Erlent

Hæsti maður heims hittir minnsta mann heims

Hæsti maður heims, Bao Sjísjún, hitti í dag minnsta mann í heimi, He Pingping. Hæðarmunurinn á þeim er einn meter og sextíu og þrír sentimetrar. Pingping hefur sótt um að komast í heimsmetabókina sem minnsti maður í heimi.

Erlent

Pia Kjærsgaard sýknuð af meiðyrðakæru

Pia Kjærsgaard, formaður Danska þjóðarflokksins var í dag sýknuð af kæru um meiðyrði fyrir að hafa kallað danska múslimaklerka landráðamenn. Íslömsk trúarsamtök sem höfðuðu málið á hendur Kjærsgaard eru vonsvikin með dóminn.

Erlent

Conrad Black sekur

Kviðdómur sakfelldi fyrrum fjölmiðlajöfurinn Conrad Black fyrir fjársvik og hindrun á framgangi réttvísinnar í dag. Kviðdómurinn hafði setið í ellefu daga þegar hann loks komst að niðurstöðu. Black var ákærður fyrir 13 brot og var fundinn sekur í fjórum þeirra. Á meðal ásakana var að hann hefði stolið nærri þremur komma sex milljörðum íslenskra króna frá hluthöfum Hollinger samsteypunnar.

Erlent

Deila um forræðið á níræðisaldri

Hjón á níræðisaldri berjast nú fyrir forræði yfir fimm ára ofvirku barnabarni sínu fyrir rétti í Fíladelfíu í Bandaríkjunum. Barnaverndaryfirvöld tóku drenginn af þeim í júní og komu honum fyrir í tímabundinni vistun hjá fósturfjölskyldu þar sem hjónin þóttu of gömul til að ala hann upp.

Erlent

Herpes gegn krabbameini

Ein tegund herpesveirunnar sem vísindamenn hafa þróað gæti reynst vel í baráttunni við krabbamein. Ný rannsókn sem kynnt var á læknaráðstefnu í Lugano í Sviss gefur til kynna að veiran eyði krabbameinsfrumum.

Erlent

Móðir og börn finnast látin í Manchester

Lík ungrar konu og tveggja barna hennar á unglingsaldri fundust heimili þeirra í Fallowfield í Manchester í gær. Þau voru öll með mikla höfuðáverka. Líkin eru talin vera af Beverly Samuels, 35 ára konu, Keshu, 18 ára dóttur hennar og Fred, 13 ára syni. Kesha Wizzart var þekkt fyrir þáttöku sína í hæfileikakeppni á ITV sjónvarpsstöðinni. Lögregla sagði að látin væru rannsökuð sem morðmál.

Erlent

Þriggja ára dreng rænt í Nígeríu

Nígerískir mannræningjar hafa krafist tíu milljóna Naíra, eða tæpra fimm milljón króna lausnargjalds fyrir þriggja ára dreng sem þeir rændu á leið í skóla í borginni Port Harcourt við ósa Níger-árinnar. Ættingjar barnsins greyndu frá þessu í dag. Einungis eru fjórir dagar síðan mannræningjar á svipuðum slóðum slepptu þriggja ára breskri stúlku sem þeir höfðu haldið frá því fimmta júlí.

Erlent

Myrti börn sín og yfirmann

Franskur herlögreglumaður myrti tvo syni sína og yfirmann áður en hann skaut sjálfan sig herbúðum í bænum Malakoff suður af París í dag. Drengirnir voru að sögn lögreglu um ellefu ára gamlir. Maðurinn var meðlimur í gendarmerie hersveitunum, sem sinna lögggæslu í sveitum og smábæjum í Frakklandi. Þetta er annar fjölskylduharmleikurinn á stuttum tíma í Frakklandi en fyrr í vikunni viðurkenndi 37 ára gamall maður í Suður-Frakklandi að hafa drekkt þremur börnum sínum í baðkari á heimili sínu.

Erlent

Breski herinn sakaður um að sleppa skrímslum í Basra

Breski herinn í Basra í Írak liggur nú undir ámæli fyrir að standa fyrir plágu af risavöxnum mannýgum greifingjum þar í borg. Undanfarnar vikur hafa sögusagnir geisað um að risavaxin loðin skrímsli gangi um úthverfi borgarinnar og ráðist jafnt á búfénað og menn.

Erlent

Vilja stöðva morð á stúlkubörnum

Indversk stjórnvöld hafa ákveðið að skrá allar þunganir þar í landi til að koma í veg fyrir að foreldrar myrði stúlkubörn. Hjá fátækum fjölskyldum þykir ekki eftirsóknarvert að eignast stúlku þar sem þær þykja byrði á fjölskyldunni og ekki eins góðar fyrirvinnur og strákar. Talið er að allt 10 milljónir stúlkubarna hafi verið myrt á Indlandi á síðastliðnum áratug.

Erlent

Draga til baka beiðni um framlengt gæsluvarðhald

Lögregluyfirvöld í Ástralíu og Bretlandi hafa dregið til baka beiðni um framlengt gæsluvarðhald yfir indverska lækninum Mohamed Haneef. Hann hefur nú setið í gæsluvarðhaldi í ellefu daga en Mohamed er grunaður um að aðild að sprengjuárásunum í London og Glasgow í lok síðasta mánaðar.

Erlent

Norður Kóreumenn óska eftir viðræðum

Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa óskað eftir viðræðum við bandarísk stjórnvöld til að tryggja frið og öryggi á Kóreuskaganum. Bandarísk stjórnvöld segjast hins vegar ekki tilbúin til viðræðna fyrr en tryggt er að Norður-Kóreumenn falli frá kjarnorkuáætlun sinni.

