Erlent
Útilokar ekki frekari lokanir Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, útilokar ekki að landnemabyggðum á Vesturbakkanum verði lokað, þó ekki þeim stærstu. Ísraelsher flytur í næstu viku landnema af Gaza-ströndinni með valdi. Erlent 12.8.2005 00:01
Minntust sjóliða á Kursk Rússar minntust þess í dag að fimm ár eru liðin frá því að kjarnorkukafbáturinn Kursk, stolt Norðurflotans, sökk í Barentshafi. 118 sjóliðar fórust í sprengingunni sem varð um borð í bátnum. Getuleysi hersins í málinu olli miklu uppnámi í Rússlandi og fimm árum síðar er enn þá mörgum spurningum ósvarað. Minnisvarðar um áhöfnina voru afhjúpaðir víða í Rússlandi í dag. Erlent 12.8.2005 00:01
Fjórðungur vill kynlíf daglega Ný, bresk könnun leiðir í ljós að það sem skiptir góðan hluta breskra kvenna máli er kynlíf og það daglega. 27 prósent breskra kvenna svöruðu því til í könnun að þær vildu gamna sér daglega hið minnsta. Konur virðast jafnframt njóta kynlífsins betur nú en fyrir rúmum tíu árum, því 62 prósent aðspurðra sögðust fá fullnægingu. Það gengur því betur hjá þeim en breskum körlum, en aðeins hjá 54 prósentum þeirra lýkur ástarleikjum með fullnægingu. Erlent 12.8.2005 00:01
Robin Cook borinn til grafar Robin Cook, fyrrverandi utanríkisráðherra Bretlands, var borinn til grafar í dag. Gordon Brown fjármálaráðherra, minntist Cooks sem framúrskarandi þingmanns við jarðarförina þar sem allir helstu samstarfsmenn Cooks í gegnum tíðina og rjómi bresku stjórnmálaelítunnar var viðstaddur. Tony Blair var hins vegar ekki á meðal gesta þar sem hann er í sumarfríi og ákvað að breyta áætlunum sínum ekki til að vera við jarðarförina. Erlent 12.8.2005 00:01
Flugvöllurinn lamaðist Ófremdarástand skapaðist á Heathrow-flugvelli í Lundúnum í gær og í fyrrakvöld þegar flugvallarstarfsmenn fóru í skyndilegt samúðarverkfall. Tugþúsundir farþega komust hvorki lönd né strönd. Erlent 12.8.2005 00:01
Sjíar vilja sambandsríki Á mánudaginn rennur út fresturinn sem Írakar tóku sér til að semja stjórnarskrá. Sjíar virðast vera að snúast á sveif með Kúrdum um stofnun sambandsríkis en súnníar eru því mjög andsnúnir. Erlent 12.8.2005 00:01
Formsatriði var ekki fullnægt Danska innflytjendamálaráðuneytið hyggst vísa rússneskri konu, Elenu Jensen, 44 ára, og fimmtán ára gamalli dóttur hennar, úr landi. Erlent 12.8.2005 00:01
Flug komist í lag síðar í dag Búist er við að flug breska flugfélagsins British Airways komist í eðlilegt horf síðar í dag en félagið aflýsti öllu flugi frá Hethrow-flugvelli í Lundúnum í gær. Ástæðan var skyndilegt verkfall um eitt þúsund flugvallarstarfsmanna sem mótmæltu uppsgögnum starfsmanna flugeldhúsa á vellinum. British Airways flýgur um 550 ferðir til og frá Heathrow á degi hverjum og ferðast yfir eitt hundrað þúsund farþegar með vélum flugfélagsins. Erlent 12.8.2005 00:01
Sjaldgæf vískíflaska á 15 millj. Sjaldgæf flaska af írsku viskíi hefur verið boðin upp á Netinu og er lágmarksboð 100 þúsund sterlingspund, eða fimmtán milljónir íslenskra króna. Flaskan er frá síðari hluta nítjándu aldar og er talin sú síðasta sem eftir er frá Nunnueyjarbrugghúsinu í Galway-sýslu á Vestur-Írlandi. Það hætti framleiðslu árið 1913 og fyrir þá sem vilja reyna að tryggja sér flöskuna er slóðin á uppboðsvefnum whiskyandwines.com. Erlent 12.8.2005 00:01
Áframhaldandi mótmæli vegna Gasa Þúsundir manna söfnuðust saman í miðbæ Tel Aviv í Ísrael í gær til að mótmæla fyrirhuguðum brottflutningi Ísraela frá Gasa en yfir níu þúsund manns þurfa að yfirgefa heimili sín á mánudag og finna ný. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur verið harðlega gagnrýndur vegna ákvörðunar sinnar og voru yfir tvö þúsund lögreglumenn í viðbragðsstöðu. Erlent 12.8.2005 00:01
