Erlent
Gleðileg jól Erlent 15.12.2006 16:31 Ávirðingar hlaðast upp á nýjan ráðherra Carina Christensen, hinn nýi fjölskyldu- og neytendaráðherra Danmerkur, náði ekki að klára einn dag í embætti áður en fjölmiðlar voru búnir að grafa upp meintar ávirðingar á hana. Christensen, sem er 34 ára gömul á og rekur húsgagnaverksmiðju á Fjóni. Erlent 15.12.2006 16:23 Flotadeild til höfuðs flóttamönnum Leiðtogar Evrópusambandsins hafa samþykkt að stofna sérstaka flotadeild til þess að koma í veg fyrir að ólöglegir inn flytjendur frá Afríku nái að suðurströndum aðildarríkjanna. Einnig verður stofnuð viðbragðssveit landamæravarða sem hægt er að senda á vettvang með litlum fyrirvara. Erlent 15.12.2006 15:20 Offita að setja Bretland á hausinn Læknar í bresku heilbrigðisþjónustunni segja að sívaxandi offita þjóðarinnar, geti gert þjónustuna gjaldþrota á næstu árum. Samkvæmt nýjustu tölum er offita meiri í Bretlandi en nokkru öðru Evrópuríki. Þar er einn af hverjum fimm fullorðnum of þungur, og læknarnir segja að það geti farið upp í einn af hverjum þremur, ef ekkert verði að gert. Erlent 15.12.2006 14:42 Í værum svefni Breskur kaupsýslumaður hefur verið dæmdur til 180 klukkustunda samfélagsþjónustu og til að greiða sjötíu og fimm þúsund króna sekt fyrir að tefja lestarsamgöngur í grennd við borgina Epsom í suðurhluta landsins. Erlent 15.12.2006 13:51 Forsetakosningar í Rússlandi 2. mars 2008 Ákveðið hefur verið að flýta forsetakosningum sem fram eiga fara í Rússlandi 2008 um viku. Það er gert vegna þess að almennan frídag ber upp á daginn fyrir kosningarnar. Erlent 15.12.2006 13:00 Svaf vært á teinunum Breskur maður á yfir höfði sér allt að sex mánaða fangelsisdóm eftir að hann sofnaði á lestarteinum fyrr á þessu ári. Erlent 15.12.2006 13:00 Átök á milli Hamas og Fatah á heimastjórnarsvæðum í morgun Liðsmenn Hamas saka Fatah-hreyfinguna um að hafa sýnt Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, banatilræði við landamærin að Gaza í gærkvöld. Til átaka kom á milli liðsmanna Hamas og Fatah á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna í morgun. Erlent 15.12.2006 12:45 « ‹ ›
Verði seld á bensínstöðvum Norsku læknasamtökin hafa hvatt til þess að neyðargetnaðarvarnarpillan verði seld á bensínstöðum og í matvörubúðum, en ekki bara í apótekum eins og nú er raunin, svo auðveldara sé að koma í veg fyrir óæskilega þungun hjá yngri konum, hefur Aftonbladet eftir Steinar Madsen yfirlækni hjá samtökunum. Erlent 16.12.2006 05:15
Reynir að blása lífi í friðarferlið Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hélt í gær til Tyrklands og ætlar að halda þaðan áfram til Mið-Austurlanda. Erlent 16.12.2006 04:45
Þekkja ekki merki Rauða krossins Írak, AP Starfsmönnum Rauða krossins stafar meiri hætta af bandarískum hermönnum í Írak en átökunum þar í landi. Ástæðan er sú að fjölmargir þeirra þekkja enn ekki merki stofnunarinnar, sem í löndum íslamstrúar er rauður hálfmáni í staðinn fyrir kross. Erlent 16.12.2006 04:15
Mótmæla stjórnarfari Pútíns í Rússlandi Andstæðingar Pútíns Rússlandsforseta ætla ótrauðir að koma saman og ganga fylktu liði um götur Moskvuborgar í dag, þrátt fyrir að stjórnvöld hafi bannað samkomuna. Erlent 16.12.2006 03:45
Eitur hugsanlegt banamein Kennsl hafa verið borin á lík fimmtu konunnar sem fundist hefur myrt í þessum mánuði í Suffolk í Bretlandi. Reyndist þar um 29 ára gamla vændiskonu að ræða, Annette Nichols, sem saknað hefur verið síðan 4. desember. Erlent 16.12.2006 01:15
Bardagar í Gaza og Ramallah Liðsmenn úr Hamas og Fatah, tveimur helstu fylkingum Palestínumanna, skiptust á skotum bæði í Gaza-borg og í Ramallah í gær, daginn eftir að skotið var á Ismail Haniheh, forsætisráðherra Palestínustjórnar, þegar hann var á leiðinni heim til Gaza. Erlent 16.12.2006 00:15
