Erlent
Staðfesta fuglaflensufaraldur á Fílabeinsströndinni Stjórnvöld á Fílabeinsströndinni hafa staðfest faraldur fuglaflensu í nágrenni borgarinnar Abidjan. Flensan sem er bráðsmitandi hefur skotið upp kollinum í nokkrum ríkjum Vestur-Afríkulöndum að undanförnu. Erlent 19.8.2021 14:11
Virkni bóluefna Pfizer og AstraZeneca gegn delta virðist dvína Greining á gögnum frá Bretlandi bendir til þess að virkni bóluefna Pfizer og AstraZeneca gegn delta-afbrigði kórónuveirunnar dvíni nokkuð að þremur mánuðum liðnum. Þau veita þó áfram sterka vernd gegn alvarlegum veikindum. Erlent 19.8.2021 12:53
Skutu á fólk sem fagnaði þjóðhátíðardegi Afgana Nokkrir eru sagðir látnir eftir að liðsmenn talibana leystu upp samkomu fólk sem fagnaði þjóðhátíðardegi Afganistans í borginni Asadabad í dag. Talibanar skutu á fólkið en ekki er ljóst hvort að þeir látnu féllu af völdum skotsára eða troðnings sem skapaðist þegar skotunum var hleypt af. Erlent 19.8.2021 10:32
Örvæntingin eykst á Haítí en stjórnvöld afþakka aðstoð Stjórnvöld á Haítí afþökkuðu aðstoð alþjóðlegra hjálparsamtaka vegna jarðskjálftans um helgina þrátt fyrir að erlendir hjálparstarfsmenn í landinu segi sjúkrahús á hamfarasvæðinu að mestu óstarfhæf og að skortur sé á lækningatækjum. Erlent 19.8.2021 09:20
Nýsjálensk börn verði bólusett Stjórnvöld á Nýja Sjálandi heimiluðu í gær að börn á aldrinum tólf til fimmtán ára verði bólusett en hingað til hafa einungis þeir sem náð hafa sextán ára aldri getað fengið bólusetningu í landinu. Erlent 19.8.2021 06:44
Íbúar Kabúl óttaslegnir Þótt Talibanar hafi gefið út almenna sakaruppgjöf í Afganistan og skorað á fólk að halda til vinnu eru margir íbúar höfuðborgarinnar Kabúl óttaslegnir og halda sig heima. Erlent 19.8.2021 06:29
Sér ekki hvernig hefði verið hægt að komast hjá ringulreið á flugvellinum Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að það sé vel hugsanlegt að bandarískir hermenn verði lengur í Afganistan en til 31. ágúst ef ekki hefur tekist að koma öllum Bandaríkjamönnum úr landinu fyrir þann tíma. Hann sér ekki hvernig hægt hefði verið að komast hjá ringulreið á flugvellinum í Kabúl síðasta mánudag. Erlent 19.8.2021 00:01
Sagði R. Kelly vera rándýr Saksóknari í máli bandaríska tónlistarmannsins R. Kelly dró upp mynd af honum sem algjöru rándýri sem krafðist yfirráða yfir þeim fjölmörgu kvenna og stúlkna undir lögaldri sem hann er sakaður um að hafa brotið á. Erlent 18.8.2021 22:58
Örvunarskammtar ríku þjóðanna eins og að útdeila öðru björgunarvesti á meðan aðrir drukkna án vestis Embættismenn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar eru harðorðir í garð þeirra þjóða sem byrjað hafa að útdeila örvunarskömmtum á bóluefni gegn kórónuveirunni á sama tíma og milljónir manna séu enn óbólusettir víða um heim. Er þessu líkt við það að gefa einstaklingum björgunarvesti númer tvö á sama tíma og aðrir séu án björgunarvestis. Erlent 18.8.2021 22:09
Íslendingurinn metinn óhæfur til að taka þátt í réttarhöldunum yfir honum Daníel Gunnarsson, Íslendingur búsettur í Bandaríkjunum sem grunaður er um morð í bænum Ridecrest í Kaliforníu, hefur verið metinn óhæfur til að taka þátt í réttarhöldunum yfir honum. Málsmeðferð hefur verið frestað þangað til Daníel fær meðferð með það að markmiði að hann verði metinn hæfur. DV greindi fyrst frá. Erlent 18.8.2021 20:32
Ghani kominn til furstadæmanna Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum staðfesta að Ashraf Ghani, forseti Afganistans, sé staddur þar. Ghani flúði heimalandið um helgina þegar talibarnar nálguðust höfuðborgina Kabúl. Erlent 18.8.2021 15:26
Herða tökin á netinu eftir mótmæli á Kúbu Kommúnistastjórnin á Kúbu hefur lagt fram nýjar og hertar reglur um samfélagsmiðla og internetið í kjölfar óvenjuáberandi mótmæla þar nýlega. Gagnrýnendur halda því fram að breytingunum sé ætla að þagga niður í andófsröddum. Erlent 18.8.2021 14:52
Mannfall í mótmælum gegn talibönum Að minnsta kosti þrír eru sagðir látnir eftir að liðsmenn talibana börðu niður mótmæli í borginni Jalalabad í austanverðu Afganistan í dag. Á annan tug manns hafi særst þegar talibanar skutu á mótmælendur. Erlent 18.8.2021 14:18
Mikil flóð eftir úrhelli í sænsku Dölunum Skemmdir hafa orðið á vegum og brúm og flætt hefur inn í íbúðarhús í miklum flóðum í kjölfar úrhellisúrkomu í Gävleborg og Dölunum í austanverðri Svíþjóð. Íbúar á svæðinu eru varaðir við því að vera á ferðinni nema alger nauðsyn krefji. Erlent 18.8.2021 11:22