Norska stjórnin tapar fylgi Ríkisstjórnarflokkarnir í Noregi, undir stjórn Kjell Magne Bondevik, tapa verulegu fylgi í þingkosningum sem fara fram eftir mánuð, ef marka má skoðanakönnun norska dagblaðsins Aftenposten. Erlent 12.8.2005 00:01
Ísraelar íhuga aðgerðir gegn Íran Kjarnorkuáætlun Írana kemur illa við kauninn á Ísraelsmönnum sem íhuga aðgerðir til að trufla eða eyðileggja hana. Erlent 12.8.2005 00:01
Milljónir svelta heilu hungri Milljónir íbúa Afríkulýðveldisins Nígers svelta heilu hungri. Þurrkur og skæður engisprettufaraldur hefur eyðilagt uppskeruna þar samfellt í tvö ár með hörmulegum afleiðingum. Erlent 12.8.2005 00:01
Eltu meinta tilræðismenn Tveir egypskir lögreglumenn særðust í dag í bardaga við hóp vopnaðra manna sem grunaðir eru um aðild að sprengjutilræðinu í Sharm el-Sheikh í síðasta mánuði sem kostaði 64 lífið. Átökin urðu í helli á Sinai-skaga þar sem mennirnir höfðu falið sig. Lögreglan telur að þeir hafi verið fimmtán talsins. Einn þeirra var handtekinn og auk þess kona sem talin er vega eiginkona annars manns. Hinir sluppu. Erlent 12.8.2005 00:01
Alvarlegt umferðarslys í Mexíkó Að minnsta kosti tveir létust og yfir 40 slösuðust þegar vöruflutningabíll með eldfimt efni og lest rákust saman í gær í bænum Matamoros í Mexíkó sem er nálægt landmærum Bandaríkjanna. Mikil sprenging varð og gríðarlegur hávaði og titringur fannst í margra kílómetra fjarlægð. Þa tók slökkvilið margar klukkustundir að slökkva eldinn, finna hina meiddu og koma þeim í öruggt skjól en mikill reykur var á svæðinu sem gerði björgunarmönnum erfitt fyrir. Erlent 12.8.2005 00:01
Rómaborg brennur á ný Yfirvöld í Róm á Ítalíu leita nú logandi ljósi að brennuvargagengi sem farið hefur um borgina að næturlagi og kveikt í farartækjum. Alls hafa 200 bílar og vélhjól brunnið í borginni síðastliðinn mánuð, en sumir bílanna hafa sprungið í loft upp með tilheyrandi skemmdum á nærliggjandi húsum. Engan hefur þó sakað í brununum hingað til en yfirvöld segja það aðeins tímaspursmál hvenær það gerist. Erlent 12.8.2005 00:01
Handtekinn nærri höfuðstöðvum SÞ Bandaríkjamaður var í gær handtekinn fyrir að reyna að komast inn í bílageyslu nærri höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York með stóran bensínbrúsa og tvær byssur í bíl sínum. Frá þessu greindu talsmenn Sameinuðu þjóðanna og lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum í dag. Erlent 12.8.2005 00:01
Hungursneyð vofir yfir Malí Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna ítrekaði í dag beiðni sína til þjóða heims um aðstoð vegna hungrsneyðar í ríkjum í Vestur-Afríku. Sagði talskona stofnunarinnar að brýn þörf væri fyrir matvæli í Malí ef ekki ætti að fara jafnilla þar og í nágrannaríkinu Níger þar sem fjöldi fólks hefur látist úr hungri vegna þess að hjálp barst ekki í tæka tíð. Erlent 12.8.2005 00:01
Utanríkisráðherra ráðinn af dögum Friðarhorfur á Srí Lanka versnuðu enn þegar Lakshman Kadirgamar utanríkisráðherra var ráðinn af dögum í gær. Kadirgamar var skotinn til bana af leyniskyttum skömmu eftir að hann steig upp úr sundlaug við heimili sitt. Tvö skot hæfðu hann, annað í höfuðið og hitt í hjartað. Erlent 12.8.2005 00:01
Danir flæktir í síldardeilu Danir hafa flækst inn í deilu Íslendinga og Norðmanna um kvótaskiptingu úr norsk-íslenska síldarstofninum. Hans Christian Schmidt ráðherra sjávarúrvegs-, matvæla- og landbúnaðarmála Danmerkur er nú staddur hér í vinnuferð til þess að leita málamiðlunar í deilunum. Erlent 12.8.2005 00:01
Má ekki snúa aftur til Bretlands Bresk yfirvöld hafa bannað harðlínuklerknum Omar Bakri Mohammed að snúa aftur til Bretlands, en hann yfirgaf landið skömmu eftir hryðjuverkaárásirnar á Lundúnir. Hann var handtekinn í Líbanon í gær og var í fyrstu talið að bresk yfirvöld hefðu óskað eftir því en þau neita því. Erlent 12.8.2005 00:01
Kjöt framleitt án dýra Hægt verður innan tíðar að rækta kjöt án þess að dýr komi þar við sögu, að sögn breska líffræðingsins Brians J. Ford, en hann segi tækni sem gerir kleift að rækta kjöt úr dýrafrumum þegar fyrir hendi. Ár gætu þó enn liðið þar til kjöt framleitt á þennan hátt kemur á markaði. Erlent 12.8.2005 00:01
Umboð sveitar SÞ í Írak framlengt Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna framlengdi umboð sveitar sem er við störf á vegum Sameinuðu þjóðanna í Írak um eitt ár í gær. Ákvörðunin var samþykkt samhljóða af þeim 15 ríkjum sem eiga sæti í ráðinu. Alls eru um 340 erlendir, borgaralegir starfsmenn við störf á vegum Sameinuðu þjóðanna í Írak og 470 heimamenn. Erlent 12.8.2005 00:01
Biðst afsökunar á mútuhneyksli Forseti Brasilíu, Luis Inacio Lula, hefur beðið þjóðina fyrirgefningar á mútuhneyksli sem hefur orðið þess valdandi að ríkisstjórn hans riðar til falls. Í sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar sagði Lula að ríkisstjórnin og Verkamannaflokkurinn þyrfti að biðja þjóðina afsökunar. Hann fullyrti jafnframt að hann hefði ekki vitað um múturnar. Erlent 12.8.2005 00:01
Dönsku eftirlaunalögunum breytt Aukinn meirihluti danska þingsins hyggst greiða atkvæði með því að lögum um eftirlaun verði breytt svo eftirlaunaþegum verði gert kleift að stunda hlutastarf án þess að það hafi of mikil áhrif á eftirlaun þeirra. Erlent 12.8.2005 00:01
Hækkuðu fargjöld vegna olíuverðs Olíuverð hækkaði enn í Bandaríkjunum í gær og komst í 66 dollara fyrir tunnuna. Þrjú bandarísk flugfélög brugðust í gær við hækkununum með því að hækka fargjöld. Ekki liggur fyrir hvernig Flugleiðir bregðast við en við svipaðar aðstæður hafa ýmis evrósk flugfélög brugðist við með því að leggja svonefnt olíugjald á hvern farseðil án þess að kalla það beinlínis hækkun. Erlent 12.8.2005 00:01
Hundruð flugferða falla niður Tugþúsundir farþega British Airways eru strandaglópar vegna skyndiverkfalla á Heathrow-flugvelli. Félagið hefur þurft að fella niður hundruð flugferða fyrir vikið. Erlent 12.8.2005 00:01
NASA sendir könnunarfar til Mars Geimferðarstofnun Bandaríkjanna, NASA, sendi í morgun könnunarfar á loft sem halda á til Mars. Geimskotinu hafði verið frestað í tvígang vegna minni háttar tæknivandamála í Atlas 5 eldflauginni, sem ætlað er að flytja könnunarfarið til Mars, en rétt fyrir hádegi þaut hún af stað upp í himingeiminn áleiðis til plánetunnar rauðu. Erlent 12.8.2005 00:01
Hluti ránsfengsins fundinn Lögregla hefur fundið örlítinn hluta ránsfengsins sem stolið var úr Banco Central í borginni Fortaleza fyrr í vikunni. Erlent 12.8.2005 00:01
Segjast ekki leggja niður vopn Félagar í Hamas-samtökunum munu ekki leggja niður vopn þrátt fyrir brotthvarf Ísraelshers og landnema frá Gasaströndinni. Þetta segja talsmenn samtakanna og bæta því við að vopnuð barátta gegn Ísraelsríki muni halda áfram. Það er meðal takmarka Hamas að tortíma Ísrael og koma á fót íslömsku trúarríki sem næði yfir Vesturbakkann, Gasaströndina og það svæði sem Ísraelsríki nær nú yfir. Erlent 12.8.2005 00:01