Kaupþing lánaði NIBC tugi milljarða vegna bandarískra undirmálslána Sigríður Mogensen skrifar 12. október 2009 18:30
Kaupþing lánaði eigendum hollenska bankans NIBC tugi milljarða króna til að hreinsa bankann af bandarískum undirmálslánum en heimtur af slíkum lánum hafa verið um tvö prósent. Undirmálslánin fóru inn félag í eigu þessara aðila sem skráð var á Cayman eyjum. Kaupþing ákvað í ágúst 2007 að kaupa hollenska bankann NIBC. Um hefði verið að ræða stærstu yfirtöku útrásarinnar. Í tilkynningu Kaupþings frá því 15. ágúst 2007 kom fram að húsnæðislánasafn NIBC sem tengist undirmálslánum væri ekki hluti af kaupunum og verði undirmálslánin flutt í sérstakt félag, stjórnað af seljendum NIBC. Kaupþing beri því enga áhættu tengdri annars flokks húsnæðislánum. Samkvæmt heimildavinnu fréttastofu hét umrætt félag Onca og var það skráð á Cayman eyjum. Það sem hins vegar var ekki tekið fram í þessari fréttatilkynningu er að Kaupþing lagði Onca til 236 milljónir dollara, eða tæpa þrjátíu milljarða króna. Lánið var síðar lækkað niður í 136 milljónir bandaríkjadala. Það var skráð sem eign í bókum Kaupþings. Undirliggjandi eignir Onca voru metnar á 85 milljarða, en heimturnar af eignum sem þessum hafa verið í kringum 2%. Með öðrum orðum lánaði Kaupþing eigendum NIBC þannig að þeir gætu keypt undirmálslánin út úr hollenska bankanum. Markmiðið með þessu var að hreinsa NIBC af lélegum bandarískum húsnæðislánum áður en Kaupþing eignaðist bankann. Samkomulag þetta virtist vera háð því að yfirtakan á NIBC í gegn. Í lok janúar 2008 var kaupunum hins vegar rift, Fjármálaeftirlitið hér á landi stöðvaði yfirtökuna. En hliðarsamningurinn var ekki með riftunarákvæði og Kaupþing sat því uppi með fjárfestinguna í undirmálslánum. Fréttastofa hefur ekki upplýsingar um tap bankans vegna þessa, en kröfuhafar bera slíkt tjón.
Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Sjá meira