Reyna sveigjanleika í Norður-Kóreu Bandaríkjamenn munu hugsanlega reyna að vera sveigjanlegir í næstu viku þegar kemur að sexhliða viðræðum við Norður-Kóreumenn. Þetta sagði Condoleezza Rice í dag í viðtali við Reuters og bætti við að fundurinn í næstu viku væri aðeins hluti af lengra viðræðuferli og ekki megi gefast upp þó á móti blási á fyrsta fundi. Erlent 15.12.2006 23:30
Bréfin frá Bandaríkjunum biðu í 7 ár Rússneskir bréfberar hafa hafist handa við að bera út fjögur og hálft tonn af bréfum og pökkum sem voru send frá Bandaríkjunum árið 1999. Ríkisrekin póstþjónustan í Rússlandi segir bið bréfanna ekki sína sök heldur skellir skuldinni á hafnaryfirvöld í Finnlandi, þar sem gámurinn með póstinum "gleymdist" í 7 ár. Erlent 15.12.2006 23:30
Hetjutenórinn ber við lágum blóðsykri Roberto Alagna, tenórinn frægi sem hljóp af sviðinu á La Scala óperunni í miðri aríu þegar áhorfendur bauluðu á hann, ber því við að hann þjáist af lágum blóðsykri og hafi því ekki getað klárað atriðið eða sýninguna. Hann ætlar að kæra óperuna fyrir að hafa rekið sig úr sýningunni. Erlent 15.12.2006 23:30
Ólga um nýjan ráðherra í Danmörku Sama dag og Carina Christensen er skipuð í embætti neytendaráðherra í Danmörku í stað Lars Barfoeds, sem sagði af sér á miðvikudaginn, er búið að ata hana auri í dönsku blöðunum. Vinnueftirlitið hefur gert athugasemdir við húsgagnaverksmiðju sem hún rekur og samkeppnisaðili hefur stefnt fyrirtækinu fyrir iðnstuld. Erlent 15.12.2006 22:32
Lyfin láku úr æðunum Ónákvæmni í stungu sprautunnar leiddi til rúmlega hálftíma langs dauðastríðs dauðadæmds fanga. Niðurstöður krufningar leiddu í ljós að sprautunálinni var stungið í gegnum æðarnar í bæði skiptin sem maðurinn var sprautaður og þannig láku lyfin út fyrir æðarnar. Flestir deyja á örfáum mínútum eftir slíka sprautu Erlent 15.12.2006 21:49
Bin Laden kampavín í glösin um áramótin Perúskir bruggarar hafa skipt út andliti jólavínsins á flöskunum: í staðinn fyrir að jólasveinninn brosi framan í fólk er álíka skeggjaður karl en ekki jafn góðlegur kominn í staðinn. Og nafnið hans stendur líka á flöskunum: Bin Laden Kampavín! Yfirvöld hafa hins vegar hellt niður kössum af Osama-drykknum og segja hann óhæfan til manneldis. Erlent 15.12.2006 21:34
Rice safnar fyrir Palestínu Condoleezza Rice ætlar að biðja öldungadeild Bandaríkjaþings um 700 milljónir íslenskra króna til handa Palestínumönnum til að hjálpa ríkisfjárhagnum þar á réttan kjöl. Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Hamas, var í gær meinað að flytja heim með sér tæplega tvo og hálfan milljarð íslenskra króna í fjárstuðning til heimastjórnarinnar. Erlent 15.12.2006 20:35
Gerviskinnið var ekta í Macy's Dýraverndunarsamtök ásaka stórverslunina Macy's í New York um að selja úlpu með þvottabjarnarskinni á hettunni með því að merkja hana á vefsíðu sinni á þann veg að loðkraginn væri gerviskinn. Samtökin sögðust hafa keypt slíka úlpu og séð þá að á miða í henni stæði "ekta þvottabjarnarskinn". Erlent 15.12.2006 20:34
Unnustan stal senunni Vilhjálmur Bretaprins útskrifaðist í dag úr Sandhurst-herskólanum á Englandi. Unnusta hans, Kate Middleton, vakti mikla athygli við athöfnina. Erlent 15.12.2006 20:00
"Talíbanalög" bönnuð í Pakistan Hæstiréttur í Pakistan bannaði í dag lög sem höfðu verið sett í norðvesturhluta landsins, þar sem samsteypa bókstafstrúaðra múslima ráða ríkjum. Með frumvarpinu átti að lögfesta íslamskt siðferði í héraðinu. Dómstóllinn bannaði fylkisstjóranum að skrifa undir lögin, en þau ganga einnig gegn hófsemisstefnu Musharrafs forseta. Erlent 15.12.2006 19:40
Hávaxinn bjargar höfrungum Hávaxnasti maður í heimi, Bao Xishun, gerði sér lítið fyrir í gær og bjargaði lífi tveggja höfrunga í dýragarði í Kína. Erlent 15.12.2006 19:30
