
Lífið

Fólk í öllum flokkum ágætt og meingallað í senn
Heimir Már Pétursson er einn helsti stjórnmálablaðamaður Íslands og hefur verið í fjölmiðlabransanum lengur en flestir. Sindri Sindrason kíkti til Heimis í morgunkaffi á litla, krúttlega heimili hans í miðbæ Reykjavíkur.

Fyrsta barn Bieber-hjóna komið í heiminn
Fyrsta barn hjónanna Hailey Bieber og Justin Bieber er komið í heiminn og virðist sem svo að fæðingin hafi gengið ágætlega fyrir sig enda nýfæddur drengurinn kominn á heimili þeirra hjóna. Justin Bieber, kanadíski söngvarinn og stórstjarna, greinir frá þessu á Instagram-síðu sinni.

Ætla að veita Mikka eins gott líf og kostur er
Mikael Smári Evensen var þriggja ára gamall þegar hann var greindur með taugahrörnunar sjúkdóminn AT, eða ataxia telangiectasia en sjúkdómurinn leggst meðal annars á tauga- og ónæmiskerfið og leiðir til alvarlegrar færniskerðingar. Í sumarbyrjun í fyrra greindist Mikael Smári síðan einnig með bráðahvítblæði og er því í harðri krabbbameinsmeðferð, ofan á allt hitt.

Fréttatía vikunnar: Bandaríkin, salöt og aldursfordómar
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.

Tónlistarveisla á Menningarnótt sýnd í beinni útsendingu
Árleg tónlistarveisla Bylgjunnar fer fram í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt, laugardaginn 24. ágúst. Tónleikarnir hefjast klukkan 19:00 og verða sýndir í opinni dagskrá á Stöð 2 og í beinu streymi hér á Vísi.

Hafþór ekki lengur vinsælasti Íslendingurinn á Instagram
Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir hefur tekið fram úr aflraunamanninum Hafþóri Júlíusi Björnssyni sem vinsælasti Íslendingurinn á samfélagsmiðlinum Instagram. Laufey er nú með rétt rúmlega 4,4 milljónir fylgjenda en Hafþór er með 4,3 milljónir.

Myndaveisla: Suðræn stemning og hlátrasköll
Íslenska gamanþáttaröðin Flamingo bar var frumsýnd í Bíó Paradís í gærkvöldi. Húsfyllir var á frumsýningunni og góð stemning meðal gesta sem voru hvattir til að mæta í sumarlegum klæðnaði.

Ástfangin í eitt ár
Hildur Sif Hauksdóttir, áhrifavaldur og raunveruleikastjarna, og Páll Orri Pálsson lögfræðingur fögnuðu eins árs sambandsafmæli sínu í gær. Parið opinberaði samband sitt í febrúar á þessu ári og virðist ástin blómstra.

„Sorgin er fylgifiskur framtíðar minnar“
„Ég græt þegar minningarnar um Ölmu systur hellast yfir mig og sorgin bankar. En það varir aldrei lengi því það er stutt í brosið yfir öllu því stórkostlega sem hún gaf mér,“ segir hugmynda- og þúsundþjalasmiðurinn Jón Gunnar Geirdal sem missti systur sína eftir tveggja ára baráttu við krabbamein árið 2020. Jón Gunnar er kvæntur, á fjögur börn og lítur þakklætis augum á lífið.

Halla býður á Bessastaði í fyrsta sinn
Forsetasetrið að Bessastöðum verður opið almenningi í tilefni Menningarnætur, laugardaginn 24. ágúst. Það verður í fyrsta sinn sem nýr forseti, Halla Tómasdóttir, og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, bjóða almenningi að heimsækja Bessastaði síðan hún tók við embætti.

Lekker hæð í Laugardalnum
Við Silfurteig í Laugarneshverfinu er að finna glæsilega 148 fermetra sérhæð. Eignin er á neðstu hæð í þriggja hæða húsi sem var byggt árið 1948. Ásett verð er 127, 7 milljónir.

Jökull leikur sjálfan sig í Glæstum vonum: „Þetta er kannski meira í gríni gert“
Jökull Júlíusson söngvari hljómsveitarinnar Kaleo segir það hafi verið skemmtilegt ævintýri að leika sjálfan sig í sápuóperunni Glæstum vonum. Hann fékk boð um hlutverkið í þáttunum eftir að hafa komið fram í veislu hjá Andrea Bocelli.

Leitar að „ekki leiðinlegri“ manneskju
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds vantar aðstoðarmann. Á Facebook auglýsir hann eftir einum slíkum og tekur fram að manneskjan þurfi helst að vera skemmtileg.

Jói Fel orðinn afi
Einn frægasti veitingamaður landsins Jóhannes Felixsson, betur þekktur sem Jói Fel, er orðinn afi. Hann greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram.

Táraflóð eftir óvænt atriði brúðgumans
Rakel Orradóttir, markþjálfi og áhrifavaldur, og Rannver Sigurjónsson kírópraktor, giftu sig við hátíðlega athöfn í Hallgrímskirkju 17. ágúst síðastliðinn. Nýbökuðu hjónin svífa um á bleiku skýi og njóta nú hveitibrauðsdaganna á fimm stjörnu hóteli á grísku eyjunni Krít. Lífið á Vísi ræddi við hjúin um ástina og stóra daginn.

Myndaveisla: Sexí upplifun í miðbænum
Fjölmennt var á koteilabarnum Tipsý á dögunum þegar Samuel Page, yfirbarþjónn veitingastaðarins Sexy Fish í London, tók yfir barinn og bauð gestum upp að smakka á nokkra af þeirra frægustu kokteilum.

