Erlent
Bush segir hernaðarleg sjónarmið ráða stærð liðsafla í Írak Ákvörðun um að fækka liðsafla Bandaríkjamanna í Írak mun ráðast af hernaðarlegum sjónarmiðum en ekki pólitískum. Þetta kom fram í ræðu sem George Bush, bandaríkjaforseti, hélt fyrir bandaríska hermenn í Írak í dag. Óvænt heimsókn forsetans til Íraks lauk í kvöld þegar hann hélt áleiðis til Sidney í Ástralíu. Erlent 3.9.2007 21:28
Þúsundir flýja fellibylinn Felix Þúsundir manna á austurströnd Mið-Ameríku hafa flúið heimili sín vegna komu fellibylsins Felix. Hann stefnir nú í átt að Níkaragva en bylurinn er nú skilgreindur sem 4. stigs fellibylur. Erlent 3.9.2007 21:01
Danskur skattasáttmáli í höfn á elleftu stundu Danska ríkisstjórnin tilkynnti síðdegis að náðst hefði samkomulag við Danska þjóðarflokkinn um nýjan skattasáttmála, en forsætisráðherra hafði gefið frest til miðnættis í kvöld til lausnar málsins. Erlent 3.9.2007 19:43
9 ára barnshafandi stúlka í mæðrahúsi ÞSSÍ Níu ára barnshafandi stúlka hefur dvalið í mæðrahúsi sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands lét byggja í Bluefields í Níkaragva. Stúlkunni var nauðgað af frænda sínum og eru fóstureyðingar með öllu bannaðar í landinu. Líkur eru á að stúlkan lifi ekki fæðinguna af. Erlent 3.9.2007 19:10
Líkur á að bandaríska herliðið verði kallað heim George Bush Bandaríkjaforseti segir líkur á að bandaríska herliðið í Írak verði kallað heim ef öryggisaðstæður í landinu haldi áfram að batna. Forsetinn kom í óvænta heimsókn til Íraks í morgun. Erlent 3.9.2007 19:04
Þorskurinn að hverfa úr Eystrasalti Fiskimenn á Eystrasalti verða að minnka þorskveiðar sínar um þriðjung á þessu ári ef stofninn á ekki að hverfa, að sögn Evrópusambandsins. Vísindamenn hafa lengi varað við því að ofveiði sé að útrýma þorskstofninum í austurhluta Eystrasaltsins og hafa viljað setja algert veiðibann. Þeir hafa einnig viljað minnka veiðarnar í vesturhlutanum um helming. Erlent 3.9.2007 15:42
Bandarískur almenningur óánægður með þingið Bandarískur almenningur er ekki hrifinn af stjórn demokrata á þingi landsins. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun er aðeins einn af hverjum fimm ánægður. Það er jafnvel verri einkunn en George Bush fær hjá þjóðinni. Demokratar unnu meirihluta í báðum deildum í janúar síðastliðnum og hafa síðan gert hvað þeir hafa getað til þess að þvælast fyrir forsetanum. Erlent 3.9.2007 14:48
Bush í óvæntri heimsókn í Írak George Bush forseti Bandaríkjanna kom í óvænta heimsókn til Íraks, í dag. Robert Gates, varnarmálaráðherra landsins er með honum í ferðinni. Bandaríska varnarmálaráðuneytið segir að forsetinn og ráðherrann muni eiga fundi með æðstu foringjum hersins í Írak. Erlent 3.9.2007 13:08
12 börn á sjúkrahús eftir flugskeytaárás í Ísrael Tólf börn voru flutt á sjúkrahús í bænum SDEROT í suðurhluta Ísraels eftir að flugskeyti lenti í garðinum við leikskólann þar í bæ í morgun. Erlent 3.9.2007 12:12
Tjónið á Norðurbrú eftir mótmælin nemur tugum milljóna Talið er að tjónið og eyðileggingin vegna mótmælanna á Norðurbrú í Kaupmannahöfn um helgina nemi tugum milljónum króna og eru íbúar og verslunareigendur á Norðurbrú orðnir langþreyttir á ástandinu. Sextíu og fjögur ungmenni voru handtekin aðfaranótt sunnudags og þrjú þeirra sitja í fangelsi. Erlent 3.9.2007 12:00
