Flugvöllurinn lamaðist 12. ágúst 2005 00:01
Ófremdarástand skapaðist á Heathrow-flugvelli í Lundúnum í gær og í fyrrakvöld þegar flugvallarstarfsmenn fóru í skyndilegt samúðarverkfall. Tugþúsundir farþega komust hvorki lönd né strönd. Yfir þúsund starfsmenn British Airways á Heathrow ákváðu að leggja niður störf á fimmtudagskvöld eftir að 800 starfsmönnum Gate Gourmet veitingaþjónustunnar var sagt upp í sparnaðarskyni, en þeir eru í sama verkalýðsfélagi. Í kjölfarið varð British Airways að aflýsa öllum ferðum til og frá flugvellinum næsta sólarhringinn, svo og flugfélögin Quantas, Finnair, British Mediterranean og Sri Lankan Airlines sem öll kaupa þjónustu af British Airways. Farþegar Icelandair lentu hins vegar ekki í vandræðum þar sem aðrir annast vélar þeirra og farþega. Fella þurfti niður 550 ferðir frá flugvellinum í gær og voru 70.000 manns strandaglópar víða um heim af völdum verkfallsins. Talið er að British Airways hafi tapað 1,15 milljarði króna vegna þess. Um það bil þúsund farþegar urðu að eyða aðfaranótt föstudagsins á Heathrow og þeir voru að vonum afar óhressir með það. "Ég er of kurteis kona til að færa í orð hvað mér finnst um British Airways," sagði Daphne Morley, frá Ástralíu, en hún hafði ætlað að ná tengiflugi í Lundúnum til Pétursborgar í Rússlandi. "Farangurinn okkar er einhvers staðar í buskanum, við getum ekki einu sinni skipt um föt." Síðdegis í gær sneru starfsmennirnir svo aftur til sinna starfa og um kvöldmatarleytið tóku svo fyrstu flugvélarnar að fara í loftið frá flugvellinum.
Erlent Fréttir Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira