Lífið

Prestar búast við fjölda brúðkaupa 7.9.13

Jóna Hrönn Bolladóttir á von á fjölda brúðkaupa hinn 7. september á næsta ári.
Jóna Hrönn Bolladóttir á von á fjölda brúðkaupa hinn 7. september á næsta ári. fréttablaðið/valli
"Við prestar búumst við því að það gæti verið mikið af brúðkaupum þennan dag," segir Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Vídalínskirkju í Garðabæ.

Eitthvað er um að pör séu búin að bóka brúðkaup rúmlega ár fram í tímann, eða þegar laugardagurinn 7. september á næsta ári gengur í garð með dagsetningunni 7.9.13. Tölurnar tengjast gamalli hjátrú og eru mikið notaðar frá degi til dags.

"Ég hef heyrt fólk tala um að þetta verði örugglega heitur dagur," bætir Jóna Hrönn við. Hún er þegar búin að bóka eitt brúðkaup þennan dag en býst við því að þeim eigi eftir að fjölga þegar nær dregur. Í Garðakirkju í Garðabæ er þegar búið að bóka fjögur brúðkaup þennan dag og er því fullbókað eftir hádegi. "

Margir eru mjög hrifnir af einhverjum flottum tölustöfum fyrir brúðkaupsdaginn. Stundum stríði ég fólki og spyr hvort það sé gert til að koma í veg fyrir að brúðkaupsdagurinn gleymist," segir hún.

Aðrar vinsælar brúðkaupsdagsetningar í gegnum árin hafa verið 7.7.7, sem bar líka upp á laugardag, og 8.8.8. Nú virðist sem 7.9.13. muni bætast í þann hóp.

Að sögn Jónu Hrannar hefur brúðkaupum fjölgað mikið á haustin hér á landi, sérstaklega í september. "Ég finn töluverðan mun á því. Það eru svo margir sem eru í útilegum úti um allt á sumrin og það eru svo margir sem komast ekki í brúðkaupin. Ég hvet fólk oft til að velja ekki hásumarið. Svo er gamlársdagur líka alltaf vinsæll dagur."

- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.