Erlent

Meistaradeildin: Drátturinn í beinni á Vísi.is

Dregið verður í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í dag klukkan 16:00 í Monte Carlo á Suðurströnd Frakklands. Vísir.is sýndi frá drættinum í beinni ústendingu. Fjögur ensk lið eru í pottinum og eru þau öll í fyrsta styrkleikaflokk. Rosenborg er eina liðið frá Norðurlöndunum.

Erlent

Beljur með nafnskírteini

Bændur í Vestur-Bengal á Indlandi hafa verið skyldaðir til þess að fara með beljur sínar í myndatökur, til þess að útvega þeim nafnskírteini. Þetta er liður í því að koma í veg fyrir stórfellt smygl á þeim til Bangladesh. Meirihluti Indverja eru hindúar og samkvæmt þeirra trú eru þessir jórtrandi ferfætlingar heilagar kýr. Það er bannað að flytja þær úr landi.

Erlent

Grikkir sækja bætur vegna eldanna

Þúsundir Grikkja streymdu í banka í landinu í gær til að sækja bætur frá ríkisstjórninni vegna eldanna sem hafa geysað þar í landi undanfarna daga. Allir Grikkir geta fengið bætur, sýni þeir skilríki og skrifi undir yfirlýsingu um að þeir hafi orðið fyrir tjóni vegna eldanna.

Erlent

Hraðafgreiðsla á Bótoxi

Fljótlegra er að fá tíma fyrir Bótox sprautu, en að láta fjarlægja hugsanlega illkynja fæðingarbletti í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í könnun sem samtök húðsjúkdómalækna þar í landi gerðu.

Erlent

Kínverjar reyna að róa Japani

Kínverjar reyndu í dag að róa Japani yfir mikilli hervæðingu sinni, á fundi varnarmálaráðherra landanna. Meðal annars varð að samkomulagi að kínverskt herskip heimsækti Japan og er það í fyrsta skipti í sögu landanna. Kínverjar hafa stóraukið framlög til hermála undanfarin ár, og Japanir hafa af því áhhyggjur.

Erlent

Yfirsáust tíu þúsund evrur

Þjófur sem sem stal skjalatösku í Dusseldorf í gær, tók ekki eftir því að í henni voru tíu þúsund evrur, eða rúmar 860 þúsund krónur, og henti henni. ,,Ég gæti trúað að hann yrði svekktur þegar hann kemst að því" sagði talsmaður lögreglu í borginni.

Erlent

Þýska mannætan þögul sem gröfin

Þýska mannætan sem lögreglan í Vín handtók á þriðjudag neitar að tjá sig um glæp sinn. Hinn 19 ára gamli Þjóðverji var staðinn að verki við að éta tæplega fimmtugann Austurríkismann sem hann bjó með í Vín.

Erlent

Koma mátti í veg fyrir fjöldamorðin í Virgina Tech

Samkvæmt nýrri skýrslu hefði mátt koma í veg fyrir fjöldamorðin í Virgina Tech háskólanum í apríl s.l. ef yfirvöld hefðu brugðist skjótar við en þau gerðu. Stúdentinn Seung-Hoi Cho drap þar 33 samstúdenta sína í skólanum áður en hann framdi sjálfsmorð.

Erlent

Mikið kvartað undan reykingabanni í Danmörku

Kvörtunum vegna hávaða frá veitingastöðum rignir yfir dönsku lögregluna eftir að reykingabann tók þar gildi nýverið, að sögn danskra fjölmiðla. Viðskiptavinirnir fara út með ölkrúsirnar til að fá sér að reykja, og þar með er allt teitið komið út á götu, líkt og gerist iðulega við veitingastaði í Reykjavík.

Erlent

Larry Craig undir miklum þrýstingi að segja af sér

Öldungadeildarþingmaðurinn Larry Craig hefur fallist á að segja sig úr nokkrum þingnefndum en hann er nú undir miklum þrýstingi frá samflokksmönnum sínum í repúblikaflokknum að segja af sér þingmennsku. Meðal þeirra sem hvetja Craig til afsagnar er John MaCain.

Erlent

Fangaverðir snúa aftur til vinnu

Verkfalli um 20 þúsund fangavarða í Bretlandi var aflýst í kvöld eftir að ríkistjórn landsins óskaði eftir viðræðum. Starfsmenn í 131 fangelsi á Englandi og í Wales gengu út klukkan sjö í morgun og boðuðu sólarhrings verkfall. Alvarlegt ástand skapaðist í fangelsum landsins þar sem ekki var hægt að hleypa föngum út úr klefum sínum.

Erlent

Úr fötunum eða ég sprengi

Alríkislögreglan í Bandaríkjunum rannsakar nú ránstilraunir sem framdar hafa verið að undanförnu í nokkrum fylkjum. Ránið fer þannig fram að maður hringir í banka og verslanir og segir að sprengja sé á staðnum. Hann hótar að sprengja verði ekki orðið við kröfum hans um peninga og að allir viðstaddir klæði sig úr fötunum.

Erlent

Geislasverð Loga fer í geimferð

Megi ,,Mátturinn" vera með geimferjunni Discovery og þeim sjö geimförum sem um borð verða í ferð þeirra að Alþjóðlegu geimstöðinni í október. Því með í för verður geislasverðið sem Logi Geimgengill notaði í Stjörnustríðs myndinni Endurkoma Jedi-riddarans.

Erlent

12 Kóreumenn lausir úr prísund sinni

Talíbanar í Afganistan hafa nú sleppt 12 af þeim 19 Suður-Kóreumönnum sem þeir hafa haft í gíslingu undanfarnar vikur. Gíslunum var sleppt lausum í þremur hópum á mismunandi tímum í dag. 10 konum og tveimur mönnum hefur verið sleppt.

