Erlent

Slegist um hvalina

Félagar í Sea Shepherd samtökunum fá blautar móttökur þegar þeir hrella hvalveiðiskip Japana á Suður-Íshafinu.

Erlent

Gaddafi nýr leiðtogi Afríkusambandsins

Muammar Gaddafi Líbýuleiðtogi var í morgun kosinn framkvæmdastjóri Afríkusambandsins á fundi þess í Eþíópíu. Gaddafí hlaut yfirgnæfandi stuðning í embættið en einhverjir fundarmenn voru áhyggjufullir vegna þess hve hann hefði verið umdeildur og væri talinn hvikull. Gaddafi hefur verið virkur innan sambandsins. Hann hefur lengi stutt hugmyndir um nánara samstarf Afríkuríkja á vettvangi þess og lagt til milljónir í stuðning við fátækari sambandsríki.

Erlent

Barist í Srí Lanka

Níu almennir borgarar féllu og tuttugu særðust þegar sprengjum var varpað þrívegis á sjúkrahús á norð-austurhluta Srí Lanka. Árásirnar voru gerðar á síðasta sólahring. Uppreisnarmenn Tamíltígra hafa völdin á svæðinu. Stjórnarher landsins segist ekki hafa gert árásir á sjúkrahúsið.

Erlent

Öskuregn í Tokyo

Ösku rigndi í morgun yfir úthverfi Tokyo þegar gos hófst í eldfallinu Asama. Fjallið er um hundrað og fjörutíu kílómetra norðvestur af höfuðborg Japans. Viðvörun hefur verið gefin út og fólki bannað að fara innan við fjóra kílómetra að fjallinu. Aska hefur fallið til jarðar í allt að hundrað sjötíu og fimm kílómetra fjarlægð frá fjallinu og grjóthnullungar fundist í þúsund metra fjarlægð.

Erlent

Ísraelar vörpuðu sprengjum á Gaza í gær

Ísraelskar orrustuþotur gerðu árás á öryggismiðstöð í þorpi á Gaza-svæðinu í gærkvöldi auk þess að varpa sprengjum á munna smyglganga við egypsku landamærin. Enginn særðist í árásinni en Ísraelar hringdu á undan sér og vöruðu við árásinni. Um var að ræða hefndaraðgerð eftir að liðsmenn Hamas-samtakanna skutu flugskeytum yfir til Ísrael og særðu nokkra hermenn fyrr í gær.

Erlent

Japanska eldfjallið Asama gýs

Gos hófst í japanska eldfjallinu Asama snemma í morgun en það er um 140 kílómetra norðvestur af höfuðborginni Tókýó. Viðvörun hefur verið gefin út og er fólki bannað að vera á ferli nær fjallinu en fjóra kílómetra. Aska úr gosinu er tekin að falla til jarðar í allt að 175 kílómetra fjarlægð frá fjallinu. Asama, sem er eitt af 108 virkum eldfjöllum í Japan og gaus síðast árið 2004.

Erlent

Sex ár frá Kólumbíuslysinu í gær

Fánar voru dregnir í hálfa stöng í gær við Kennedy-geimferðamiðstöðina til að minnast geimfaranna sjö sem fórust þegar Kólumbía splundraðist í þann mund sem hún kom til baka inn í lofthjúp jarðar eftir ferðalag sitt en þetta er í eina skiptið í bandarískri geimferðasögu sem slys hefur orðið á heimleið.

Erlent

Fjöldi fíkniefnamála í Árósum tvöfaldast

Fjöldi fíkniefnamála í Árósum í Danmörku hefur meira en tvöfaldast síðan árið 1995. Þetta segir lögreglan á Austur-Jótlandi og bætir því við að fjöldi unglinga á aldrinum 15 til 19 ára, sem komast í kast við lögin, hafi á sama tíma fimmfaldast.