Prodi slapp með skrekkinn Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, kom óvinsælu fjárlagafrumvarpi fyrir komandi ár í gegnum ítalska þingið í kvöld. Ef þingmenn hefðu fellt frumvarpið hefði Prodi þurft að segja af sér. Ítalska ríkisstjórnin stefnir á að herða sultaról og koma skuldum ríkisins á réttan kjöl á næsta ári. Það verður erfitt verkefni, enda alltaf óvinsælt að taka sparnaðarákvarðanir. Erlent 15.12.2006 19:15
Dyrum ESB hallað Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna ákváðu á fundi sínum í morgun að gera hlé á aðildarviðræðum við Tyrkland en ítrekuðu þó að dyr sambandsins myndu áfram standa nýjum ríkjum opnar. Erlent 15.12.2006 19:00
Rambað á barmi borgarastyrjaldar Liðsmenn Hamas-samtakanna saka Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, um að reyna að koma af stað stríði á heimastjórnarsvæðunum. Fjöldi manna hefur særst í átökum á milli Hamas og Fatah-hreyfingar forsetans undanfarinn sólarhring og í nótt var skotið á bíl Ismails Haniyehs, forsætisráðherra. Erlent 15.12.2006 18:45
Enn einnar vændiskonu saknað í Ipswich Enn einnar stúlku er saknað í Ipswich á Suðaustur-Englandi, þar sem svo virðist sem óhugnanlegur raðmorðingi leiti til fordæmis Kobba kviðristu og herji á vændiskonur. Síðan 2. desember hafa fimm kvenmannslík fundist á víðavangi á Suffolk-svæðinu, allt vændiskonur sem hafa horfið sporlaust af götunum. Erlent 15.12.2006 18:05
Ætla bara að ráðast á eþíópísku hermennina Leiðtogi Íslömsku bardagasveitanna í Sómalíu, segist ekki hafa í hyggju að ráðast á bráðabirgðaríkisstjórn Austur-Afríkuríkisins, heldur eingöngu "innrásarsveitir" grannríkisins Eþíópíu. Hassan Dahir Aweys, sjeik, kallaði ásakanir Bandaríkjamanna á þá leið að samtök hans séu í raun leppsamtök Al Kaída í Sómalíu, innantómt raus. Erlent 15.12.2006 17:43
Ávirðingar hlaðast upp á nýjan ráðherra Carina Christensen, hinn nýi fjölskyldu- og neytendaráðherra Danmerkur, náði ekki að klára einn dag í embætti áður en fjölmiðlar voru búnir að grafa upp meintar ávirðingar á hana. Christensen, sem er 34 ára gömul á og rekur húsgagnaverksmiðju á Fjóni. Erlent 15.12.2006 16:23
Flotadeild til höfuðs flóttamönnum Leiðtogar Evrópusambandsins hafa samþykkt að stofna sérstaka flotadeild til þess að koma í veg fyrir að ólöglegir inn flytjendur frá Afríku nái að suðurströndum aðildarríkjanna. Einnig verður stofnuð viðbragðssveit landamæravarða sem hægt er að senda á vettvang með litlum fyrirvara. Erlent 15.12.2006 15:20
Offita að setja Bretland á hausinn Læknar í bresku heilbrigðisþjónustunni segja að sívaxandi offita þjóðarinnar, geti gert þjónustuna gjaldþrota á næstu árum. Samkvæmt nýjustu tölum er offita meiri í Bretlandi en nokkru öðru Evrópuríki. Þar er einn af hverjum fimm fullorðnum of þungur, og læknarnir segja að það geti farið upp í einn af hverjum þremur, ef ekkert verði að gert. Erlent 15.12.2006 14:42
Í værum svefni Breskur kaupsýslumaður hefur verið dæmdur til 180 klukkustunda samfélagsþjónustu og til að greiða sjötíu og fimm þúsund króna sekt fyrir að tefja lestarsamgöngur í grennd við borgina Epsom í suðurhluta landsins. Erlent 15.12.2006 13:51
Forsetakosningar í Rússlandi 2. mars 2008 Ákveðið hefur verið að flýta forsetakosningum sem fram eiga fara í Rússlandi 2008 um viku. Það er gert vegna þess að almennan frídag ber upp á daginn fyrir kosningarnar. Erlent 15.12.2006 13:00
Svaf vært á teinunum Breskur maður á yfir höfði sér allt að sex mánaða fangelsisdóm eftir að hann sofnaði á lestarteinum fyrr á þessu ári. Erlent 15.12.2006 13:00
Átök á milli Hamas og Fatah á heimastjórnarsvæðum í morgun Liðsmenn Hamas saka Fatah-hreyfinguna um að hafa sýnt Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, banatilræði við landamærin að Gaza í gærkvöld. Til átaka kom á milli liðsmanna Hamas og Fatah á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna í morgun. Erlent 15.12.2006 12:45