Erlent

Sjö létust í flugslysi í Kólumbíu

Sjö létust þegar lítil flugvél brotlenti í Bogota höfuðborg Kólumbíu í gærkvöldi, nokkrum mínútum eftir flugtak frá El Dorado flugvellinum. Fimm manns voru um borð í vélinni sem var af gerðinni King 200. Tveir létust á heimilum sínum á jörðu niðri en vélin skemmdi nokkur hús þegar hún hrapaði niður á íbúðahverfi.

Erlent

Spáir hjónaböndum við vélmenni

Breskum vísindamanni hefur verið veitt doktorsgráða fyrir ritgerð sem spáir hjónaböndum milli vélmenna og manna í framtíðinni. Það var háskólinn í Maastricht í Hollandi sem veitti David Levy PhD gráðuna fyrir lokaritgerð sem bar heitið "Intimate Relationships with Artificial Partners," eða náin sambönd við tilbúna félaga.

Erlent

Móðgaði Chavez og fær ekki að syngja

Hinum vinsæla spænska söngvara Alejandro Sanz hefur verið meinað að halda tónleika á leikvangi í Caracas vegna ummæla sem hann lét falla um Hugo Chavez forseta Venesúela.

Erlent

Madonna með 7 milljarða kr. samning

Madonna mun á næstunni undirrita risasaming upp á rúma 7 milljarða króna við tónleikafyrirtækið Live Nation. Samhliða mun hún hætta samstarfi sínu við plötuútgáfuna Warner Music Group

Erlent

Toppfundur í Moskvu

Condolezza Rice utanríkisráðherra og Robert Gates varnarmálaráðherra Bandaríkjanna eru nú í Moskvu þar sem þeir munu hitta rússneska samráðherra sína á fundi síðar í dag.

Erlent

SAS enn í vandræðum með Dash-vélarnar

SAS-flugfélagið hefur enn ekki bitið úr nálinni hvað erfiðleika með Dash-vélar félagsins varðar. Það verður æ erfiðara fyrir SAS að sannfæra farþega sína um að óhætt sé að ferðast með þessum vélum.

Erlent

Önnur eldsprengjuárás í Albertslund

Önnur árás með Molotov-kokteilum, eða eldsprengjum, var gerð á lögreglustöðina í Albertslund, einu úthverfa Kaupmannahafnar í nótt. Að þessu sinni munaði mjóu að allt færi í bál og brand því ein eldsprengjan braut ytra byrði á rúðu að skrifstofu varðstjórans.

Erlent

Kínverjar fallast á að gagnrýna Búrma

Kínverjar slógust í lið með Vesturveldunum í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í kvöld þegar ráðið samþykkti yfirlýsingu um málefni Búrma. Þetta er í fyrsta sinn sem Kínverjar fást til að gagnrýna stjórnvöld Búrma en í yfirslýsingunni er það fordæmt hvernig mótmæli í landinu á dögunum voru barin niður.

Erlent

15 konur og börn féllu í loftárás í Írak

Loftárás Bandaríkjahers norður af Bagdad varð 15 konum og börnum að bana auk þess sem 19 uppreisnarmenn féllu í árásinni. Talsmenn hersins sögðu frá þessu í dag en árásinni var beint að mönnum sem grunaðir voru um að leiða starf Al Kaída í landinu.

Erlent

Lét græða eyra á handlegginn

Ástralskur listamaður sem hefur látið græða eyra á framhandlegg sinn í nafni listarinnar hefur vakið upp deilur. Stelios Arcadiou er fæddur á gríska hluta Kýpur og er 61 árs. Hann segir auka eyrað gert úr brjóski og mótað á rannsóknarstofu. Það er eftirmynd af venjulegu eyra. Skurðlæknar settu spurningamerki við hvort slík aðgerð ætti rétt á sér vegna þess að ekki hafi verið læknisfræðileg þörf á henni.

Erlent

Þrír látnir í sprengingu á Indlandi

Að minnsta kosti þrír eru látnir og 20 slasaðir eftir sprengju við mosku í Rajasthan héraði á Indlandi. Sprengjan sprakk fyrir utan Dargah Sharif helgiskrínið í Amjer borg rétt eftir að daglegt hlé var gert á föstu Ramadan mánaðar sem senn er á enda. Að minnsta kosti 500 manns voru inni í helgidómnum þegar sprengjan sprakk samkvæmt heimildum CNN.

Erlent

Kviðdómur sér myndir af dauða Díönu

Ljósmyndir paparazzi ljósmyndara af Díönu prinsessu deyjandi í bílflaki voru lagðar fyrir kviðdóm réttarransóknarinnar yfir láti hennar í dag. Myndirnar voru að hluta ruglaðar en hár prinsessunnar og hliðarsvipur sáust.

Erlent

Eins árs fangelsi fyrir ölvunarakstur

Karlmaður var í dag dæmdur í eins árs fangelsi í Árósum í Danmörku fyrir ítrekaðan ölvunarakstur. Um er að ræða einn þyngsta dóm sem fallið hefur í landinu fyrir brot sem þetta.

