Lífið
Purity Herbs í Kína Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar framleiðslufyrirtækið Purity Herbs fagnaði í nýju húsnæði við Freyjunes 4 á Akureyri. Eigendur Purity Herbs fögnuðu nýjum áfanga í sögu fyrirtækisins sem er komið með framtíðaraðstöðu þar sem allar aðstæður eru eins og best verður á kosið og mögulegt að taka á móti viðskiptavinum, ekki síst erlendum dreifingaraðilum sem ætla sér stóra hluti með Purity Herbs í sínu heimalandi. Hitt gleðitilefnið var stór samningur um útflutning til Kína þar sem barnalína Purity Herbs er komin á markað þar í landi. Um er að ræða þrjár vörutegundir, barnakrem, barnaolía og barnasápa og allt 100% náttúrulegt. Á annað hundrað manns mættu til að samgleðjast og skoða nýja húsnæð Purity Herbs og allir voru sammála um að vel hafi tekist til með allar framkvæmdir og staðsetningin einstök með fögru útsýni hvert sem litið er. Sleipiefni Purity Herbs eru vinsæl á meðal sjómanna á Íslandi (video). Purity Herbs á Facebook. Lífið 23.6.2011 12:32
Höfnuðu James Bond Rokkararnir í Kings of Leon höfnuðu boði um að semja aðallag næstu James Bond-myndar. Lífið 23.6.2011 12:00
Þessar endalausu varastækkanir eru pínu þreytandi Í meðfylgjandi myndasafni má sjá breytinguna sem hefur orðið á vörum leikkonunnar Jessicu Biel, 29 ára, og nefi hennar og brjóstum í gegnum tíðina. Þá má einnig sjá Jessicu með leikaranum Gerard Butler á mótorhjóli og þegar hún gaf eiginhandaráritanir fyrir utan tökustað kvikmyndarinnar Total Recall síðasta mánudag í Toronto í Kanada. Lífið 23.6.2011 11:49
Fyrirsætan sem sló í gegn Með hártoppinn beinstífan upp í loftið heillaði hún áhorfendur er hún lék Mary í myndinni There"s Some-thing About Mary. Það er hin leggjalanga og ljóshærða Cameron Diaz sem leikur aðalhlutverkið í gamanmyndinni Bad Teacher en myndin var frumsýnd hér á landi í gær. Lífið 23.6.2011 11:00
Hollensk rúgbrauð á Landsmóti Hollenskur fornbílaklúbbur með Volkswagen-rúgbrauð og -bjöllur fremst í flokki tekur þátt í Landsmóti Fornbílaklúbbs Íslands sem verður haldið á Selfossi í áttunda sinn um næstu helgi. Lífið 23.6.2011 11:00
Barnvænt hús í Belgíu DmvA arkítektar hönnuðu húsið sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni. Húsið, sem er í Belgíu, var teiknað fyrir fjölskyldufólk sem lagði ríka áherslu að húsið væri barnvænt og að umferðin fyrir utan húsið hyrfi um leið og stigið væri inn í það. Garðurinn snýr ekki að götunni og það á einnig við um svefnherbergin og stofuna. Tíska og hönnun 23.6.2011 10:51
Aniston og skeggjaði kærastinn Leikkonan Jennifer Aniston, 42 ára, og skeggjaði kærastinn hennar Justin Theroux nutu samverunnar í Soho í New York eins og sjá má í myndasafni. Justin og Jennifer sáust fyrst saman í byrjun júní þar sem þau leiddust og létu vel að öðru að röltinu um götur New York borgar. Burtséð frá tilhugalífi leikkonunnar var tilkynnt á dögunum að Jennifer fengi eigin Hollywood Walk of fame stjörnu. Lífið 23.6.2011 10:05
Life of Brian efniviður í nýja mynd BBC hefur ákveðið að ráðast í gerð kvikmyndar sem fjalla á um fárið í kringum Monty Python-myndina Life of Brian. Handrit eftir Tony Roche er tilbúið og búið er að ráða í helstu hlutverk. Samkvæmt frétt Guardian kemur enginn af meðlimum grínhópsins nálægt myndinni. Þeim hafi þó verið gefið tækifæri til að gera athugasemdir við handrit og koma sínum skoðunum á framfæri. Lífið 23.6.2011 10:00