Ahmadinejad „sannar" að ekki verði ráðist inn í Íran Mahmoud Ahmadinejad forseti Írans segist þess fullviss að Bandaríkin muni ekki ráðast inn í landið þrátt fyrir sögusagnir um að slík aðgerð sé yfirvofandi. Hann vísar í hæfileika sína sem verkfræðings og staðfasta trú á orð guðs máli sínu til stuðnings. Erlent 3.9.2007 11:46
Fáránlega frábærir Elsa María Jakobsdóttir sjónvarpskona mætir alltaf með rafmagnskjuða í partí. „Ég sá kjuðana fyrst á www.iwantoneofthose.com þar sem eru margir frábærir og fáránlegir hlutir sem eru mispraktískir. Einar Baldvin vinur minn pantaði þá og gaf mér í jólagjöf,“ segir Elsa María, umsjónarmaður í nýjum menningarþætti Sjónvarpsins sem heitir 07-08, bíó og leikhús. Erlent 3.9.2007 11:00
Það er þetta með hann séra Jón Mikil heræfing var haldin á Íslandi í síðasta mánuði. Meðal annars voru sendar hingað þrjár orrustuþotur....gott ef þær voru ekki fjórar. Í dag hófst heræfing NATO í Noregi. Norska blaðið Aftenposten upplýsir að yfir eitthundrað herflugvélar verði á lofti yfir Noregi dag og nótt til fimmtánda september. Erlent 3.9.2007 10:58
Á skilið að deyja fyrir að eyðileggja orðstír Tælands Tælenskur maður hefur verið dæmdur til dauða fyrir að myrða tvær rússneskar konur sem sátu á Pattaya ströndinni og fylgdust með sólarupprásinni. Morðin voru framin í febrúar síðastliðnum. Ekki hefur verið gefin ástæða fyrir ódæðinu, ef hún var þá einhver. Ofursti í Tælensku lögreglunni sagði að morðinginn ætti dauðadóminn skilið fyrir að hafa eyðilagt orðstír landsins. Erlent 3.9.2007 10:36
Sjálfsvíg í Páfagarði Tuttugu og fimm ára gamall lögreglumaður í Páfagarði lést í dag af skotsárum og er talið að hann hafi framið sjálfsvíg. Lögreglusveit Páfagarðs er talin til úrvalssveita og meðlimir hennar vandlega valdir og þjálfaðir. Ekki síst er fylgst með andlegri heilsu þeirra eftir mikið ofbeldisverk sem var framið í Páfagarði árið 1998. Erlent 3.9.2007 09:51
Yfirtökur hafnar í Zimbabwe Ríkisstjórn Zimbabwes hefur yfirtekið 49 prósenta hlut bandaríska matvælarisans Heinz í stærsta matarolíuframleiðanda landsins. Fyrir þennan hlut voru greiddar 6,8 milljónir dollara. Þetta er fyrsta stóra yfirtakan í Zimbabwe eftir að Robert Mugabe lýsti því yfir að heimamenn myndu fá meiri stjórn á erlendum fyrirtækjum sem starfa í landinu. Erlent 3.9.2007 09:38
Páfi hvetur til umhverfisverndar Íklæddur grænum hökli hvatti Benedikt páfi í gær hálfa milljón ungmenna sem voru saman komin á umhverfisverndarhátíð á Ítalíu til að bjarga jörðinni áður en það væri um seinan. Í ræðu páfa voru innan um hefðbundnari tilmæli um að viðhalda fjölskyldugildum og lifa dyggðugu lífi ábendingar um að fara betur með umhverfið. Þá bauð páfi upp á meira en innantóm orð. Hann hyggst koma fyrir sólarrafhlöðum í Vatíkaninu, og mun greiða fyrir skógræktarverkefni til að vinna á móti kolefnislosun höfuðstöðva kaþólsku kirkjunnar. Erlent 3.9.2007 08:11
Fellibylurinn Felix sækir í sig veðrið Hitabeltisstormurinn Felix sækir í sig veðrið og er nú orðinn fimmta stigs fellibylur. Hann fór í nótt þvert yfir suður Karíbahaf og stefnir hraðbyri á Yukatan skaga í Mexíkó. Vindhraði í bylnum er nú um 270 kílómetrar á klukkustund. Stutt er síðan fellibylurinn Dean reið yfir karíbahafið og Miðameríku með þeim afleiðingum að 27 manns létust. Hann var einnig fimmta stigs, en svo sterkir fellibyljir eru afar sjaldgæfir. Erlent 3.9.2007 08:08
