverslana var 36,2% minni í september en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og 24,9% minni á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 17,8% hærra í september síðastliðnum miðaða við sama mánuð í fyrra. Sala á raftækjum í ágúst dróst saman um 31,2% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um 0,3% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Á milli mánaðanna ágúst og september minnkaði raftækjasala um 16,1% á föstu verðlagi. Töluverður samdráttur er enn í raunveltu smásöluverslunar á milli ára sem kemur sérstaklega fram í minni kaupum á dýrum og varanlegum vörutegundum. Mestur samdráttur á milli ára er enn í húsgagnaverslun og raftækjaverslun eins og undanfarna mánuði. Hins vegar var sáralítill munur á veltu fata- og skóverslunar í september í samanburði við sama mánuð í fyrra að raunvirði. Venjulega dregst velta þessara verslana saman í september, en núna jókst velta skóverslunar frá ágústmánuði um 3,8% en dróst saman í fataverslun um 17,6%. Verðhækkanir á fötum og skóm voru svipaðar á milli ára, 24% verðhækkun á fötum og 22,6% á skóm, samkvæmt verðmælingu Hagstofunnar. Ekki þarf að fjölyrða um ástæður samdráttar í einkaneyslu og um leið veltu verslunar. En samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar var kaupmáttur launa 7,8% minni í ágúst síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Þar kemur einnig fram að innlend greiðslukortavelta hafi dregist saman um 17,9% að raunvirði í janúar til ágúst á þessu ári miðað við sama tímabil í fyrra.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira