Erlent

Lík annars Þjóðverjans fundið í Afghanistan

Öryggissveitir hafa umkringt staðinn þar sem Talibanar halda 18 suður kóreskum gíslum í Ghazni héraði í Afghanistan. Ekki hefur verið ráðist til atlögu með hervaldi til að frelsa gíslana, en talsmaður talibana sagði í gær að yrði það reynt myndu allir gíslarnir verða teknir af lífi. Lík þjóðverja sem talibanarnir höfðu í haldi fannst í morgun.

Erlent

20 manns farast í rútuslysi í Frakklandi

20 manns fórust í rútuslysi á suðurausturströnd Frakklands, nálægt bænum Grenoble í morgun. Um borð í rútunni voru 50 pólskir pílagrímar á leið til bæjarins La Mure og var rútan á leið niður bratta brekku þegar hún ók útaf veginum, hrapaði niður gljúfur þar sem hún varð alelda á svipstundu. Talið er að bremsubúnaður rútunnar hafi bilað sem varð til þess að ökumaðurinn missti stjórn á henni.

Erlent

Enginn lokafrestur settur

Sex ríkja viðræðum um kjarnorkumál Norður-Kóreu lauk í fyrradag án þess að Norður-Kóreumönnum hafi verið settur neinn lokafrestur til að gera kjarnorkubúnað sinn óstarfhæfan.

Erlent

Kosið um hlutverk trúar í Tyrklandi

Þingkosningar verða haldnar í Tyrklandi í dag. Næsta öruggt þykir að flokkur Receps Tayyips Erdogan forsætisráðherra fái flest atkvæði, en óvissan snýst um það hvort flokkurinn fái nægan þingstyrk til að stjórna áfram einn.

Erlent

Hundruðum bjargað úr vatnsflaumi

Miklar rigningar orsökuðu flóð á Englandi. Þyrlur breska flughersins voru kallaðar út til björgunarstarfa. Gordon Brown sagði að neyðarástand hefði skapast.

Erlent

Hamstraði dýr og þreif aldrei

Borgaryfirvöld í borginni Ben Lomond í Kaliforníu fundu 83 ketti, þrjá hunda og tvær eðlur á heimili dýrahamstrara á dögunum. Kvartað hafði verið yfir illri meðferð dýra á heimilinu. Talið er að dýrin 88 séu mesti fjöldi gæludýra sem fundist hafa í einni íbúð.

Erlent

Fólk býr nánast í opnu fangelsi

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra lauk heimsókn sinni til Ísraels og sjálfstjórnarsvæða Palestínumanna á föstudag í Betlehem, sem nú er umkringd „öryggisgirðingunni“ sem Ísraelar hafa reist á Vesturbakkanum og gagnrýnendur kalla aðskilnaðarmúrinn.

Erlent

Erfiður farþegi límdur fastur

Áhöfn flugvélar frá bandaríska flugfélaginu Frontier Airlines notaði heila rúllu af einangrunarlímbandi til að festa órólegan farþega við sæti sitt í liðinni viku.

Erlent

Engar sannanir fyrir morðum

Engar sannanir hafa fundist fyrir því að tveir þýskir ríkisborgarar hafi verið drepnir af talibönum í gær. Talibanar rændu Þjóðverjunum ásamt fimm Afgönum á miðvikudag í Wardak-héraði í Afganistan. Sögðust talibanarnir hafa drepið Þjóðverjana vegna þess að þýsk stjórnvöld vildu ekki draga þrjú þúsund manna herlið sitt frá Afganistan.

Erlent

Engar ákærur lagðar fram

Enginn af aðstoðarmönnum Tonys Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, verður ákærður í kjölfar lögreglurannsóknar á fjármálum flokksins. Grunur hafði vaknað um að flokkurinn hafi útvegað auðmönnum lávarðatign í skiptum fyrir fjárstuðning í flokkssjóðina.

Erlent

Bamir Topi verður forseti

Bamir Topi verður næsti forseti Albaníu. Topi, leiðtogi Lýðræðisflokksins, fékk 85 atkvæði af 140 í kosningum á albanska þinginu á föstudaginn einu atkvæði meira en hann þurfti til að fá embættið.

Erlent

Aðgerðin heppnaðist vel

Fimm separ voru fjarlægðir úr ristli George W. Bush Bandaríkjaforseta í aðgerð sem hann gekkst undir í gær. Separnir fundust við hefðbundna krabbameinsskoðun sem var framkvæmd í bústað forsetans í Camp David.

