Lífið
Sagan endalausa af Jackson Óvinnandi vegur er að fara yfir allar fréttir sem tengjast með einum eða öðrum hætti andláti Michaels Jackson. En þó er rétt að tæpa á þeim helstu fyrir eldheita aðdáendur poppguðsins. Lífið 10.7.2009 07:00
Megas í sólskinsskapi í Hljómskálagarði Megas og Senuþjófarnir verða aðalnúmer útitónleika sem FTT stendur fyrir í Hljómskálagarðinum í dag en tónleikarnir eru hluti af Íslensku tónlistarsumri 2009 í Björtu Reykjavík. Að sögn Jakobs Frímanns, formanns FTT, er öllum borgarbúum boðið til garðveislu. „Snúa vörn í sókn og efla alla dáð. Í fyrra voru vel heppnaðir tónleikar Mezzoforte og nú eru það Megas og Senuþjófarnir. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 við styttu Jónasar,“ segir Jakob. Aðgangur ókeypis. Lífið 10.7.2009 06:45
Listaverkin sem þjóðin á - kannski Þjóðin á verkin en spurt er hvort þjóðin þurfi að greiða fyrir þau dýrum dómum án þess að hafa nokkru sinni fengið greitt fyrir þau þegar þau gleymdust við einkavæðingu bankanna. Lífið 10.7.2009 06:30
Helgi Björns næstum fimmtugur í Valhöll „Hvað verð ég gamall? Ehhh, 49 ára. Ég er reyndar búinn að vera það í nokkur ár. Ég ætla að vera það áfram. Þetta er ágætur aldur," segir Helgi Björnsson sem á afmæli í dag og heldur upp á það með tónleikum í Valhöll. Lífið 10.7.2009 06:15
Björk frumsýnir Voltaic í dag Frumsýning á Voltaic, upptöku af hljómleikum Bjarkar í París og á Íslandi sem sýndir eru í fullum hljóðgæðum í Háskólabíói, er í dag. Um leið er fagnað útgáfu Voltaic, safni með tónleikunum, „live“ hljóðupptöku, endurhljóðblöndunum og myndböndum. Lífið 10.7.2009 06:00
Gangur á silfurgel-drengjum „Þetta gengur mjög vel, salan er alveg í samræmi við það sem við mátti búast. Við erum reyndar mjög bjartsýnir menn og því er þetta bara mjög gott,“ segir Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmaður í handbolta og hárgelsfrömuður. Lífið 10.7.2009 05:30
Moore segir ástarsögu Kvikmyndagerðarmaðurinn Michael Moore hefur gefið væntanlegri kvikmynd sinni yfirskrift í samræmi við innihald hennar. Í myndinni fer Moore yfir fjármál fyrirtækja og efnahagsástandið í heiminum og fannst honum viðeigandi að kalla myndina Capitalism: A Love Story, sem gæti útlagst á íslensku sem Ástarsaga um markaðshyggju. Lífið 9.7.2009 20:11
Evróputúr framundan hjá BMV „Þetta myndband var tekið upp í einni töku," svarar Brynjar Már eða BMV aðspurður um gerð myndbandsins við nýja lagið hans Santeria. „Það var aldrei klippt og er því svolítið sér á báti hvað varðar tónlistarmyndbönd. Atriðið var æft eins og í leikhúsi því það var ekkert sem hægt var að gera aftur. Engin klipping og aldrei hreyfður ramminn." Hvað ertu að bralla þessa dagana? „Nú stendur yfir afmælishringferðin um landið sem hefur gengið umfram óskum með Zúúber grúbbunni og Zúúber á sviði. Næsti áfangastaður er Akureyri," svarar Brynjar Már og heldur áfram: „Síðan er Santeria að koma út á plötu sem heitir Sumarstjörnur á næstu dögum en það verða útgáfutónleikar fyrir utan N1 við Hringbraut í kjölfarið á útgáfu plötunnar. Síðan er ég að koma fram á Austurvelli á morgun fyrir Jafningjafræðsluna." Sjá myndbandið hér. Lífið 9.7.2009 14:16
Kynntust á Kringlukránni „Ég kynntist henni á Kringlukránni. Hún er búin að vera að syngja voðalega mikið í kórum og fyrir þá sem minna mega sín. Mér finnst hún syngja rosalega vel," svarar Gylfi Ægisson aðspurður um Jóhönnu Magnúsdóttur sem mun fylgja honum næstu mánuði og skemmta. „Ég tek lögin mín og hún syngur gömul lög sem allir þekkja," segir Gylfi. Gylfi Ægisson verður með tónleika á kaffi Duus í Keflavík annaðkvöld, föstudag, klukkan 21:00, ásamt Jóhönnu. Lífið 9.7.2009 13:01
Hvað með hanskann Michael? - myndband 31,1 milljónir manna fylgdust með minningarathöfn Michael Jackson á þriðjudaginn. Meðfylgjandi má sjá vinkonu Michael, leikkonuna Brooke Shields, rifja upp kynni þeirra. „Hvað með hanskann?" spurði hún Michael þegar hann tók upp á því að ganga með einn hvítan hanska. Lífið 9.7.2009 09:52