Fótboltabullur réðust að 14 ára dreng í Danmörku Hópur drukkinna áhangenda AGF fótboltaliðsins í Danmörku réðst að fjórtán ára dreng af írökskum uppruna í lest á leið til Árhúsa í gær. Hvorki lestarstjórinn né aðrir starfsmenn lestarinnar brugðust við þegar mennirnir hreyttu fúkyrðum og hentu rusli í drenginn og rúmlega áttræða konu sem ferðaðist með honum. Aðrir áhangendur liðsins komu drengnum til bjargar, en enginn slasaðist í hamagangnum. Erlent 3.9.2007 08:06
Ísinn á Norðurpólnum bráðnar með ógnarhraða Íshellan á Norðurpólnum hefur undanfarin tvö ár minnkað um eina milljón ferkílómetra, eða sem samsvarar flatarmáli Þýskalands og Frakklands til samans. Erlent 3.9.2007 07:19
Leit að námamönnum hætt Leit að námuverkamönnunum sex sem festust inni í námu í Utah þegar hún féll saman fyrir 28 dögum hefur verið hætt. Mennirnir voru um 600 metra undir yfirborði jarðar þegar göngin sem þeir voru að vinna í féllu saman. Erlent 3.9.2007 07:12
Undirbúa árásir á Íran Bandaríkjaher hefur sett saman ítarlega hernaðaráætlun um öflugar loftárásir á Íran. Þetta fullyrðir breska blaðið The Sunday Times í gær og segir að George Bush Bandaríkjaforseti hafi undanfarið unnið að því að afla stuðnings innan Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna við aðgerðir gegn Íran. Íranar hafa þrátt fyrir þrýsting Bandaríkjamanna ekki viljað hverfa frá kjarnorkuáætlun sinni. Þeir segjast ætla að nota kjarnorkuna til að framleiðslu raforku en Bandaríkjamenn gruna þá um að vinna að smíði kjarnorkusprengju. Erlent 3.9.2007 07:09
Þriggja daga leifturárás Bandaríkjaher hefur sett saman ítarlega hernaðaráætlun um öflugar loftárásir á Íran. Hugmyndin er sú að eyðileggja hernaðarmátt Írana á aðeins þremur dögum. Erlent 3.9.2007 06:00
Skógareldar að mestu slökktir Þrír stærstu skógareldarnir, sem logað hafa í Grikklandi í tíu daga, hafa nú verið slökktir eða tökum hefur verið náð á þeim, þannig að ekki stafar hætta lengur af. Erlent 3.9.2007 05:00
Flóttanaut deyr Naut sem flúði eiganda sinn á nautgripasýningu í Minnesota í Bandaríkjunum féll niður og lést eftir að hafa skallað brunahana. Nautið, sem vó tæp 800 kílógrömm, hafði að sögn eiganda síns aldrei látið illa. Hann grunaði þó að bílferðin á hátíðina hefði komið nautinu úr jafnvægi. Erlent 3.9.2007 04:00
Börn frömdu 3.000 glæpi Börn undir tíu ára aldri voru grunuð í nær þrjú þúsund sakamálum í Englandi og Wales í fyrra. Nær helmingur þessara glæpa, alls 1.300, tengdist skemmdarverkum eða íkveikjum. Erlent 3.9.2007 03:15
Nota þrjú þúsund skilvindur Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, lýsti því yfir í gær að nú væru Íranar búnir að taka í notkun þrjú þúsund skilvindur, sem notaðar eru til að auðga úran. Erlent 3.9.2007 02:15
Breska herliðið fer frá Basra Breska ríkisútvarpið BBC skýrði frá því í gær að breska herliðið í Basra í Írak væri byrjað að yfirgefa borgina. Þegar brottflutningnum er lokið verða allir breskir hermenn farnir frá suðurhluta Íraks. Erlent 3.9.2007 02:00
Fátæktin aldrei verið meiri Fátækt meðal Palestínumanna er nú meiri en nokkru sinni. Rúmlega helmingur allra heimila á svæðum Palestínumanna telst nú vera undir fátæktarmörkum, það er að segja 25 þúsund krónum á mánuði. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um efnahagsástandið í Palestínu, sem UNCTAD, Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og þróun, sendi frá sér í lok síðustu viku. Erlent 3.9.2007 01:15
Óhefðbundin hetja Ungur glæpamaður sem notar snilligáfu sína til að ræna og drepa er fremur óhefðbundin hetja í unglingabókum. Írski rithöfundurinn Eoins Colfers skrifar bækurnar um Artemis Fowl í þeim tilgangi að fá drengi til að lesa. Erlent 2.9.2007 19:14