Erlent
Hundruð þúsunda Indverja flýja heimili sín vegna flóða Gríðarlegar rigningar í Indlandi undanfarnar vikur hafa neytt hundruð þúsunda í austurhluta landsins til þess að flýja heimili sín. Í ríkinu Bihar, sem er í austurhluta Indlands, hefur 21 látið lífið. Þá hafa tæplega 1.800 hús eyðilagst. Samgöngur hafa raskast verulega þar sem vegir og járnbrautarteinar skemmdust töluvert. Erlent 27.7.2007 12:17
Ítölsk stjórnvöld fordæma ákvörðun FIA Stjórnvöld á Ítalíu fordæmdu í dag ákvörðun FIA að refsa ekki McLaren liðinu þrátt fyrir að það hafi haft undir höndum leynilegar upplýsingar um vélbúnað Ferrari keppnisbílana. FIA, Aþjóðasamband bifreiða, sagði að þó svo að McLaren hafi haft gögnin undir höndum sé ekki hægt að sýna fram á að liðið hafi hagnast af því. Erlent 27.7.2007 11:19
Geimfarar hátt uppi Sérstök rannsóknarnefnd bandarísku Geimferðastofnunarinnar NASA hefur komist að því að geimfarar hafa að minnsta kosti tvisvar sinnum farið á dúndrandi fyllerí innan við tólf tímum fyrir geimferð. Nefndin var sett á fót eftir að geimfarinn Lisa Nowak réðst á annan kvengeimfara vegna afbrýðisemi. Hlutverk nefndarinnar var að kanna geðheilsu bandarískra geimfara. Erlent 27.7.2007 11:16
Putin segir enga lausn í Kosovo án aðkomu Serbíu Friður kemst aðeins á í Evrópu ef að landamæri ríkja eru virt og þá sérstaklega Serbíu. Þetta sagði Vladimir Putin, forseti Rússlands, í morgun þegar hann var að svara spurningum um hugsanlegt sjálfstæði Kosovo. Erlent 27.7.2007 11:00
Laug um fjarvistarsönnun þegar Madeleine var rænt Þrjú ný vitni halda því fram að Robert Murat hafi logið til um fjarvistarsönnun sína þegar bresku telpunni Madeleine McCann var rænt í Portúgal þriðja maí. Murat sem er búsettur í Portúgal var sterklega grunaður og tekinn til yfirheyrslu í upphafi rannsóknarinnar. Hann gaf þá fjarvistarsönnun að hann hefði verið að borða kvöldmat með móður sinni þegar Madeleine litlu var rænt af hótelherbergi sínu. Erlent 27.7.2007 10:46
Engan sakaði í sprengingu í rússneskum kafbáti Lítil sprenging varð í morgun í rússneskum kafbáti sem talið er að sé kjarnorkuknúinn en engin geislun lak frá kafbátnum. Kafbáturinn var í höfn í Severodvinsk, við Hvíta hafið, vegna viðgerða þegar atvikið átti sér stað. Engan sakaði í sprengingunni. Umhverfisstofnanir segjast ekki hafa fundið neina geislun og Norðmenn eru einnig að fylgjast með hugsanlegri geislun vegna sprengingarinnar. Erlent 27.7.2007 10:44
Kínverjar hvetja Vesturlönd til þess að sýna þolinmæði vegna Darfur Kína varði í morgun afstöðu sína til mála í Darfur-héraði Súdan og hvatti Vesturlönd til þess að sýna þolinmæði í málefnum þess. Á sama tíma gagnrýndu Vesturlönd Kína og sögðu að afstaða þeirra gæti dregið úr þeirri velvild sem landið fær vegna Ólympíuleikanna sem fara fram í Peking á næsta ári. Erlent 27.7.2007 10:19
Neytendur kannabisefna líklegir til að fá geðklofa Neytendur kannabisefna eru 40% líklegri en aðrir til þess að fá geðsjúkdóma á borð við geðklofa. Þetta kemur fram í nýrri grein eftir sérfræðinga við háskóla í Bristol og Cardiff í Bretlandi. Erlent 27.7.2007 10:19
Villipen sætir rannsókn Formleg rannsókn er hafin á framferði Dominiques de Villepin, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands í tengslum við meinta rógsherferð gegn Nicolas Sarkozy fyrir síðustu forsetakosningar. Dreift var fölsuðum lista yfir menn sem áttu innistæðu í fjármálafyrirtæki í Luxembourg. Nafn Sarkozys var á þeim lista. Erlent 27.7.2007 09:44
Tvö mest notuðu sykursýkislyfin tvöfalda hættu á hjartasjúkdómum Talið er að lyfin Avandia og Actos, sem eru tvö af mest notuðu sykursýkislyfjum í Bretlandi, tvöfaldi hættuna á hjartasjúkdómum. Í Bretlandi hefur notkun lyfjanna tvöfaldast á síðustu þremur árum, vegna aukinna offituvandamála. Erlent 27.7.2007 09:21
Tveir létust þegar sprenging sprakk í geimflaugaverksmiðju Tveir létust og fjórir slösuðust alvarlega þegar sprengja sprakk í Mojave geimflaugaverksmiðjunni í Kalíforníufylki í Bandaríkjunum í gær. Ekki er ljóst hvað olli sprengingunni en slökkviliðsmenn á staðnum sögðu að í verksmiðjunni væri unnið með níturoxíð sem sé mjög eldfimt efni. Þar er verið að þróa geimskip sem ætlað er að gefa ferðamönnum tækifæri til að skoða geiminn. Erlent 27.7.2007 08:16
Sérstakt Prúðuleikarasafn Fjölskylda Jims Henson, höfundar Prúðuleikaranna, hefur ákveðið að gefa brúðusafni í Atlanta allar brúður Hensons. Opnuð verður ný deild innan safnsins sem tileinkað verður honum. Erlent 27.7.2007 08:14
Danir geta ekki boðið Írökum landvistarleyfi vegna fjölskylduhaga þeirra Babb er nú komið í bátinn hjá dönskum stjórnvöldum, eftir að þau ákváðu að bjóða á annað hundrað írökum, sem störfuðu fyrir danska herinn í Írak, landvistarleyfi í Danmörku. Erlent 27.7.2007 08:12
Varp sjófugla misfórst í Færeyjum Varp sjófugla hefur misfarist eitt árið enn í Færeyjum og óttast Færeyingar að sumir stofnanna, þeirra á meðal lundinn, séu við það að deyja út, ef ekki verður breyting á. Líkt og hér á Íslandi virðist vera fæðuskortur í hafinu þannig að ungar komast ekki á legg. Þá er talið að ofbeit sauðfjár í sumum eyjunum kunni að skerða lífslíkur unganna, því þeir hafa ekki skjól af grasi þegar vargfuglinn leitar fanga. Erlent 27.7.2007 08:10
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna undirbýr brotthvarf hersins Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna í Pentagon undirbýr nú áætlun um brotthvarf bandarískra hersveita frá Írak. Þetta kemur fram í bréfi sem Robert Gates varnarmálaráðherra skrifaði Hillary Clinton, öldungardeildarþingmanni og forsetaframbjóðanda. Erlent 27.7.2007 07:05
Dómari og kona hans í kviðdómi Thomas Conklin, dómari í Kansas, og Judy, kona hans, storkuðu lögmálum stærðfræðinnar nýlega þegar þau voru bæði valin til að sitja í kviðdómi á sama degi. Erlent 27.7.2007 05:00
Önnur stóra hitabylgjan í ár Skógareldar geisa og víðtækt rafmagnsleysi plagar íbúa í sunnanverðri Evrópu vegna mikillar hitabylgju. Er þetta önnur stóra hitabylgjan á þessu svæði í sumar og hefur hitinn valdið að minnsta kosti 33 dauðsföllum í Rúmeníu. Erlent 27.7.2007 04:45
Líbía fær ógrynnin öll fyrir fangana sex Meira og minna leynilegir samningar um framsal hjúkrunarfólksins til Búlgaríu hafa skilað Líbíu margs konar hagræði. Bæði ættingjar alnæmissmituðu barnanna og stjórnvöld í Líbíu gagnrýndu þó í gær náðun fanganna. Erlent 27.7.2007 03:45
Kynlífstré í útrýmingarhættu Hætta er á að ákveðin tegund trjáa deyi út í Úganda, að sögn vísindamanna þar í landi. Rót trésins, sem kallast omuboro, er talin örva kynhvöt manna. Trén eru því rifin upp með rótum til að fólk komist yfir ræturnar. Þar sem trén vaxa mjög hægt eru þau í útrýmingarhættu. Erlent 27.7.2007 02:15
Hársnauðir stungnir af marglyttum Norskir vísindamenn við Oslóarháskóla óska eftir hugrökkum og hársnauðum einstaklingum sem eru tilbúnir til að bretta upp ermar og láta marglyttu stinga sig – í nafni vísindanna. Erlent 27.7.2007 01:45
Dreymir um að keyra rútu Forsætisráðherra eyríkisins Trínidad og Tóbagó í Karíbahafi segir sig alltaf hafa dreymt um að keyra rútu. Forsætisráðherrann trínidadíski, Patrick Manning, upplýsti um þennan draum sinn í ræðu meðal flokksfélaga. Erlent 27.7.2007 00:30
Rússar aðstoða Grikki í baráttunni við skógarelda Rússar ætla að senda fimm flugvélar til Grikklands sem eiga að aðstoða við að slökkva skógarelda sem geisa í landinu. Karamanlis, forsætisráðherra Grikklands, hafði samband við Vladimir Putin, forseta Rússlands, og bað hann um aðstoð við að slökkva skógareldana. Erlent 26.7.2007 23:09
Fullir geimfarar Geimfarar hjá Nasa hafa að minnsta kosti tvisvar farið út í geim undir áhrifum áfengis. Þetta kemur fram í rannsókn sem stendur nú yfir á starfsemi stofnunarinnar og sagt er frá í tímaritinu Aviation Week & Space Technology. Erlent 26.7.2007 21:36
Búlgörsk börn boðin til sölu Búlgörsk börn eru boðin til sölu á um 60 þúsund evrur með loforði um að þeim verði smyglað til annarra landa. Þetta kemur fram í nýjum sjónvarpsþætti sem fréttamenn á vegum BBC hafa unnið. Erlent 26.7.2007 20:39
Grátbað um hjálp Suður-kóresk kona, sem Talibanar hafa haldið í gíslingu í rúma viku, grátbað um hjálp í símaviðtali sem bandaríska sjónvarpsstöðin CBS spilaði í dag. Konan er ein af 23 Suður-Kóreubúum sem Talibanar rændu fyrir viku síðan. Talibanarnir myrtu einn gíslanna í gær. Erlent 26.7.2007 19:34
Krefjast ákæru á hendur foreldrum Madeleine Portúgalskir fjölmiðlar beina nú spjótum sínum að foreldrum Madeleine McCann og vinum þeirra sem voru með þeim kvöldið örlagaríka þegar stúlkunni var rænt. Þá hefur þess verið krafist að ákæra verði gefin út á hendur þeim fyrir að skilja börnin eftir. Erlent 26.7.2007 18:30
Þrír látnir í flóðunum í Bretlandi Hitarnir í Suðaustur Evrópu og flóðin í Bretlandi eru talin afleiðing þess að loftstraumar og lægðir ganga nú sunnar en verið hefur. Þetta hefur orsakað einmuna veðurblíðu hér á landi í sumar. Þrír eru látnir í flóðunum í Bretlandi í dag. Hundruð íbúa flóðasvæðanna í Bretlandi snúa nú til síns heima, en flóðin eru í rénun. Erlent 26.7.2007 18:27
Vegið að viðkvæmum stofni górilla Fjórar skepnur af hinum fágætu fjallagórillum fundust drepnar í þjóðgarðinum Virunga í Lýðveldinu Kongó á sunnudaginn. Górillurnar eru friðaðar enda í bráðri útrýmingarhættu með stofn sem telur um 700 skepnur. Um er að ræða eitt karldýr, eða silfurbak, og þrjú kvendýr. Erlent 26.7.2007 18:11
Shambo færður til slátrunar Farið var með heilaga nautið Shambo til slátrunar í dag. Shambo sem er í eigu munka í hindúaklaustri í Wales greindist með berkla í apríl og hefur áfrýjunardómstóll skipað svo fyrir að honum skuli slátrað til að koma í veg fyrir smit. Erlent 26.7.2007 17:58
Ferðamenn misstu eigur sínar í eldunum á Ítalíu Níu hjálparbeiðnir hafa borist til Evrópusambandsins frá löndum í suðaustur Evrópu þar sem skógareldar geisa. Þrír létust í Grikklandi í morgun og ferðamenn þufa að yfirgefa sumarleyfisstaði af völdum eldanna. Íslendingur sem býr á svæðinu er kominn til Íslands og segir ástandið nánast óbærilegt vegna reyks og hita. Erlent 26.7.2007 17:45