Erlent

Gerry segist líffræðilegur faðir Madeleine

Það á ekki af foreldrum Madeleine McCann að ganga. Nú hefur Gerry McCann séð sig knúinn til að staðhæfa að hann sé líffræðilegur faðir stúlkunnar eftir getgátur í portúgölskum fjölmiðlum. Gerry sem er hjartasérfræðingur sendi frá sér yfirlýsingu vegna greinar í dagblaðinu 24 Horas.

Erlent

Forseti Armeníu fagnar ályktun Bandaríkjaþings

Forseti Armeníu fagnar ályktun Bandaríkjaþings um að skilgreina fjöldamorð Ottoman Tyrkja á Armenum sem þjóðarrmorð. Allt að ein og hálf milljón Armana voru drepnir í morðunum sem fræðimenn skilgreina sem fyrstu þjóðarmorð tuttugustu aldarinnar. Tyrkir hafa neitað að morðin hafi jafnast á við þjóðarmorð og segja fjölda látinna ýktan.

Erlent

Frjósamar nektardansmeyjar þéna meira

Nektardansmeyjar sem eru á hátindi frjósemi sinnar í tíðahringnum fá að jafnaði meira í þjórfé en starfssystur þeirra sem eru á pillunni. Þetta sýna niðurstöður vísindamanna við háskólann í New Mexico í Bandaríkjunum.

Erlent

Kína mótmælir verðlaunum Dalai Lama

Stjórnvöld í Peking andmæltu í dag áformum Bandaríkjaþings um að heiðra búddaleiðtogann Dalai Lama. Tíbeska útlaganum verður í þessum mánuði veitt gullmedalía bandaríska þingsins, en það er æðsta borgaralega viðurkenning landsins. Kína lítur á Dalai Lama sem aðskilnaðarsinna.

Erlent

Bhutto hvött til að fresta heimför

Pervez Musharraf forseti Pakistan hefur óskað eftir því að Benazir Bhutto fyrrverrandi forsætisráðherra fresti heimkomu sinni þar til Hæstiréttur úrskurðar um lögmæti endurkjörs hans í forsetaembættið.

Erlent

Stríð í Afríku kostar jafnmikið og þróunaraðstoð

Ný skýrsla um stríðsátök í Afríku greinir frá því að þróunarmál síðustu 15 ár hafi kostað álfuna 300 milljarða bandaríkjadala. Kostnaðurinn er jafnhár fjárhæðum sem bárust á tímabilinu í þróunaraðstoð. Það var hópur sjálfstæðra samtaka sem stóðu að rannsókninni, þar á meðal Oxfam, alþjóðasamtakin sem berjast gegn fátækt.

Erlent

Búrma - Mótmælandi deyr í fangelsi

Maður sem barðist fyrir lýðræði í Búrma og var handtekinn í mótmælum í síðasta mánuði lést við yfirheyrslur. Alþjóða mannréttindasamtök pólitískra fanga í Taílandi greindu frá því að maðurinn hefði látist af völdum pyntinga. Dauði hans vekur ugg um öryggi fjölda fanga í Búrma.

Erlent

Áttatíu meintir barnaníðingar handteknir í Portúgal

Lögreglan í Portúgal handtók í gær áttatíu grunaða barnaníðinga og lagði hald á um 150 tölvur í stærstu lögregluaðgerð gegn barnaníðingum í sögu landsins. Hún fer nú í gegnum ógrynni barnakláms sem fannst í aðgerðinni.

Erlent

Múslimar biðla til Páfa um frið

Rúmlega 130 íslamskir fræðimenn hafa skrifað Benedikt páfa og öðrum kristnum leiðtogum bréf þar sem hvatt er til meiri skilnings á milli trúarbragðanna tveggja. Þeir segja að heimsfriður gæti velt á bættum samskiptum á milli múslima og kristinna.

Erlent

Malasía eignast geimfara

Malasía er nú komin í hóp þjóða sem eiga geimfara. Um borð í Soyuz eldflaug sem farin er af stað út í geiminn frá Baikonur í Kazakhstan er sheikinn Muszaphar Shukor frá Malasíu ásamt tveimur öðrum geimförum.

Erlent

Samskipti Tyrklands og Bandaríkjanna í uppnámi

Samskipti Tyrklands og Bandaríkjanna eru í uppnámi þessa stundina og ástæðan er þjóðarmorðið á Armenum fyrir 90 árum síðan. Stjórn Tyrklands hefur fordæmt atkvæðagreiðsu þingnefndar á bandaríkjaþingi þar sem samþykkt var ályktun um að þjóðarmorð hefði verið framið á Armenum í Tyrklandi árin 1915 til 1917.

Erlent

Bandaríkjaþing viðurkenni þjóðarmorð á Armenum

Frumvarp sem viðurkennir þjóðarmorð Tyrkja á Armenum liggur nú fyrir bandaríska þinginu. Utanríkismálanefnd þingsins samþykkti frumvarpið í dag þrátt fyrir hávær mótmæli Tyrkja og tilmæli frá Hvíta húsinu þess efnis að gera það ekki. Abdullah Gul, nýkjörinn forseti Tyrklands lýsti því yfir í dag að ákvörðun nefndarinnar væri óásættanleg.

Erlent

Á leið á árangurslausan fund

Bandaríkin og Rússland virðast ekki vera neitt nærri því að leysa ágreiningsmál sín, nú þegar tveir af æðstu ráðherrum bandaríkjastjórnar halda til Moskvu til viðræðna.

Erlent