Hollywood-leikstjóri nýtur lífsins á Íslandi
Óskarsverðlaunaleikstjórinn Ron Howard er nú á Íslandi og nýtur lífsins. Á reikningi sínum á samfélagsmiðlinum X segir hann frá því að hann sé á landinu ásamt eiginkonu sinni, Cheryl. Við færsluna setur hann myllumerkin Iceland, eða Ísland, og bucketlist, eða laupalisti. Svo spyr hann hvort fólk vilji sjá fleiri myndir.

Var búinn að gefast upp
Jennifer Lopez hafði íhugað það vel og vandlega hvort hún ætti að sækja um skilnað við eiginmanninn Ben Affleck. Þegar á hólminn var komið var Affleck búinn að gefast upp á hjónabandinu, hafði engan áhuga á að bæta það og taldi söngvarinn því ekki aftur snúið.

Kaleo sló í gegn hjá Jimmy Kimmel
Stórhljómsveitin Kaleo steig á svið í spjallþætti Jimmy Kimmel í gærkvöldi. Sveitin flutti þar lag sitt Rock N Roller, sem kom út fyrr á þessu ári.

Vala Kristín hætti sér á tvöfalt stefnumót í flugi
Leikkonurnar Vala Kristín Eiríksdóttir og Júlíana Sara Gunnarsdóttir fóru í flug með sínum heittelskuðu, Andri Jóhannssyn þyrluflugmanni og Hilmi Snæ Guðnasyni leikara í blíðviðrinu í gær.

Okkar eigið Ísland: Leiddi félaga sína á vitlausan topp
Í nýjasta þætti Okkar eigið Ísland er Garpur I. Elísabetarson í för með Sigurði Karlssyni og Leifi Runólfssyni á Lómagnúp, eitt af kennileitisfjöllum Suðausturlands. Ferðin gekk ekki alveg áfallalaust fyrir sig þó hún hafi verið hin fallegasta.

Patrekur Jaime mættur aftur á markaðinn
Glæsilega raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Patrekur Jaime, sem vakti mikla athygli fyrir raunveruleikaseríuna Æði, er einhleypur. Hann staðfestir þetta í samtali við Vísi.

Líf og fjör þegar lundapysjum var sleppt út á haf
Líf og fjör var um borð í Herjólfi í gær, þegar fjölskyldur úr Vestmannaeyjum drógu lundapysjur upp úr kössum og slepptu þeim á haf út. Pysjutímabilið hefst yfirleitt í seinnihluta ágúst í Eyjum, þegar pysjur leita inn í bæinn og villast út á götur og inn í garða.

Ítrekað með tárin í augunum á leið í vinnuna
Maren Brynja Kristinsdóttir segir mikilvægt að fólk þekki einkenni kulnunar og bregðist við áður en rauðu flöggin verði orðin of mörg. Maren varð sjálf orðin mjög lasin án þess að átta sig á því og lýsir því í Íslandi í dag hvernig einkennin voru farin að ágerast.

Segir fitubúninginn hafa bjargað
Breski stórleikarinn Ian McKellen segir að fitubúningur, sem hann klæddist til að leika Shakespeare-persónuna Falstaff, hafi bjargað honum þegar hann datt af leiksviði í Lundúnum í júní. Áverkarnir hefðu verið mun verri hefði hann ekki klæðst búningnum.

Guggur og gúmmíbátur hjá Guggu í gúmmíbát
„Þetta var án efa besti dagur lífs míns,“ segir áhrifavaldurinn Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát, sem fagnaði 21 árs afmæli sínu með stæl um helgina á skemmtistaðnum Hax. Patrik, Issi, HubbaBubba og DJ Bjarni K voru meðal tónlistaratriða og að sjálfsögðu var gúmmíbátur á svæðinu.

Jennifer Lopez sækir um skilnað
Mikið hefur verið rætt og ritað um stormasamt samband Hollywood-stjarnanna Jennifer Lopez og Ben Affleck undanfarið. Þrálátur orðrómur hefur verið uppi um margra vikna skeið um að sambandi þeirra sé svo gott sem lokið. Nú virðist sem að sá orðrómur hafi verið staðfestur.

Fimm sérbýli á Nesinu
Á fasteignavef Vísis er að finna fjölbreytt framboð af fasteignum af öllum stærðum og gerðum. Lífið á Vísi tók saman lista sem samanstendur af fimm sérbýlum á Seltjarnarnesi sem voru byggð í kringum árið 1970.

Ein glæsilegasta leikkona landsins á lausu
Leikkonan Ásthildur Úa Sigurðardóttir bætist í hóp glæsilegra einhleypra kvenna. Nýverið slitnaði upp úr sambandi Ásthildar og iðnmeistarans Þóris Hlyns Ríkharðssonar. Saman eiga þau eina dóttur.

Helgi Björns ber sig ekki eins vel milli ára
Óskar Magnússon rithöfundur og stjórnarformaður Eimskips er efstur á lista yfir tekjuhæstu listamenn landsins, annað árið í röð. Á listanum er að finna mörg kunnugleg nöfn, meðal annars Siggu Beinteinsdóttur söngkonu, Steinda jr. grínista og Örn Árnason leikara. Helgi Björnsson tónlistarmaður fer úr sæti næsttekjuhæsta listamannsins og niður í 26. sæti, miðað við greitt útsvar.