Umferðaröngþveiti í Bretlandi vegna rigninga Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 21. júlí 2007 12:22
Algjört umferðaröngþveiti og ringulreið skapaðist á fjölda aðalumferðaræða í Englandi í gær og nótt vegna úrhellisrigningar. Margir sátu fastir í bílum sínum í meira en fjórtán klukkustundir en helgin er ein mesta ferðahelgi sumarsins. Þau svæði sem verstu urðu úti eru í kringum Worchester og Gloucester. Margir sátu fastir í bílum á M5 hraðbrautinni í rúmar 14 klukkustundir án vatns og matar. Skólaleyfi hófust í landinu fyrir helgi og virðist slæm spá ekki hafa hindrað fjölskyldufólk í að leggja í hann, en þetta er ein mesta ferðahelgi sumarsins. Foreldrar sem festust í umferðinni lentu því í því að þurfa einhvern veginn að hafa ofan af fyrir börnunum í óveðrinu. Sumir neyddust til að halda kyrru fyrir í bílunum, en margir yfirgáfu þá og leituðu í neyðarskýli þar sem um tvö þúsund manns gistu í nótt. Sky fréttastofan greindi frá því að barn hafi fæðst í bíl sem var fastur í umferðaröngþveitinu. Ökumenn voru því fegnir þegar losnaði loks um umferðarhnútinn í morgun og hægt var að halda ferðinni áfram. Gefin hafði verið út viðvörun til ökumanna um að vera sem minnst á ferðinni. Á sumum stöðum í Bretlandi var úrkoman á nokkrum klukkutímum jafn mikil og í heilum mánuði. Áfram er spáð mikilli rigningu og slæmu veðri og hafa víða verið gefnar út flóðviðvaranir.
Mest lesið „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Innlent Brynjar ráðinn korter í kosningar Innlent Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Erlent Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Innlent Eitt helsta kennileiti bæjarins rifið: „Þetta er annað heimilið mitt“ Innlent Segir ummæli séra Jakobs kalla á rannsókn lögreglu Innlent Flóttinn frá Dúbaí gengur vel Innlent Komust af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í nótt Innlent Sýknudómur Brims í máli sjómannsins ómerktur Innlent Dæmdir fyrir að stela dósum af ÍBV Innlent Fleiri fréttir Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Sjá meira