Erlent

Eru að ná tökum á eldunum

Allt útlit er fyrir að slökkviliðsmenn í Grikklandi nái tökum á skógareldum sem logað hafa í suðurhluta landsins. Í nótt tókst að slökkva um tug elda á Pelópsskaga og loga eldar á tuttugu og fimm stöðum. Hugsanlega verður búið að ráða niðurlögum allra eldanna í kvöld, en vind hefur lægt. Að minnsta kosti secxtíu og fjórir hafa látið lífið af völdum eldanna og yfir þrjú þúsund hafa misst heimili sín.

Erlent

Bush varar við kjarnorkuhelför

George Bush Bandaríkjaforseti varaði við því að kjarnorkuhelför vofði yfir Mið-Austurlöndum ef Íranar smíðuðu kjarnorkuvopn. Hann sagði Bandaríkjamenn muna bregðast við þessari hættu áður en það væri of seint.

Erlent

Viðbjóðslegar myndir bjarga lífi

Svört lungu, æxli og lík reykingamanna eru meðal þess sem mun blasa við breskum reykingamönnum í lok ársins 2009. Heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi kynntu í dag ný lög um merkingar á tóbaksumbúðum. Í stað skrifaðra viðvarana verða nú settar myndir af öllum þeim hryllingi sem neysla tóbaks getur haft í för með sér.

Erlent

Lykillinn sem hefði getað bjargað Titanic

Lykill sem hugsanlega hefði getað forðað Titanic frá því að sigla á ísjakann verður seldur á uppboði í Bretlandi í næsta mánuði. Lykillinn gekk að hirslu sem geymdi sjónauka fyrir útsýnistunnu skipsins. Skipverji sem var á útkíkki þegar Titanic sigldi á borgarísjakann sagði fyrir sjórétti að ef þeir hefðu haft sjónauka hefur þeir séð jakann það mikið fyrr að þeir hefðu getað sveigt frá honum.

Erlent

Þrír drepnir í skotárás í Bretlandi

Þrír voru skotnir til bana og tveir særðir í skotárás í Hertfordshire í Bretlandi í gærkvöldi. Þriggja ára stúlka fannst ómeidd í húsinu, og er talið að hún hafi orðið vitni að árásinni.

Erlent

Voffi erfir mest

Hóteldrottningin og milljarðamæringurinn Leona Helmsley - betur þekkt sem ,,the Queen of Mean" - sem lést í síðustu viku, ánafnaði hundinum sínum 12 milljónum Bandaríkjadala. Þá sagði í erfðaskrá hennar að hundurinn skildi jarðarður við hlið hennar og eiginmannsins í fimm stjörnu lúxus-grafhvelfingu þeirra.

Erlent

Öflugasti her skæruliða í Írak leggur niður vopn

Shía klerkurinn Moqtada al-Sadr hefur skipað Mehdi her sínum að hætta öllum hernaðaraðgerðum í írak í sex mánuði. Þetta eru miklar fréttir því Bandaríkjamenn líta á Mehdi herinn sem mestu ógnina gegn friði og öryggi í Írak. Þessi her er enda öflugastur og best vopnaður af þeim fylkingum sem berjast gegn veru erlendra hermanna í Írak.

Erlent

Hershöfðingi rekinn eftir morð á rússneskum hermanni

Varnarmálaráðherra Rússlands hefur rekið hershöfðingja sem stjórnaði herstöð þar sem drukknir foringjar börðu ungan óbreyttan hermann til bana. Ill meðferð á ungum hermönnum er landlæg í rússneska hernum. Fjölmörg dæmi eru um að þeir lifi hana ekki af. Átján mánaða herskylda er í Rússlandi og ungir menn gera allt sem þeir geta til þess að komast hjá henni.

Erlent

Geimfarinn ber við tímabundinni geðveiki

Lögfræðingar geimfarans Lisu Nowak hyggjast bera við tímabundinni geðveiki þegar hún mál hennar verður tekið fyrir í næsta mánuði. Nowak, sem er 44 ára gömul gift þriggja barna móðir, var ákærð fyrir tilraun til mannráns, líkamsáras og þjófnað.

Erlent

Danskir sjómenn komnir heim eftir 83 daga í gíslingu

Fimm danskir sjómenn af skipinu Danica White eru nú komnir heim aftur eftir að hafa verið í gíslingu sjóræningja í Sómalíu í 83 daga. Útgerð skipsins er sögð hafa greitt um 100 milljónir króna fyrir að fá þá lausa. Sjóræningjar réðust á skipið undan austurströnd Sómalíu fyrr í sumar og færðu það til hafnar.

Erlent

Látinn undir ruslahaug í átta ár

Króatískur maður lá látinn í íbúð sinni í Sagreb í átta ár áður en hann fannst. Ivan Bosonac týndist í febrúar 1999, þá 81 árs að aldri. Frændi hans tilkynnti lögreglu um hvarfið. Hún leitaði í kjölfarið í lítilli risíbúð mannsins, sem var stútfull af drasli, en fundu ekkert.

Erlent

Breskir fangaverðir í verkfall

Þúsundir fangavarða í Englandi og Wales lögðu í morgun niður vinnu. Með verkfallinu, sem áætlað er að standi í sólarhring vilja þeir mótmæla launakjörum sínum.

Erlent

Frumbyggjar heiðra Al Gore

Ættbálkur í afskekktu héraði í norð-austurhluta Indlands ætla að heiðra Al Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna fyrir baráttu hans gegn loftslagsbreytingum.

Erlent