Laddi laminn í klessu „Ja, sko, ef maður ætti frí, til dæmis á sunnudaginn, þá kæmist ég ekkert í golf enda allur blár og marinn og með brákað rifbrein,“ segir Þórhallur Sigurðsson, Laddi. Hann fékk að finna fyrir höggþunga mótleikara síns, Stefáns Halls Stefánssonar, þegar verið var að taka upp slagsmálaatriði fyrir kvikmyndina Jóhannes í Kaldársseli, rétt fyrir utan Hafnarfjörð, á mánudaginn. Lífið 9.7.2009 08:00
Ólafur Ragnar færir FM-hnökkum kínverskan mat Tökur kvikmyndarinnar Bjarnfreðarson standa nú yfir og í gær mátti sjá tökulið festa það á filmu þegar Ólafur Ragnar kemur færandi hendi – með kína-mat fyrir hetjurnar sínar FM-hnakkana. Lífið 9.7.2009 07:00
Anita aðalstjarnan á nördahátíð í San Diego Íslenska leikkonan Anita Briem verður ein af aðalstjörnum alþjóðlegu myndasöguhátíðarinnar sem haldin hefur verið í San Diego síðastliðin fjörutíu ár. Hátíðin, sem heitir San Diego Comic Con International, er ein sú allra stærsta í myndasöguheiminum en hana sóttu yfir 120 þúsund manns í fyrra sem þá var met en aðstandendur ráðstefnunnar vonast til að slá það í ár enda hafa myndasögur sjaldan eða aldrei verið jafn vinsælar. Lífið 9.7.2009 06:00
Kastljós kallað út úr sumarfríi „Já, sumarfríið stóð í einn dag. Þá varð ég viðþolslaus. Neinei, ég var búinn að ákveða að vera með mannskapinn til taks ef eitthvað kemur upp. Þannig að fólk er ekki alveg laust við okkur,“ segir Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri og ritstjóri Kastljóss Ríkissjónvarpsins. Lífið 9.7.2009 05:45
Leaves spila á Nasa Útgáfutónleikar Leav-es verða á Nasa í kvöld. Plata sveitarinnar We Are Shadows hefur fengið góða dóma hvarvetna en hún kom út 11. maí síðastliðinn. Lífið 9.7.2009 05:30
Hræddur við aðdáendurna Breski leikarinn Robert Pattison er víst búinn að fá sig fullsaddan af ágangi aðdáenda í New York. Pattison, sem sló í gegn sem vampíran Edward Cullen í kvikmyndinni Twilight, er hundeltur af kvenkyns aðdáendum sínum hvert sem hann fer. Lífið 9.7.2009 05:00
Skriður kominn á Baywatch-myndina Svo virðist sem nýjasta tískan í Hollywood séu kvikmyndir og sjónvarpsþættir frá níunda áratugnum. Nýlega var tilkynnt að gera ætti kvikmynd eftir sjónvarpsþáttunum The A-Team og í vikunni varð ljóst að lögregluhetjan T.J. Hooker myndi rata á hvíta tjaldið. Lífið 9.7.2009 04:15
Úr leiklist í pólitík Kal Penn, sem fór með hlutverk læknanemans Lawrence Kutner í þáttunum um House, hefur ákveðið að segja skilið við leiklistina og snúa sér að stjórnmálum. Búið er að skrifa persónuna Lawrence Kutner út úr þáttunum svo að Penn geti einbeitt sér að pólitíkinni. Penn, sem réttu nafni heitir Kalpen Modi, mun sitja í menningarráði Obama-stjórnarinnar í Washington. Lífið 9.7.2009 03:45
Clooney orðaður við Jack Ryan Samkvæmt vef kvikmyndatímaritsins Empire er George Clooney sagður vera áhugasamur um að taka að sér hlutverk leyniþjónustumannsins Jack Ryan. Ryan þessi er þekktasta persóna bandaríska rithöfundarins Tom Clancy og hefur svo sem áður birst á hvíta tjaldinu í líki Alecs Baldwin, Harrisons Ford og nú síðast Bens Affleck í Sum of All Fears. Lífið 9.7.2009 03:00
Konur að taka yfir Mýrarboltamótið „Við erum komnir með lið frá Kanada og svo hafa pólskir túristar boðað komu sína. Við erum í þeirra augum orðið eitthvert gósenland þar sem allt er nánast gefins,“ segir Jóhann Bæring Gunnarsson, drullusokkur hins árlega Mýrarboltamóts sem haldið er á Ísafirði um verslunarmannahelgina. Lífið 9.7.2009 03:00
Gogoyoko komin í gagnið Tónlistarverslunin og netsamfélagið gokoyoko.com er komið í gagnið. Til að byrja með sitja Íslendingar einir að síðunni, en fleiri lönd fylgja brátt í kjölfarið. Lífið 9.7.2009 02:30