Fótboltastrákur úr Árborg slær í gegn á Flick My Life „Ég veit ekkert hver er að gera þetta,“ segir Páll Óli Ólason sem hefur slegið í gegn á síðunni Flickmylife.com að undanförnu. Þar hefur ljósmynd af honum verið klippt á skondinn hátt inn í ýmsar kringumstæður. Má þar nefna atriði úr gamanmyndinni Forrest Gump, nautaat, skautadans og morðið á Lee Harvey Oswald, banamanni Johns F. Kennedy, fyrrum Bandaríkjaforseta. Lífið 23.6.2011 09:00
Meira af öllu frá Bon Iver Önnur plata Bon Iver er komin út. Hún var tekin upp í gamalli innisundlaug skammt frá æskuheimili forsprakkans Justins Vernon í Wisconsin-ríki. Lífið 23.6.2011 08:30
Fox í feluhlutverki hjá Cohen Bandarísku leikkonunni Megan Fox bregður fyrir í litlu hlutverki í kvikmyndinni The Dictator. John C. Reilly verður í svipuðu hlutverki í myndinni. Ekki liggur fyrir hvers eðlis hlutverkin eru en mikil leynd hvílir yfir tökunum sem standa nú yfir. Lífið 23.6.2011 08:00
Aleinn í álögum Kvikmyndin Beastly með þeim Alex Pettyfer og Vanessu Hudgens verður frumsýnd um helgina. Myndin byggir á kunnuglegu stefi en hún segir frá unga, ríka og myndarlega pabbastráknum Kyle. Hann á allt sem hugurinn girnist og níðist gjarnan á skólafélögum sínum þegar tækifæri gefst til. Lífið 23.6.2011 06:00
Samdi lag við sálm Sigurbjörns Pétur Ben, Toggi, Svavar Knútur og Matthías Baldursson ætla að frumflytja eigin lög við sálma Sigurbjörns Einarssonar á tónleikum í Lindakirkju 30. júní. Tónleikarnir verða haldnir í tilefni þess að biskupinn fyrrverandi hefði orðið 100 ára þennan sama dag. Lífið 23.6.2011 06:00
Gott glæpasagnateiti Yrsa Sigurðardóttir hlaut Blóðdropann á þriðjudag fyrir bók sína Ég man þig. Bókin verður því framlag Íslands til Norrænu glæpasagnaverðlaunanna, Glerlykilsins. Fjöldi starfsfélaga Yrsu úr glæpasagnaheiminum lét sjá sig í Borgarbókasafninu þar sem afhendingin fór fram til að heiðra Yrsu á þessum merkilegu tímamótum. Lífið 23.6.2011 04:00
Hætt saman (hvað gerðist Goggi?) Bandaríski leikarinn George Clooney, 50 ára, og ítalska módelið Elisabetta Canalis eru hætt saman eftir tveggja ára ástarsamband. Þau sendu frá sér fréttatilkynningu sem hljómaði einhvernveginn svona: Við erum ekki lengur saman. Þetta er erfitt ferli og mjög persónulegt og við vonum að allir virði það og gefi okkur frið. Meðfylgjandi má sjá myndir af George og Elisabettu í sitthvoru lagi sem teknar voru af þeim nýverið. Lífið 22.6.2011 17:00
Litaðar gallabuxur rokka Meðfylgjandi má m.a. sjá myndir af Hollywoodstjörnum eins og Kylie Minogue, Siennu Miller, Hayden Panettiere, Hilary Duff og Khloe Kardashian sem allar eiga það sameiginlegt að ganga í lituðum gallabuxum í sumar. Skoða buxurnar betur í meðfylgjandi myndskeiði. Tíska og hönnun 22.6.2011 16:36
Prófaður sem Jeff Buckley Alexander Briem, stjarnan úr Gauragangi, var beðinn um að senda inn myndbandsprufu fyrir hlutverk Jeff Buckley samkvæmt heimildum Fréttablaðsins en til stendur að gera kvikmynd um bandaríska tónlistarmanninn. Vera Sölvadóttir leikstýrði prufunni og lítill hópur fólks kom að gerð hennar en mikil leynd hefur hvílt yfir verkefninu. Hvorki Alexander né móðir hans, útvarpskonan Sigríður Pétursdóttir, vildu tjá sig um málið við Fréttablaðið. Lífið 22.6.2011 16:00
Munurinn er rosalegur (og náttúrulegur í þokkabót) Margrét Snorradóttir förðunarfræðingur hjá Bobbi Brown í Hagkaup Smáralind sýnir í meðfylgjandi myndskeiði hvað litað dagkrem gerir mikið fyrir andlitið á fyrirsætunni Thelmu Dögg. Eftir að dagkremið, sem inniheldur sólarvörn, er borið á andlitið er áferðin gjörbreytt en á sama tíma sér ekki nokkur maður að um förðun sé að ræða. Margrét þekur aðeins hálft andlit fyrirsætunnar svo munurinn er sjáanlegur og í lokin bætir hún við sólarpúðri. Dagkremið og sólarpúðrið. Lífið 22.6.2011 15:15