Telur að talibanir þurfi að fá tækifæri til að sanna sig Yfirmaður breska hersins telur að talibanar þurfi að fá tækifæri til þess að mynda nýja ríkisstjórn í Afganistan og að hugsanlega verði þeir hófsamari en þeir voru þegar þeir réðu landinu á 10. áratug síðustu aldar. Erlent 18.8.2021 10:42
Hættur í þingflokknum í kjölfar ásakana um kynferðislega áreitni Danski þingmaðurinn Naser Khader hefur sagt sig úr Íhaldsflokknum. Þingmaðurinn greinir frá þessu á Facebook í dag. Erlent 18.8.2021 10:11
Telja sig nálgast tímamót í kjarnasamruna á tilraunastofu Bandarískir vísindamenn telja sig nú nálgast það markmið að búa til orku með kjarnasamruna á tilraunastofu. Í tilraun fyrr í þessum mánuði náði orkan sem varð til við samrunann 70% af orkunni sem fór í að framkalla hann. Erlent 18.8.2021 09:45
Réttarhöld yfir R. Kelly hefjast í dag Réttarhöld yfir tónlistarmanninum R. Kelly hefjast í dag með opnunarræðum sóknar- og varnaraðila. Fjöldi kvenna hefur sakað tónlistarmanninn um kynferðisbrot. Erlent 18.8.2021 09:41
Þrjátíu ár frá upphafi misheppnaðs valdaráns sovéskra harðlínumanna Þrjátíu ár eru í dag liðin frá upphafi misheppnaðs valdaráns harðlínumanna í sovéska Kommúnistaflokknum hinn 18. ágúst árið 1991. Erlent 18.8.2021 08:56
Ritstjóra saknað eftir húsleit í Minsk Ekkert hefur spurst til Irinu Levshynu, ritstjóra helstu sjálfstæðu fréttastofu Hvíta-Rússlands, eftir að lögregla gerði húsleit heima hjá henni í nótt. Samtök blaðamanna í landinu segja að í það minnsta þrjátíu blaðamenn sitji nú í fangelsi. Erlent 18.8.2021 08:51
WHO varar við falsbóluefnum og kallar eftir að þau verði tekin úr umferð Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) segist hafa orðið þess áskynja að falsbóluefni við kórónuveirunni væru í umferð í Indlandi og Afríku. Þeir skammtar sem vitað er af hafa verið teknir úr umferð. Erlent 18.8.2021 08:48
Meðlimir stúdentaráðs Háskólans í Hong Kong handteknir Lögregla í Hong Kong handtók í morgun fjóra meðlimi stúdentaráðs Háskólans í Hong Kong. Erlent 18.8.2021 07:34
Tæplega tvö þúsund manns hafi látist á Haítí Tala látinna og slasaðra eftir öflugan jarðskjálfta á Haíti á laugardag hækkar stöðugt. Nú er talið að tæplega tvö þúsund manns hafi látist og hefur sú tala hækkað um fimm hundruð á einum degi. Þá er eru tíu þúsund manns slasaðir. Erlent 18.8.2021 06:48
Leiðtogar Talibana koma úr felum Leiðtogar Talibana sem undanfarna áratugi hafa verið í felum og sjaldan veitt viðtöl nema með mikilli leynd, sýna sig nú hver á fætur öðrum opinberlega í Kabúl. Erlent 18.8.2021 06:40
Heilagir nemendur í þrjátíu ár Mikil ringulreið hefur ríkt í Afganistan undanfarna daga eftir að hersveitir Talibana náðu yfirráðum á höfuðborginni Kabúl og í raun landinu öllu. Þetta er fyrsta sinn í tuttugu ár sem Talibanar hafa haft raunveruleg völd í Afganistan eftir að þeir voru hraktir á brott af her Bandaríkjanna og bandamanna þeirra árið 2001. Erlent 18.8.2021 06:00
Fundu mörg hundruð látna til viðbótar í dag Staðfestum dauðsföllum eftir skjálftann sem reið yfir Haítí á laugardag fjölgaði mjög í dag. Opinberar tölur frá Haítí yfir fjölda látinni fóru úr 1.419 í morgun upp í 1.941 nú í kvöld. Ekki er ljóst hve margra er enn saknað. Erlent 17.8.2021 23:32
„Sunnudagurinn var hræðilegasti dagur lífs míns“ Afgönsk kona sem býr í Kabúl, höfuðborg Afganistan, og starfaði fyrir ríkisstjórnina sem þar var við völd áður en Talibanar tóku völdin segist óttast mjög um framtíðina undir stjórn Talibana. Erlent 17.8.2021 23:30
Fundu líkamsleifar í hjólahólfi vélar sem flaug frá Kabúl Rannsóknarnefnd á vegum bandaríska flughersins hefur ákveðið að hefja rannsókn á líkamsleifum sem fundust í hjólahólfi C-17 herflutningavélar, sem flaug af flugvellinum í Kabúl í gær. Erlent 17.8.2021 22:27
Allir þrír um borð taldir af eftir flugslys í Rússlandi Talið er að allir þrír sem voru um borð í tilraunaflugi rússneskrar herflugvélar hafi látist þegar hún hrapaði til jarðar á höfuðborgarsvæði Moskvu í dag. Atvikið náðist á myndband sem má sjá hér neðar í fréttinni. Erlent 17.8.2021 18:27
Reikna með stuttum réttarhöldum í máli Freyju Flemming Mogensen, 51 árs barnsfaðir Freyju heitinnar Egilsdóttur, hefur verið ákærður fyrir morðið á Freyju. Saksóknari reiknar með því að Flemming játi morðið fyrir dómi í Danmörku líkt og hann hafi gert á fyrri stigum. Erlent 17.8.2021 14:51