Lífið

Múm, MØ og Metz mæta

Múm hefur bæst við dagskrá Iceland Airwaves í haust, en hljómsveitin gefur um svipað leyti út nýja plötu. Auk hennar bætast í hópinn Sin Fang, danska söngkonan MØ, elektrópoppkvartettinn Bloodgroup, gruggpönkararnir kanadísku í Metz, draumpoppararnir Young Dreams frá Noregi, hin reykvíska sveit Oyama og sænska söngkonan Sumie Nagano.

Tónlist

Aðalatriðið er að gefast aldrei upp

Tónlistarmaðurinn Gylfi Ægisson lét sitt ekki eftir liggja með því að hvetja Sigurð áfram eins og svo margir aðrir með eftirfarandi athugasemd sem við birtum hér í heild sinni...

Lífið

Steypiboð Shakiru til styrktar UNICEF

Eins og flestir vita eignuðust söngkonan Shakira og fótboltastjarnan Gerard Piqué sitt fyrsta barn, soninn Milan Piqué Mebarak, þann 22. janúar síðastliðinn. Að bandarískum sið ákvað parið að halda steypiboð (e. baby shower) fyrir soninn en breytti þó örlítið út af vananum.

Lífið

Skórnir af sýningarpöllunum

Nú fer að síga á seinni hluta stóru tískuviknanna, en sú síðasta hófst í París í gær. Hér eru nokkur falleg skópör beint af sýningarpöllunum.

Lífið

Hera Björk í úrslitum

Söngkonan Hera Björk varð aftur efst í gærkvöldi í sínum riðli í Vina del Mar söngvakeppninni sem fram fer í Chile...

Lífið

Í uppáhaldi hjá hönnunartímaritum um allan heim

Meðfylgjandi má sjá gullfallegt sænskt heimili sem er í uppáhaldi hjá hönnunartímaritum út um allan heim. Bloggið Svart á Hvítu á Trendnet birti myndir frá innliti á heimili með ævintýralegu lofti og parketi sem er eins og listaverk. Nokkrar þeirra má sjá hér:

Tíska og hönnun

Ef ég fíla eitthvað þá kaupi ég það aftur

"Ég er nú ekki mikið fyrir mála mig mikið dags daglega en er alltaf með maskara frá Helen rúbinstein sem er algjör snillð að mínu mati hann gerir augnahárin þettari og lengri sem öllum konum langar að ná fram."

Lífið

Ben Stiller verður með

Ben Stiller er nýjasti gestaleikarinn sem staðfest hefur verið að bregði fyrir í nýju þáttaröðinni af Arrested Development sem kemur á skjáinn í maí. Áður hafa stjörnur á borð við Kristen Wiig, Seth Rogen, Conan O’Brien, John Slattery og Islu Fisher verið tilkynntar sem hluti af þáttaröðinni og búist er við að fleiri stjörnur verði tilkynntar áður en langt um líður.

Lífið

Mumford tekur upp með Timberlake

Marcus Mumford, höfuðpaur Mumford and Sons, og Justin Timberlake hafa verið að taka upp tónlist saman fyrir nýjustu kvikmynd Coen-bræðra. Myndin, sem heitir Inside Llewyn Davis, skartar Carey Mulligan, eiginkonu Mumfords, í einu aðalhlutverkanna og fjallar um tónlistarmann sem reynir að öðlast frægð og frama í New York á sjöunda áratugnum.

Tónlist

Enn einn ritstjórinn hættir

Ritstjóri Séð og heyrt, Björk Eiðsdóttir, hefur sagt upp starfi sínu eftir aðeins átta mánuði í starfi. Forverar hennar í ritstjórastól, Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Ragnheiður Kristjónsdóttir, stýrðu einnig blaðinu í stuttan tíma eða innan við 12 mánuði ef litið er til síðustu þriggja ára. Björk fór eins og heimsþekkt er orðið í mál við íslenska ríkið fyrir hönd dóttur sinnar, Blævar Bjarkardóttur Rúnarsdóttur en í lok janúar á þessu ári úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að leyfilegt væri að nefna stúlkur nafninu Blær. Mannanafnanefnd hafði áður komist að því að nafnið væri karlmannsnafn en nafn stúlkunnar var aldrei samþykkt af íslenskum yfirvöldum þar sem það var talið vera karlmannsnafn.

Lífið

Selur búgarðinn á þrjá milljarða

Leikarinn Tommy Lee Jones er búinn að láta pólóhestabúgarðinn sinn á Flórída á sölu. Eigninni fylgir 50,2 ekrur af landsvæði og er ásett verð 26,75 milljónir dollarar, tæpur þrír og hálfur milljarður króna.

Lífið

Orðin þreytt

Nýi Óskarsverðlaunahafinn Jennifer Lawrence er orðin uppgefin eftir langa og stranga vinnudaga. Þetta segir náinn vinur leikkonunnar og bætir við að hún sé að kikna undan álaginu.

Lífið

Mig langaði að drepa hana

Kendra Wilkinson er ekki lengur Playboy-kanína en er samt sem áður mjög annt um fyrrverandi kærasta sinn, Playboy-kónginn Hugh Hefner. Hún er ekki parhrifin af því hvernig eiginkona hans, Crystal Harris, hefur komið fram við hann.

Lífið

Bieber með gasgrímu

Stjörnurnar reyna ýmislegt til að losna við paparassana en ungstirnið Justin Bieber toppaði allar þær tilraunir í London á mánudaginn.

Lífið