Brjálæðið í kringum Brüno Grín og gaman fékk algjörlega nýja ásjónu með kvikmyndinni Borat þar sem Sacha Baron Cohen brá sér í líki sjónvarpsmannsins frá Kasakstan. Sacha Baron er mættur aftur en nú sem austurríska tískugúrúið Brüno. Myndin verður frumsýnd í kvikmyndahúsum um helgina. Lífið 9.7.2009 02:00
Klárlega markaður fyrir Sumar á Íslandi „Lagið frá Buffinu heitir Prinsessan mín og er fyrsta lagið sem sveitin sendir frá sér sem er ekki eftir neinn meðlim sveitarinnar," svarar Hannes Friðbjarnarson meðlimur Buff aðspurður út í þeirra framlag á nýrri safnplötu sem ber heitið „Sumar á Íslandi," með vinsælustu hljómsveitum landsins. „Lagið er eftir Dr.Gunna og kom það til þannig að Doktorinn hreinlega bað okkur um að taka lag eftir sig, fyrir rúmu ári síðan, þá var staðan hjá okkur þannig að við vorum í óðaönn að klára plötuna okkar sem kom út fyrir síðustu jól, og fannst eins og við gætum ekki einbeitt okkur að þessu lagi. En vildum þó fá að halda í það, sem var ekkert mál. Svo á þessu ári þegar við vorum að spá í nýjum lögum þá var þetta lag mjög ofarlega á lista. Það er hresst og skemmtilegt og við náðum allir að tengja mjög vel við það. Svo hefur það blundað þengi hjá okkur að gera lag með miklum hljómborðum og hárri kúabjöllu svo þetta varð útkoman. Dr.Gunni kann að búa til hressandi lög og við settum okkar stíl á það, sem er greinilega að virka því það er búið að vera mjög vinsælt í sumar og fólk tekur vel við sér á böllum þegar það er spilað," segir Hannes. Klárlega markaður fyrir svona plötur „Það er klárlega markaður fyrir svona plötur á íslandi. Þarna er að finna vinsælustu lögin í dag í bæði popp og rokkdeildinni. Þessi lög hafa ekki komið út á geisladiski áður svo að við erum bjartsýnir," segir Jón Þór Eyþórsson hjá útgáfufyrirtækinu Senu sem getur út plötuna. „ Þetta er mjög blönduð plata svo að hún er fyrir alla. Rennur ljúflega í gegn," segir Jón Þór að lokum. Lífið 8.7.2009 14:22
Hríseyjarsund á koppinn „Frábært framtak. Vonandi komið til að vera. Ég stökk strax til þegar spurt var hvort ég vildi vera með. Þó ég sé að vinna um helgina. Þarf bara að redda mér flugi norður, synda og svo til baka aftur," segir Benedikt Hjartarson bakari og sjósundskappi. Lífið 8.7.2009 07:00
Eyfi ekki raðmorðinginn í Suður-Karólínu „Ég hef verið víða í Bandaríkjunum en ekki komið til Karólínu. Ég þekki konu sem heitir Karólína en hún býr í Hafnarfirði," segir Eyjólfur Kristjánsson tónlistarmaður - Eyfi. Lífið 8.7.2009 06:00
Dánarvottorð Jacksons birt Þeir aðdáendur sem borið hafa þá von í brjósti að Michael Jackson sé á lífi gætu hafa misst vonina þar sem dánarvottorð konungsins hefur verið gert opinbert. Lífið 7.7.2009 22:19
Bræddi heimsbyggðina á minningarathöfn - myndband Paris-Michael Katherine Jackson, dóttir poppkonungsins Michael Jackson kallaði fram tár heimsbyggðarinnar þegar hún ávarpaði fjöldann á minngarathöfn sem fram fór í Staples Center í Los Angeles fyrr í kvöld. Þegar Marlon Jackson, bróðir Michael hafði lokið máli sínu og var við það að slíta athöfninni steig dóttirin fram og bað um að fá að ávarpa fjöldann. Lífið 7.7.2009 20:15
Vörurnar rjúka út jafnóðum og þær koma Umboðssalan sem Geir Sveinsson hleypti af stokkunum ásamt nokkrum félögum sínum hefur heldur betur slegið í gegn. Fréttastofa hafði spurnir af því að vörurnar rykju út jafnóðum og þær kæmu. Lífið 7.7.2009 20:11
Geta séð Björk í sturtu í Vesturbæjarlaug Óvíst er hvort fjallagarpurinn, blaðamaðurinn og rithöfundurinn Páll Ásgeir Ásgeirsson myndi skrifa fyrir Íslendinga það sem hann lætur eftir sér í texta ætluðum erlendum túristum í bókinni The Real Iceland sem er nýútkomin. Lífið 7.7.2009 07:30
Fagnar frekar en að syrgja MJ Páll Óskar Hjálmtýsson ætlar að fagna lífi og list Michaels Jackson á Nasa á laugardagskvöld. Til þess hefur hann fengið með sér hljómsveitina Jagúar, Alan Jones og Seth Sharp auk Yesmine og danshóps hennar. Allur ágóði kvöldsins rennur til Barnaspítala Hringsins, en miðaverð er 2.000 krónur. Lífið 7.7.2009 07:00