Hugleikur fékk harða diskinn Rithöfundurinn Hugleikur Dagsson hefur endurheimt efnið úr tölvunni sinni sem var stolið fyrir skömmu. Lífið 22.6.2011 15:00
Lífið býður í rómantískt bíó Í dag frumsýna Sambíóin rómantísku unglingamyndina Beastly með Vanessu Hudgens, Mary Cate Olsen og Alex Pettyfer í aðalhlutverkum. Ef þú vilt eiga möguleika á að vinna tvo miða á myndina skaltu læka Facebooksíðu Lífsins og pósta þessum bióleik á Facebook síðunni þinni. Þá má sjá myndir af aðalleikkonunni Vanessu í meðfylgjandi myndasafni. Lækaðu og kvittaðu á Lífið hér - 20 bíómiðar verða dregnir út í hádeginu á morgun 23. júní. Lífið 22.6.2011 13:38
Kvöldstund með Steinda á uppboði í Eyjum Kvöldstund með Steinda Jr. og treyjur frá Chelsea-stjörnunum Frank Lampard og John Terry eru meðal hluta sem boðnir verða upp í Vestmannaeyjum um helgina í tengslum við árlegt góðgerðamót Hermanns Hreiðarssonar, landsliðsfyrirliða. Mótið fer fram á laugardaginn og má reikna með mikilli veislu í Eyjum eins og undanfarin ár. Lífið 22.6.2011 13:00
Ítölsk hönnun í H&M Sænski tískurisinn Hennes & Mauritz hefur hafið samstarf við ítalska tískuhúsið Versace. Fatalínan, sem kemur í verslanir út um allan heim í nóvember, er hönnuð af listrænum stjórnanda tískuhússins, Donatellu Versace. Lífið 22.6.2011 12:00
Upplífgandi og sólrík sálarplata Ég trúi á þig er 25. sólóplata Bubba Morthens með nýju efni og fyrsta platan hans síðan Fjórir naglar kom út fyrir þremur árum. Á Fjórum nöglum voru tvö fín soul-lög, titillagið og Myndbrot, og kannski voru þau kveikjan að því að Bubbi ákvað að búa til soul-plötu. Gagnrýni 22.6.2011 11:30
Skiptir þú um gæja eins oft og naríur? Paris Hilton er einhleyp á ný. Paris og kærastinn fyrrverandi, Cy Waits, sem skoða má í myndasafni, ákváðu í sameiningu að enda eins árs samband þeirra eftir að hafa átt í erfiðleikum í sambandinu undanfarið. Lífið 22.6.2011 11:15
Endless Dark til Evrópu Endless Dark leggur af stað í tónleikaferð til Evrópu á fimmtudaginn. Lífið 22.6.2011 11:00
Tekin í tollinum Ég var tekin afsíðis af því að það var eitthvað dularfullt í töskunni minni, segir Ólöf Erla Einarsdóttir, grafískur hönnuður, sem sigraði nýverið í alþjóðlegri bókarkeppni, The Ravenheart Award, fyrir bókarkápu skáldsögunnar Power & Majesti sem hún hannaði. Í myndskeiðinu sýnir Ólöf Erla, sem starfar í grafíkdeildinni á RÚV, verðlaunagripina, verðlaunakápuna og verk eftir hana. Lífið 22.6.2011 09:43
Sjáðu fyrir/eftir myndirnar (hústökuhúsið) Meðfylgjandi myndir sýna hvernig Sandra Hlíf Ocares náði að gjörbreyta húsinu sínu í Vesturbænum þar sem hústökufólk hafðist við nokkuð lengi. Lífið 22.6.2011 07:53
Hátíð í anda Hróarskeldu „Við verðum með fjögurra daga hátíð í anda Hróarskeldu, þar sem íslensk bönd koma og spila sína tónlist,“ segir Dagmar Erla Jónasdóttir, vaktstjóri á Dönsku kránni. Lífið 22.6.2011 06:00
Denise Richards leysir frá skjóðunni Denise Richards er að vinna að ævisögu sinni, þar sem hún ætlar að leysa frá skjóðunni varðandi hjónabandið og skilnaðinn við Charlie Sheen. Lífið 21.6.2011 21:00
Lofaðu að strekkja aldrei á þessum fallegu hrukkum Meðfylgjandi myndir voru teknar af Madonnu, 52 ára, án andlitsförðunar á Heathrow flugvelli í London. Eins og sjá má ber söngkonan aldurinn ótrúlega vel þar sem fallegar broshrukkurnar í kringum augun hennar sáust þegar hún tók loksins niður sólgleraugun. Þá má einnig sjá myndir og myndskeið af Madonnu þegar hún mætti óvænt í lokasjónvarpsþátt Opruh 17. maí síðastliðinn. Lífið 21.6.2011 19:50