Erlent
Obama með forskot á McCain Barack Obama hefur forskot á John McCain í þremur af mikilvægustu fylkjunum í Bandaríkjunum samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Spennan er því farin að magnast í komandi forsetakosningum en Obama hefur 12 prósenta forskot. Erlent 18.6.2008 22:13
Bush vill leyfa olíuboranir við strendur Bandaríkjanna George Bush Bandaríkjaforseti hefur beðið þingið um að aflétta 27 ára banni við því að bora eftir olíu við strendur Bandaríkjanna. Ástæða þess eru sú að hann vill auka sjálfstæði Bandaríkjanna varðandi olíu þannig að þau þurfi ekki að reiða sig á innflutning olíu. Erlent 18.6.2008 16:31
Ísraelsmenn samþykkja vopnahlé í Gaza Ísraelsmenn hafa samþykkt vopnahlé til þess að enda margra mánaða átök við hin palestínsku Hamas-samtök. Á vopnahléið að taka gildi á morgun og ætti það að létta þeirri herkví sem Ísraelsmenn hafa haldið Gazasvæðinu í. Erlent 18.6.2008 15:37
Sigla til hafnar í Japan til að mótmæla háu olíuverði Þúsundir japanskra sjómanna sigla nú bátum sínum í höfn til að mótmæla háu olíuverði, sem er að sliga útgerðirnar. Erlent 18.6.2008 12:42
Bændur á dráttarvélum til Brussel Dráttarvélar voru áberandi á vegum í Belgíu í morgun. Þær stefndu allar sem ein til Brussel. Bændur í Belgíu segjast ekki standa undir sívaxandi olíukostnaði og krefjast þess að stjórnvöld leggi sitt af mörkum til að lækka olíuverðið. Erlent 18.6.2008 12:14
Obama leiðir kapphlaupið með fimm prósentustigum Væri kosið í dag um forseta Bandaríkjanna myndi Barack Obama sigra með 47 prósentum gegn 42 prósentum John McCain. Þetta leiðir ný könnun Reuters-fréttastofunnar í ljós. Erlent 18.6.2008 11:40
Þrír ákærðir fyrir aðild að morðinu á Politkovskaju Rússnesk yfirvöld hafa ákært þrjá menn fyrir aðild að morðinu á rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskaju í október 2006 Erlent 18.6.2008 10:25
Barnaklámsrassía í Danmörku í morgun Lögreglan í Danmörku hefur látið til skarar skríða á nærri 40 stöðum og handtekið fjölda manna í tengslum við dreifingu barnakláms. Erlent 18.6.2008 09:23
Abu Qatada laus úr haldi gegn tryggingu Breskir embættismenn kvörtuðu hástöfum þegar áfrýjunardómstóll þar í landi lét Abu Qatada lausan gegn tryggingu í gær. Qatada hefur verið nefndur hinn andlegi sendiherra Osama bin Laden í Evrópu. Erlent 18.6.2008 08:38
Fimmti fóturinn bætist í hópinn Kanadísk lögregla rannsakar nú fund enn eins mannsfótar sem fundist hefur í sjónum við vesturströnd Kanada, nálægt Vancouver. Þetta er fimmti fóturinn sem finnst á ellefu mánaða tímabili en fyrsti vinstri fóturinn. Erlent 18.6.2008 08:25
Yfirvinna talin orsök þunglyndis og kvíða Fólki sem vinnur yfirvinnu er hættara við þunglyndi og kvíða ef marka má niðurstöður norskrar rannsóknar.Það var hópur rannsóknarfólks við Háskólann í Björgvin í Noregi sem skoðaði rúmlega 10.000 manna hóp sem vann ýmist 40 tíma á viku og skemur eða 41 til 100 tíma. Erlent 18.6.2008 08:19
Dönsk gamalmenni hamingjusömust Dönsk gamalmenni eru þau hamingjusömustu í heimi. Þetta fullyrðir Kristilega dagblaðið danska og vísar í könnun sem nýlega var framkvæmd í nokkrum löndum til að kanna lífsgæði eldri kynslóðarinnar. Erlent 18.6.2008 08:05
Reisa elgsstyttu á Vithatten Svíar hyggjast reisa 45 metra háa og 47 metra langa styttu af elg á fjallinu Vithatten í Norður-Svíþjóð. Stórvirkið er svo mikið um sig að það stendur í tveimur sveitarfélögum, Skellefteå og Arvidsjaur Erlent 18.6.2008 07:55
Fleiri plánetur en talið var Mun fleiri plánetur leynast í alheiminum en almennt hefur verið talið fram til þessa. Þetta segir hópur franskra og svissneskra stjarnvísindamanna en þeir komu nýlega auga á þrjár plánetur á braut umhverfis stjörnu nokkra sem er 42 ljósár frá jörðu. Erlent 18.6.2008 07:50
Innflytjendum til Danmerkur fjölgar og tilgangurinn breytist Fjöldi útgefinna dvalarleyfa í Danmörku hefur nær tvöfaldast síðan árið 2002. Það ár gáfu Danir út rúm 33.000 leyfi en í fyrra voru þau hátt í 59.000. Erlent 18.6.2008 07:41
Mannskæðasta tilræðið í marga mánuði í Írak Að minnsta kosti 51 lét lífið og 75 slösuðust þegar bílsprengja sprakk í Baghdad, höfuðborg Íraks, síðdegis í dag. Erlent 17.6.2008 19:44
Vopnahlé Ísraels og Hamas-samtakanna Ísraelar og palestínsku Hamas-samtökin hafa samið um vopnahlé sem tekur gildi á fimmtudaginn. Breska ríkisútvarpið BBC greindi frá þessu fyrir skömmu. Erlent 17.6.2008 15:18
Ánægja með fjárfestingar í norrænum verkefnum Á nýafstöðnum fundi sínum ræddu norrænu samstarfsráðherrarnir fjárhagsáætlun norrænu ráðherranefndarinnar sem eru tæpar 900 milljónir danskra króna, jafnvirði rúmlega 14 milljarða íslenskra króna. Erlent 17.6.2008 14:38
Ástin blómstrar í Kaliforníu Keith Boadwee og Kenny Latham frá Emeryville í Kaliforníu fagna ákaft eftir að hafa fengið í hendur fyrsta hjónavígsluleyfið sem gefið var út í Alemeda-sýslu í Kaliforníu en hjónabönd samkynhneigðra leyfast þar í fyrsta sinn í dag eftir að Hæstiréttur ríkisins úrskurðaði um miðjan maí að lög sem bönnuðu slík hjónabönd stæðust ekki. Erlent 17.6.2008 12:32
Hátt í hundrað hafa drukknað í Kína Hátt í hundrað manns hafa drukknað í miklum flóðum í suðurhluta Kína. Miklar rigningar hafa valdið flóðunum síðustu daga og er spáð frekara úrhelli næstu daga. Erlent 17.6.2008 10:26
Mugabe telur Tsvangirai espa til ofbeldis Robert Mugabe, forseti Simbabve hefur hótað að handtaka mótframbjóðanda sinn í komandi forsetakosningum, Morgan Tsvangirai, fyrir að espa til ofbeldis í landinu. Erlent 16.6.2008 16:19
Búið að frelsa fólkið úr gíslingu í Hollandi Hollenska lögreglan hefur frelsað fimm manns úr gíslingu og handtekið manninn sem tók fólkið í gíslingu í morgun í ráðhúsi borgarinnar Almelo í Hollandi. Ekki er vitað hvort einhver gíslanna hafi særst á meðan á gíslingunni stóð. Erlent 16.6.2008 16:03
Fleiri breskir hermenn til Afghanistan Forsætisráðherra Bretlands, Gordon Brown tilkynnti að senda ætti fleiri hermenn til Afghanistan þannig að um næsta vor yrði meira en 8000 breskir hermenn þar í landi. Hann sagði að meira en 630 nýjar stöður yrðu búnar til sem þýddi að aukningin yrði 230 stöður þar sem áætlanir væru að hætta með 400 aðrar stöður þar í landi. Erlent 16.6.2008 14:59
Vísindamenn uppgötva pöddu sem býr til olíu Vísindamenn hjá fyrirtækinu LS9 í Sílikondalnum hafa náð að breyta pöddum á erfðarfræðilegan hátt þannig að þær geta nú skilað af sér hráolíu sem úrgangi eftir að hafa verið fóðraðar á landbúnaðarúrgangi. Erlent 16.6.2008 14:19
Nató skoðar inngöngumöguleika Úkraínu Sendinefnd á vegum Nató er að hefja tveggja daga ferð til Úkraínu til þess að ræða næstu skref í mögulegri inngöngu landsins í Nató. Erlent 16.6.2008 12:43
Vara Írana við hertum refsiaðgerðum Bush Bandaríkjaforseti og Brown forsætisráðherra Bretlands vörðu Írana í morgun við hertum refsiaðgerðum ef þeir samþykktu ekki samvinnu við vesturveldin vegna kjarnorkuáætlunar sinnar. Erlent 16.6.2008 12:30
Gíslataka í Hollandi Vopnaðir menn tóku í morgun minnst fjóra í gíslingu í ráðhúsinu í Almelo í Hollandi. Óljósar fréttir hafa borist af málinu en gíslarnir munu enn í haldi mannanna. Erlent 16.6.2008 11:55
Engar skyndilausnir segir írski utanríkisráðherrann Það er allt of snemmt að leita lausna á þeirri niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu Íra að hafna Lissabon-sáttmálanum. Erlent 16.6.2008 09:50
Fresta því að taka afstöðu til breyttra samskipta við Kúbu Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna frestuðu því í morgun að taka ákvörðun um það hvort afnema ætti ýmsar hömlur í samskiptum sambandsins við Kúbu. Verður ákvörðun þar um ekki tekin fyrr en á fimmtudag. Erlent 16.6.2008 09:22
Vilhjálmur prins þúsundasti riddari sokkabandsins Vilhjálmur prins verður í dag þúsundasti riddari sokkabandsorðunnar svokölluðu og fer athöfnin fram í Windsor-kastala og Kapellu heilags Georgs. Erlent 16.6.2008 08:55