Erlent

Fellibylur veldur usla í Japan

Hundruð manna þurftu að flýja heimili sín og fjölmargir slösuðust þegar fellibylurinn Man Yi gekk yfir japönsku eyjun Okinawa í nótt. Þá fór rafmagn af stórum hluta eyjunnar. Vindhraðinn hefur náð mest allt að 234 kílómetrum á klukkustund.

Erlent

Segir stríðið hafa aukið öryggi

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, heimsótti í gær byggðirnar nyrst í Ísrael, sem verst urðu úti í hinu mánaðarlanga stríði Ísraels við Hezbollah-skæruliða í Líbanon, en rétt ár var í gær frá því það hófst. Fullyrti Olmert við þetta tækifæri að stríðið, sem sætt hefur mikilli gagnrýni innan Ísraels, hefði gert landamæri landsins öruggari.

Erlent

Þrír láta lífið í sjálfsmorðssprengjuárás í Pakistan

Þrír lögreglumenn létu lífið í sjálfsmorðssprengjuárás í norðvesturhluta Pakistans í gær. Enginn hefur enn lýst ábyrgð á verknaðinum en talið er líklegt að um hefndaraðgerðir sé að ræða vegna árásar stjórnarhersins á Rauðu moskuna í Íslamabad fyrr í vikunni.

Erlent

Samskiptin við suðumark

Yfirvöld í Bretlandi íhuga aðgerðir gegn rússnesku ríkisstjórninni eftir að saksóknarar í Rússlandi neituðu á mánudag að framselja fyrrum KGB-manninn Andrei Lugovoi, sem er grunaður um að hafa drepið Alexander Litvinenko í London í fyrra. Breska blaðið The Guardian greindi frá þessu í gær.

Erlent

Neita að framselja Fujimori

Hæstaréttardómari í Chile hefur neitað að framselja Alberto Fujimori til Perú. Yfirvöld í Perú vilja fá Fujimori, sem var forseti landsins frá árinu 1990 til 2000, framseldan vegna gruns um að hann hafi látið drepa 25 manns. Forsetinn er einnig grunaður um mútur og að hafa misnotað opinbert fé.

Erlent

Sagðist lyginn hommahatari

Maður í Massa­chusetts í Bandaríkjunum reyndi heldur óhefðbundna leið til að koma sér undan kviðdómsskyldu á dögunum. Hann tilkynnti dómaranum að hann væri algerlega óhæfur til starfans, væri lyginn, hommafælinn og kynþáttahatari.

Erlent

Bush segir árangur í Írak harla blendinn

Bandaríkjaforseti gerði þinginu í gær grein fyrir því hvernig miðað hefði í Írak. Hann sagðist reikna með hörðum átökum á næstunni en vera jafnframt sannfærður um að Bandaríkin gætu á endanum náð þeim árangri sem að væri stefnt.

Erlent

Alcan verður líklega selt

Ástralska námufyrirtækið Rio Tinto hefur gert tilboð upp á 38 milljarða dollara, eða tæpa 2.300 milljarða króna, í kanadíska álfyrirtækið Alcan, móðurfélag Alcan á Íslandi sem rekur álverið í Straumsvík.

Erlent

Abdul Aziz boðar byltingu

Maulana Abdul Aziz, hinn handtekni æðstiklerkur Rauðu moskunnar í Íslamabad, fékk í gær leyfi til að stjórna bænahaldi við útför hins fallna bróður síns, Abdul Rashid Ghazi, helsta leiðtoga uppreisnarmanna moskunnar.

Erlent

Tinni í Kongó send í útlegð

Teiknimyndasagan Tinni í Kongó hefur verið fjarlægð úr hillum Borders, einnar stærstu bókabúðakeðju Bretlands. Ástæðan er að bókin þykir uppfull af kynþáttafordómum gagnvart þeldökku fólki.

Erlent

Búa sig undir árás á Bandaríkin

Al-Qaida samtökin undirbúa sig nú undir árás á Bandaríkin og hafa náð þeim styrk sem þau þurfa til árásar, samkvæmt leyniskýrslunni sem rædd var í dag

Erlent

Segjast hafa verið narraðar til verksins

Bresku stúlkurnar sem voru ákærðar í Ghana fyrir tilraun til að smygla kokaíni að verðmæti 37 milljónir íslenskra króna til Englands segja að þær hafi verið narraðar til verknaðarins.

Erlent

Sleppt úr varðhaldi

Kona sem var handtekinn vegna gruns um aðild að bílasprengjum í London og flugvellinum í Glasgow hefur verið látin laus, samkvæmt heimildum breska ríkisútvarpsins.

Erlent

Biðja drottninguna afsökunar

BBC hefur beðið Elísabetu Englandsdrottningu afsökunar á því að hafa gefið ranglega í skyn að hún hafi strunsað út úr myndatöku hjá Annie Leibovitz, einum frægasta ljósmyndara Bandaríkjanna.

Erlent

Að minnsta kosti 12 létust þegar ferja sökk

Að minnsta kosti 12 létust þegar ferja sökk rétt hjá Manila í dag, höfuðborg Filippseyja. Herinn sagði að minnsta kosti 129 manns hafi verið bjargað sem voru um borð í ferjunni „MV Blue Water Princess," en þó séu það ekki staðfestar tölur. Þegar hermenn komu á vettvang lá ferjan á hlið í grunnu vatninu.

Erlent