Tottenham án vand­ræða upp í efri hlutann

Sindri Sverrisson skrifar
Jean-Philippe Mateta fékk rautt spjald eftir þessa tæklingu í Micky van de Ven.
Jean-Philippe Mateta fékk rautt spjald eftir þessa tæklingu í Micky van de Ven. vísir/Guðmundur

Tottenham-menn voru manni fleiri í tæpar 80 mínútur gegn Crystal Palace í kvöld og áttu ekki í vandræðum með að vinna 2-0 sigur. Þar með eru þeir komnir upp í efri helming ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Michael Oliver var viss í sinni sök eftir að hafa kíkt á skjáinn og sýndi Mateta rautt spjald.vísir/Guðmundur

Róðurinn varð afar þungur fyrir Palace þegar framherjinn Jean-Philippe Mateta fékk rautt spjald fyrir sólatæklingu aftan í hásin Micky van de Ven á 12. mínútu. Michael Oliver var kallaður í varsjána og eftir að hafa skoðað atvikið lyfti hann rauða spjaldinu.

Jean-Philippe Mateta var skúrkur dagsins hjá Palace.vísir/Guðmundur

Archie Gray kom svo Tottenham yfir með skalla eftir hornspyrnu Mohammed Kudus á 25. mínútu og þó að Palace hafi fengið örfá færi til að jafna metin var í raun aldrei spurning hvernig færi eftir þetta.

Jan Paul van Hecke skoraði svo seinna mark Tottenham á 73. mínútu og þar með voru úrslitin ráðin. Van Hecke gerði þar afar vel því fyrri skalli hans var varinn en hann náði öðrum skalla, sitjandi á grasinu, og skoraði með honum.

Tottenham er nú með 12 stig í 8. sæti en Palace situr eftir í 18. sæti með sjö stig, enn í fallsæti vegna verri markatölu en Manchester United sem er í 17. sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira