Erlent
Augusto Pinochet handtekinn í Chile Erlent 30.10.2006 16:39 Spænska ríkisstjórnin tortryggir Baska Spænska ríkisstjórnin vill frekari sannanir fyrir því að aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA sé hætt ofbeldisverkum, áður en hún gengur til friðarviðræðna. Erlent 30.10.2006 16:07 Danskar konur gagnrýnni á Íraksstríðið en karlar Danskar konur eru mun gagnrýnni á veru dansks herliðs í Írak en karlar samkvæmt nýrri könnun sem rannsóknarstofnin Catinét hefur gert fyrir Ritzau-fréttastofuna. Tæplega 57 prósent danskra kvenna telur að aldrei hefði átt að senda hermenn til Írak en 27 prósent eru á öndverðri skoðun. Erlent 30.10.2006 15:27 Vill leggja niður Norðurlandaráð Norðurlandaráð hefur engin völd og leggja ætti það niður, skrifar sænska dagblaðið Dagens Nyheter. Stjórnmálamenn úr öllum flokkum bera hins vegar lof á norrænt samstarf. Erlent 30.10.2006 15:20 Ástarnorn varð að endurgreiða þóknun Þýsk kona hefur unnið mál gegn "Ástarnorn" sem hafði þegið fé fyrir að fá kærasta konunnar til að snúa til hennar aftur, eftir að slitnaði upp úr sambandinu Erlent 30.10.2006 14:41 Kafa í skipsflak Svartskeggs sjóræningja Bandarískir fornleifafræðingar eru nú að kafa undan ströndum Norður-Karólínu, til þess að skoða skipsflak sem þeir telja vera flaggskip Svartskeggs sjóræningja. Erlent 30.10.2006 14:17 Forseti Ísraels neitar að víkja Moshe Katsav, forseti Ísraels, hefur neitað að segja af sér meðan saksóknarar skoða hvort eigi að leggja fram ákærur á hendur honum um nauðganir og kynferðislega áreitni. Erlent 30.10.2006 13:44 Vilja að múslimaklerkur dragi sig í hlé Hart er lagt að áströlskum múslimaklerki að segja af sér, eftir að hann lýsti því yfir í predikun að fáklæddar konur væru að biðja um að þeim væri nauðgað. Erlent 30.10.2006 13:21 Beðið úrslita í Kongó Síðari umferð forsetakosninganna í Kongó fór fram í gær og stóð baráttan milli sitjandi forseta og fyrrverandi leiðtoga uppreisnarmanna. Þetta voru fyrstu lýðræðislegu kosningarnar í landinu rúma fjóra áratugi. Verið er að telja atkvæði nú og endanlegra úrslita að vænta í lok vikunnar. Erlent 30.10.2006 13:15 Hungruðum fækkar ekki Tíu árum eftir að leiðtogar heimsbyggðarinnar strengdu þess heit að fækka hungruðum um helming, hefur lítið gerst, samkvæmt nýrri skýrslu Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Erlent 30.10.2006 13:10 « ‹ ›
Ný lög sögð í mótsögn við mannréttindi Hin umdeildu lög sem sett voru í Bandaríkjunum á dögunum um réttarstöðu meintra hryðjuverkamanna og að mál þeirra verði sótt fyrir herdómstólum, samræmist ekki alþjóðlegum mannréttindasáttmálum. Þetta er mat Martins Scheinin, sérfræðings Sameinuðu þjóðanna í stöðu mannréttinda í „stríðinu gegn hryðjuverkum“. Erlent 31.10.2006 06:15
Bandaríkjamenn stunda ekki pyntingar George Bush Bandaríkja-forseti segir Bandaríkin ekki stunda pyntingar á föngum, þrátt fyrir orð vara-forsetans Dick Cheney þess efnis að það geti hjálpað til við yfirheyrslur að „dýfa föngunum í vatn“. Þetta var haft eftir varaforsetanum í útvarpsviðtali á dögunum. Erlent 31.10.2006 06:00
Fara utan til að læra til læknis Svíar sækja í auknum mæli út fyrir landsteinana til að læra læknisfræði þar sem sænska menntakerfið nær ekki að anna eftirspurninni og það þrátt fyrir að gert séð ráð fyrir stöðugt fleiri nemendum. Ákveðið hefur verið að tæplega 1.500 hefji nám í læknisfræði í Svíþjóð haustið 2007 eða um 60 fleiri en hófu nám í ár. Erlent 31.10.2006 05:00
Lögreglan nær miðborginni á sitt vald Alríkislögreglan í Mexíkó náði í gær miðborginni í Oaxaca á sitt vald og ruddi burt kennurum og öðrum mótmælendum sem hafa hafst þar við undanfarna fimm mánuði. Erlent 31.10.2006 04:00
Pinochet í stofufangelsi Einræðisherrann fyrrverandi, Augusto Pinochet, var í gær hnepptur í stofufangelsi í heimalandi sínu Chile. Erlent 31.10.2006 03:00
Viðvarandi rafmagnsleysi í Írak vegna árása Leyniskyttur og morðhótanir gera það að verkum að rafvirkjar í Írak fást ekki lengur til að gera við rafmagnslínur í höfuðborginni. Ekki hefur tekist að gera við aðveitulínur til höfuðborgarinnar vegna ofbeldismanna sem hóta iðnaðarmönnum. Íbúar Bagdad fá því stundum ekki rafmagn nema í tvo tíma á dag. Erlent 30.10.2006 23:39
Glasaungar til bjargar kóalakyninu Vísindamenn í Ástralíu kynntu í dag hóp af ungum kóalabjörnum sem eru afrakstur nýrrar glasafrjóvgunartækni. Kóalabirnir eru ekki í bráðri útrýmingarhættu en náttúruverndarstofnanir hafa tegundina þó á gátlista. 25 glasaungar hafa nú litið dagsins ljós, vísindamönnum og kóalaunnendum til mikillar gleði. Erlent 30.10.2006 23:30
3 milljónir Íraka á vergangi vegna átakanna Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna áætlar að um 3 milljónir flóttamanna hafi flúið heimili sín til þess að reyna að komast burt frá átakasvæðum í Írak. Aðrar hjálparstofnanir giska á svipðar tölur og allar telja að flóttamannastraumurinn fari sífellt vaxandi. Rúmlega 1,6 milljónir hafa flúið heimalandið en litlu færri eru á vergangi í Írak. Erlent 30.10.2006 22:39
Bretaprins hættir við að heimsækja Peshawar Karl Bretaprins hefur aflýst ferð sinni og Kamillu konu sinnar til Peshawar í norðvesturhluta Pakistans, samkvæmt ráðleggingum frá pakistönskum yfirvöldum. Opinberlega var engin ástæða gefin fyrir breytingunni önnur en ráðleggingar pakistanskra stjórnvalda, en líklega var óttast um öryggi prinsins eftir að sprengjuárás á grunnskóla varð 80 manns að bana í dag. Erlent 30.10.2006 22:15
73ja kílóa þungur skötuselur Norsk hjón settu heldur betur í þann stóra þegar þau lönduðu 73ja kílóa þungum skötusel í Þrándheimsfirði í gær. Eftir því sem segir á fréttavefnum skip.is er þetta einn stærsti skötuselur sem sögur fara af. Fiskurinn var 165 sm að lengd. Lögreglan á staðnum var fengin til að vigta fiskinn svo enginn dirfðist að véfengja fiskisöguna. Erlent 30.10.2006 22:00
Atvinnuleysi í Frakklandi ekki minna í 5 ár Atvinnuleysi í Frakklandi í september mældist hið lægsta í fimm ár, 8,8%. Þetta eru góðar fréttir fyrir ríkisstjórn Dominique de Villepins, sem hefur lagt einna mesta áherslu á að auka atvinnutækifæri. Atvinnuleysi í Frakklandi hefur minnkað um rúmlega eitt prósentustig á einu og hálfu ári, þó að ungt fólk eigi enn nokkuð erfitt með að fá vinnu. Erlent 30.10.2006 21:45
Spánverji laus úr haldi palestínskra mannræningja Spænskur maður sem vinnur hjá hjálparstofnun á Gaza-ströndinni í Palestínu var látinn laus úr haldi mannræningja sem rændu honum úr bíl hans fyrr í dag. Manninum var rænt rétt við Khan Younis í suðurhluta Palestínu. Spánverjinn, Roberto Villa Sexto, sem er 32ja ára, hefur unnið við hjálparstarf í Palestínu í tvö ár. Erlent 30.10.2006 21:30
Olmert styrkir stöðu ísraelsku stjórnarinnar Ísraelska ríkisstjórnin samþykkti í dag tillögu Ehuds Olmerts, forsætisráðherra, um samstarf við hinn þjóðernissinnaða Yisrael Beitenu-flokk. Telja stjórnmálaskýrendur að það torveldi mögulegar friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna. Með tilkomu nýrra þingmanna eykst meirihluti ríkisstjórnarinnar um ellefu þingsæti. Erlent 30.10.2006 20:45
Nýtt fangelsi fyrir sex fanga á Pitcairn Bresk fangelsismálayfirvöld tilkynntu í gær að fljótlega yrði hafist handa við fangelsisbyggingu á eyjunni Pitcairn í Kyrrahafinu. Fangelsið er sérstaklega byggt fyrir sex eyjaskeggja sem voru dæmdir til fangavistar fyrir kynferðisafbrot í vor. Þessir sex eyjaskeggjar eru 10% af heildaíbúafjölda eyjarinnar. Erlent 30.10.2006 20:30
Varar við skiptingu Íraks og brotthvarfi Bandaríkjamanna Skipting Íraks myndi leiða til þjóðernishreinsana og gríðarmikilla bardaga á milli trúarhópa, að mati sendiherra Sádi-Arabíu í Bandaríkjunum. Hann varar einnig Bandaríkjamenn við því að yfirgefa Írak án fyrirvara. "Fyrst Bandaríkjamenn komu óboðnir til Íraks, ættu þeir ekki að fara frá Írak óboðnir," sagði furstinn Turki al-Faisal á blaðamannafundi eftir ræðu sem hann hélt í Washington í dag. Erlent 30.10.2006 19:53
Styttist í að Rússar geti gengið í WTO Embættismenn í Bandaríkjunum og Rússlandi segjast vera að ljúka samkomulagi sem gerir Rússum kleift að þiggja 13 ára gamalt boð um að ganga í Alþjóðaviðskiptastofnunina WTO. Tvíhliða samningar við Bandaríkin eru þrætuepli sem hefur í 13 ár hindrað það að Rússland gangi í Alþjóðaviðskiptastofnunina. Erlent 30.10.2006 19:45
Ekstrablaðið heldur áfram að sverta íslensk fyrirtæki Geir Haarde forsætisráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra gefa lítið fyrir skrif danska Ekstrablaðsins um íslenska kaupsýslumenn. Ekstrablaðið skrifar í dag um danskan lögfræðing í stjórn íslenskra fyrirtækja og bendlar hann við peningaþvætti. Erlent 30.10.2006 19:15
Alheimskreppa ef ekkert að gert Breskur hagfræðingur spáir alvarlegri alheimskreppu ef ekkert verði að gert til að stemma stigu við loftslagsbreytingum. Aðgerðaleysi geti kostað tæplega fimm hundruð billjónir króna. Íslenskur sérfræðingur í orku- og auðlindahagfræði segir skýrslu um málið, sem unnin var fyrir bresk stjórnvöld, ítarlega og að taka beri hana alvarlega. Erlent 30.10.2006 19:00
Hisbollah vill nýja ríkisstjórn Líbönsku samtökin Hisbollah ætla að reyna allar diplómatískar leiðir til að mynda nýja ríkisstjórn, meðal annars með afsögn tveggja ráðherra flokksins og mótmælum á götum úti. Þingflokksformaður Hisbollah tilkynnti þetta í dag eftir viðræður með tveimur stærstu stjórnarandstöðuflokkunum í líbanska þinginu. Erlent 30.10.2006 17:55
Berlusconi fyrir rétt Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, hefur verið stefnt fyrir rétt vegna ákæru um spillingu. Saksóknari í Mílanó sakar Berlusconi um að greiða breska lögfræðingnum David Mills jafnvirði rúmlega fjörutíu og einnar milljónar íslenskra króna fyrir að þegja um eignarhald á fjölmiðlaveldi Berlusconis þegar hann var kallaður til vitnis í öðru máli. Báðir neita ásökununum. Erlent 30.10.2006 17:41
Spænska ríkisstjórnin tortryggir Baska Spænska ríkisstjórnin vill frekari sannanir fyrir því að aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA sé hætt ofbeldisverkum, áður en hún gengur til friðarviðræðna. Erlent 30.10.2006 16:07
Danskar konur gagnrýnni á Íraksstríðið en karlar Danskar konur eru mun gagnrýnni á veru dansks herliðs í Írak en karlar samkvæmt nýrri könnun sem rannsóknarstofnin Catinét hefur gert fyrir Ritzau-fréttastofuna. Tæplega 57 prósent danskra kvenna telur að aldrei hefði átt að senda hermenn til Írak en 27 prósent eru á öndverðri skoðun. Erlent 30.10.2006 15:27
Vill leggja niður Norðurlandaráð Norðurlandaráð hefur engin völd og leggja ætti það niður, skrifar sænska dagblaðið Dagens Nyheter. Stjórnmálamenn úr öllum flokkum bera hins vegar lof á norrænt samstarf. Erlent 30.10.2006 15:20
Ástarnorn varð að endurgreiða þóknun Þýsk kona hefur unnið mál gegn "Ástarnorn" sem hafði þegið fé fyrir að fá kærasta konunnar til að snúa til hennar aftur, eftir að slitnaði upp úr sambandinu Erlent 30.10.2006 14:41
Kafa í skipsflak Svartskeggs sjóræningja Bandarískir fornleifafræðingar eru nú að kafa undan ströndum Norður-Karólínu, til þess að skoða skipsflak sem þeir telja vera flaggskip Svartskeggs sjóræningja. Erlent 30.10.2006 14:17
Forseti Ísraels neitar að víkja Moshe Katsav, forseti Ísraels, hefur neitað að segja af sér meðan saksóknarar skoða hvort eigi að leggja fram ákærur á hendur honum um nauðganir og kynferðislega áreitni. Erlent 30.10.2006 13:44
Vilja að múslimaklerkur dragi sig í hlé Hart er lagt að áströlskum múslimaklerki að segja af sér, eftir að hann lýsti því yfir í predikun að fáklæddar konur væru að biðja um að þeim væri nauðgað. Erlent 30.10.2006 13:21
Beðið úrslita í Kongó Síðari umferð forsetakosninganna í Kongó fór fram í gær og stóð baráttan milli sitjandi forseta og fyrrverandi leiðtoga uppreisnarmanna. Þetta voru fyrstu lýðræðislegu kosningarnar í landinu rúma fjóra áratugi. Verið er að telja atkvæði nú og endanlegra úrslita að vænta í lok vikunnar. Erlent 30.10.2006 13:15
Hungruðum fækkar ekki Tíu árum eftir að leiðtogar heimsbyggðarinnar strengdu þess heit að fækka hungruðum um helming, hefur lítið gerst, samkvæmt nýrri skýrslu Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Erlent 30.10.2006 13:10