Lífið

Átök en enginn hamagangur

Ég kenni og leiðbeini og ég legg áherslu á góða líkamsbeitingu, auka þolið og liðleika. Við förum í hugmyndafræði og mataræði líka...

Lífið

Tuttugu ára afmæli Tanna fagnað

„Tanni er í dag 10 manna fyrirtæki og veltan um 150 miljónir krónur á ári“ segir Guðjón Sigurbjartsson framkvæmdastjóri en Guðjón og Guðrún Barbara Tryggvadóttir kona hans hafa staðið bak við Tanna sem er tuttugu ára gamalt fyrirtæki sem einblínir á auglýsingavörur eins og fatnað, penna, derhúfur og fleira sem er merkt með lógóum og ýmsum skilaboðum. Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar Tanni fagnaði 20 ára afmæli á dögunum.

Lífið

Kjaftar um kynlíf í beinni

Hver man ekki eftir Dr. Love á sínum tíma? Þessi þáttur verður á svipuðum nótum þar sem hlustendur geta hringt inn og fengið svör," segir kynfræðingurinn Sigríður Dögg Arnardóttir en þann 10. september næstkomandi fer fyrsti útvarpsþáttur hennar, Kjaftað um kynlíf, í loftið á K100,5.

Lífið

Kvalinn Beckham

Það er ekki tekið út með sældinni að elta bolta allan liðlangan daginn eins og David Beckham, 37 ára...

Lífið

Saklausar en óþekkar

Það er ekki allt sem sýnist þegar kemur að óþekkum leikkonum í Hollywood. Þær eru þó nokkrar sem líta út fyrir að vera saklausar og ljúfar í alla staði - þar til annað kemur á daginn. Tayolor Swift sem hvorki reykir né drekkur...

Lífið

Seal gælir við brúnettu á lúxussnekkju

Seal, 49 ára, var myndaður á lúxussnekkju við Proto Cervo ströndina í Sardiníu ásamt ónefndri konu sem skoða má á myndunum. Vel fór á með þeim eins og sjá má. Seal tók nokkrar æfingar á meðan konan sleikti sólina. Á sama tíma skokkaði Heidi með lífverðinum, Martin Kristen, sem hún á að eiga í ástarsambandi við ef marka má slúðurheiminn. Myndirnar af Seal gæla við brúnettuna á lúxussnekkjunni voru teknar fyrir viku en hann steig fram síðustu helgi og húðskammaði Heidi fyrir að halda fram hjá honum með lílfverðinum áður en þau tóku ákvörðun um að skilja. Lífvörðurinn vann fyrir Heidi og Seal á meðan allt lék í lyndi.

Lífið

Stefnir á frekari fjölmiðlun

Edda Sif Pálsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV, stefnir á að starfa við fjölmiðlun í framtíðinni því hún hefur nú mastersnám í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands.

Lífið

Bono horfði á Sigur Rós

Bono og The Edge úr írsku hljómsveitinni U2 voru á meðal gesta á tónleikum Sigur Rósar á írsku tónlistarhátíðinni Electric Picnic síðastliðið föstudagskvöld.

Lífið

Pirruð á paparössum

Meðfylgjandi myndir voru teknar af Hollywoodparinu Blake Lively og Ryan Reynolds á Marco Polo flugvellinum í Feneyjum á Ítalíu. Þau gengu í sitthvoru lagi í gegnum flugvöllinn til að koma í veg að nærstaddir ljósmyndarar næðu að mynda þau en allt kom fyrir ekki þau fóru ekki framhjá nokkrum einasta manni.

Lífið

Þetta er lífið svo einfalt er það

Heiðrún Fitness Sigurðardóttir er nýbökuð móðir en hún eignaðist gullfallega stúlku í sumar. Lífið hafði samband við margfaldan fitnessmeistarann og spurði um móðurhlutverkið og breytinguna sem fylgir því. Þetta er lífið svo einfalt er það. Ég hefði aldrei trúað því hvað þetta er yndisleg tilfinning. Maður finnur svo sannarlega núna fyrir því hver tilgangur manns er í lífinu þegar maður á svona kríli og það fyndna við þetta allt er að um leið og maður fékk barnið í fangið þá vissi ég uppá hár hvað ég átti að gera. Ég var nett búin að fá í magann yfir að "kunna" ekki á þetta hlutverk. Breytingarnar sem fylgja því að verða mamma? Lífið hefur að sjálfögðu breyst mikið en samt ekki. Ég var bara vel undirbúin og hlakkaði svo til að takast á við þetta stóra hlutverk. Arna er svo vær og góð, sefur mikið og allar nætur svo það er auðvelt að halda sinni rútínu yfir daginn. Allt snýst um litlu snúllu og maður getur gleymt sér við það eitt að horfa á hana sofa. Nú voruð þið mæðgur í berjamó. Gekk það vel? Ég er svo mikil útivistarmanneskja og eyddi seinustu mánuðunum meðan ég var ólétt í að rækta grænmeti í garðinum í sveitinni minni og svo er alveg berjasjúk. Ég hef það frá mömmu minni. en við förum á hverju ári í berjamó. Í ár var engin breyting þar á. Ein bestu kaup sem ég hef gert var babybjorn magapoki fyrir börn. Skelli Örnu í hann, teppi yfir og svo bara af stað. Hún steinsefur meðan ég týni. Hún er draumabarn. Ég týndi rúma 10 lítra í dag og á pottþétt eftir að fara oftar.

Lífið

Hringarnir stækka með hverju hjónabandi

Dæmin sýna að demantshringarnir stækka í Hollywood þegar stjörnurnar giftast í annað sinn. Nicole Kidman fékk ekki trúlofunarhring frá Tom Cruise á sínum tíma heldur kýldu þau á giftingu jólin eftir að þau léku saman í myndinni Days of Thunder. Avril Lavigne fékk tíu sinnum stærri hring frá Chad Kroege miðað við hringinn sem eiginmaður hennar fyrrverandi, Deryck Whibley, gaf henni. Það sama á við Jessicu Simpson og að ekki sé minnst á Jennifer Lopez en Ben Affleck gaf henni 6,1 karata hring á sínum tíma en Marc Anthony gaf henni 8,2 karata hnullung sem hún var ánægð með - þar til hún losaði sig við hann. Reese Witherspoon er líka komin með flykki á baugfingur frá unnusta sínum Jim Toth en hringurinn sem Ryan Phillippe gaf henni er djókur ef þeir eru metnir í dollurum.

Lífið

Þór syngur með Frostrósum

Frostrósir hafa fengið góðan liðstyrk fyrir næstu jólavertíð því söngvarinn Þór Breiðfjörð, sem fékk Grímuverðlaunin fyrir frammistöðu sína í Vesalingunum, hefur bæst í hópinn. Hann verður því einn af aðalsöngvurum þessa vinsæla sönghóps fyrir næstu jól.

Lífið

Óttaslegin yfir árekstri

Eins og sjá má á myndunum var söngkonan Nicole Scherzinger, 34 ára, vægast sagt óttaslegin þegar unnusti hennar, Formúlu 1 ökumaðurinn Lewis Hamilton, 27 ára, lenti í árekstri í belgíska Grand Prix kappakstursmótinu í gær, sunnudag. Lewis gekk hinsvegar óskaddaður að því er virtist frá árekstrinum sem náðist að hluta á mynd sem skoða má hér til hliðar.

Lífið

Fæðing í jarðskjálfta

Stutt er síðan Fréttablaðið greindi frá trúlofun Kristjáns Guy Burgess, aðstoðarmanns Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra, og Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur, upplýsingafulltrúa í fjármálaráðuneytinu.

Lífið

Kysstust fyrir framan 37 þúsund manns

Kántrísöngvarinn Keith Urban og eiginkona hans, leikkonan Nicole Kidman, kysstust innilega á Us Open í New York. Ekki nóg með að kossinn hafi verið innilegur heldur voru vitnin hvorki meira né minna en 37 þúsund áhorfendur. Keith lét sig hafa það að teygja sig yfir manneskjuna sem sat á milli hjónanna sem hafði eflaust gaman af uppátækinu. Nicole og Keith hafa verið gift í sex ár en dætur þeirra, Sunday Rose og Faith voru fjarri góðu gamni. Kossinn má skoða betur í myndasafni. Lífið á Facebook.

Lífið

Lopez buzlar með unnusta og börnum

Söngkonan Jennifer Lopez buslaði í sundlaug á Miami við hótelið sem hún og unnusti hennar, dansarinn Casper Smart, og börnin hennar, tvíburarnir Max og Emme, dvelja á. Það lítur allt út fyrir að börnunum líki vel við kærasta mömmu þeirra en hann lék við Emme sem uni sér vel í lauginni. Þá kom parið einnig við á veitingahúsi í nágrenni við hótelið og fékk sér snarl. Ljósmyndarar sitja um Jennifer og fjölskylduna en hún er umvafin lífvörðum sem sjá til þess að enginn komi nálægt stjörnunni og hennar nánustu fjölskyldu.

Lífið