Erlent

Æfðu menn í hryðjuverkum

Ítalska lögreglan handtók þrjá Marokkómenn í Perugia í gær vegna gruns um að þeir hafi ætlað að fremja hryðjuverk. Þremenningarnir hafa notað Ponte Felcino-moskuna í miðbæ borgarinnar til að þjálfa menn í bardagalist, kenna þeim sprengju- og eiturgerð og hvernig eigi að stýra Boeing 747-þotum. Ítalska lögreglan hefur unnið að rannsókn málsins í tvö ár.

Erlent

Stal skjaldböku og pyntaði

Karlmaður í borginni Ventura í Kaliforníuríki hefur verið handtekinn grunaður um að hafa stolið 20 kílóa skjaldböku úr bakgarði eigenda sinna og pyntað hana grimmilega.

Erlent

Biluð ratsjá olli töfum á flugi í Brasilíu

Fjölmargar flugvélar, á leið frá Sao Paulo í Brasilíu til Bandaríkjanna, þurftu að snúa til baka þegar að ratsjá við Manaus í Amazon fylki bilaði. Ratsjáin þjónar 90% af flugi um Brasilíu. Aðeins einn sólarhringur er liðinn frá því að forseti Brasilíu sagði að flugöryggi í landinu væri eðlilegt miðað við alþjóðakröfur.

Erlent

Herinn kallaður til vegna flóða í Bretlandi

Óveður og úrhellisrigning í gærkvöldi og nótt orsökuðu flóð á stórum svæðum í Bretlandi. Algjört umferðaröngþveiti skapaðist á helstu hraðbrautum Englands. Fjöldi ökumanna og farþega þurfti að gista í bílum sínum en helgin er ein mesta ferðahelgi sumarsins. Herinn og björgunarsveitir hafa unnið að því í allan dag að koma fólki til hjálpar.

Erlent

Afganar segja þýsku gíslana á lífi

Utanríkisráðherra Afghanistan segir ekki rétt að talibanar hafi tekið tvo þýska gísla af lífi. Annar hafi látist úr hjartaáfalli, en hinn sé enn lifandi. Mannræningjarnir tóku 23 aðila í gíslingu í vikunni og hótuðu að taka þá alla af lífi í dag ef talibönum í afgönskum fangelsum yrði ekki sleppt og þjóðirnar tvær drægju ekki herlið sitt til baka frá Afghanistan.

Erlent

Mars-jeppar í kröppum dansi

Rannsóknar-jeppunum tveimur sem staddir eru á reikistjörnunni Mars stafar mikil ógn af heljarinnar sandstormi sem skekur nú reikistjörnuna. Jepparnir eru knúnir áfram af sólarorku en sandstormurinn er svo þykkur að geislar sólar ná ekki í gegnum hann. Óttast að óveðrið ríði jeppunum að fullu fari ekki að linna í bráð.

Erlent

Kona kjörin forseti Indlands í fyrsta sinn

Fyrsti kvenforseti Indlands tók við völdum í dag eftir að hljóta tvo þriðju atkvæða í kosningum. Kjör Pratibha Patil þykir táknrænt og sigur fyrir konur í landinu sem verða fyrir mikilli mismunun af völdum kynferðis.

Erlent

Framlag Íslands til flóttamannahjálpar tvöfaldað

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra tilkynnti í gær að framlag íslendinga til flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Palestínu yrði tvöfaldað á næsta ári. Íslenska ríkið mun á næsta ári greiða 28 milljónir til verkefnisins.

Erlent

Umferðaröngþveiti í Bretlandi vegna rigninga

Algjört umferðaröngþveiti og ringulreið skapaðist á fjölda aðalumferðaræða í Englandi í gær og nótt vegna úrhellisrigningar. Margir sátu fastir í bílum sínum í meira en fjórtán klukkustundir en helgin er ein mesta ferðahelgi sumarsins.

Erlent

Úrhellisrigning í Bretlandi í gær

Mestu rigningar í manna minnum gengu yfir suðurhluta Bretlands í gær. Á einum sólarhring rigndi jafn mikið og á tveimur mánuðum í meðalári. Rigningin truflaði gervihnattarsamskipti, olli rafmagnsleysi og truflaði samgöngur. Þá þurfti að rýma skólabyggingar og heimili vegna vatnavaxta.

Erlent

George Bush í krabbameinsskoðun

George Bush Bandaríkjaforseti fer í reglubundna krabbameinsskoðun í dag og mun Dick Cheney varaforseti gegna embætti hans á meðan. Samkvæmt læknisráði fer Bush í slíka skoðun á fimm ára fresti. Hann bar engin einkenni krabbameins þegar hann fór fyrst, árið 2002.

Erlent