Erlent

Bretar hugsanlega í samhæft verkfall

Samhæft verkfall starfsfólks í breska orkugeiranum gæti skollið á í þessari viku, fari sem horfir. Þetta segir breska blaðið Telegraph í grein um vaxandi óánægju Breta sem margir hverjir telja stjórnvöld útiloka innlenda starfskrafta og nýta sér þess í stað gloppur í Evrópulöggjöf til að ráða erlent starfsfólk gegn mun lægri launum.

Erlent

Varað við fannfergi um allt Bretland

Breskir veðurfræðingar vara við mestu snjókomu í 20 ár um nánast allt Stóra-Bretland í dag. Ekki er nóg með að allt að 30 sentimetra djúpum jafnföllnum snjó sé spáð heldur gera veðurstofur landsins einnig ráð fyrir fimbulkulda alla vikuna.

Erlent

Fagnar kosningum í Írak

Barack Obama forseti Bandaríkjanna segist fagna héraðskosningunum sem fram fóru í Írak í dag og segir þær mikilvægt skref í því að Írakar marki sér bjarta framtíð.

Erlent

Þúsundir mótmæla Pútín

Þúsundir mótmælenda hafa komið saman á fjöldafundi í austurhluta Rússlands þar sem þess er krafist að ríkisstjórn landsins segi af sér vegna efnahagsvandans sem þar ríkir. Mótmælendur í Vladivostok skella skuldinni á Vladimir Pútín forsætisráðherra og vilja meina að hann hafi haldið illa á spöðunum hvað varðar efnahagsmál. Þeir vilja einnig meina að hann hafi leynt þjóðina pólitískum ágreiningi sem þar ríkir.

Erlent

Hafa áhyggjur af börnum á Sri Lanka

Fjöldi barna hefur fallið eða slasast í átökum á Sri Lanka undanfarna 10 daga, segja talsmenn UNICEF. Þeir krefjast þess að stjórnvöld þar í landi og uppreisnarmenn úr röðum Tamíl Tígra gæti öryggis barna og almennum borgurum.

Erlent

Þurfa að vinna sameiginlega að lausn efnahagskreppunnar

Bandaríkin og Kína verða að koma alþjóðaviðskiptum og lánamörkuðum í lag til þess að ná tökum á efnahagskreppunni sem geysar um allan heim. Þetta voru þeir Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og Hu Jintao, forseti Kína, sammála um þegar þeir ræddu saman í símann í dag.

Erlent

Banna Darvocet verkjalyf

Lyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum leggur til að Darvon, verkjalyf sem hefur verið á markaði í 50 ár, verði bannað. Kosið var um þetta hjá Lyfjaeftirlitinu í dag og greiddu 14 banninu atkvæði sitt en 12 greiddu á móti því. Lyfið var fyrst samþykkt árið 1957 þegar engin önnur verkjalyf voru í boði fyrir utan aspirin og sterk verkjalyf.

Erlent

Með vel á annað hundrað vopna

Danska lögreglan hefur á síðustu dögum fundið um 150 skotvopn á mismunandi stöðum á Djursland, eftir því sem Danska ríkisútvarpið hefur eftir lögreglunni á Austur-Jótlandi.

Erlent

Fagnað sem þjóðhetju eftir að hafa strunsað út af fundi

Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, rauk öskureiður af ársþingi Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss í gær eftir snörp orðaskipti við Peres Ísraelsforseta. Deiluefnið var árásir Ísraela á Gaza. Erdogan var fagnað sem hetju við heimkomuna til Tyrklands í gærkvöldi.

Erlent

Ríkisstjóri Illinois rekinn

Ríkisþingið í Illinois í Bandaríkjunum rak í gærkvöldi ríkisstjórann Rod Blagojevich fyrir brot í starfi. Allir fulltrúar á þinginu greiddu atkvæði með því að reka hann. Blagojevich er einnig bannað héðan í frá að gegna opinberu embætti í Illinois-ríki.

Erlent

Skókastarinn í Írak heiðraður með bronsskó

Gríðarmikill skór úr bronsi hefur verið settur upp í bænum Tikrit í Írak til heiðurs blaðamanninum Muntader al-Zaidi sem varð þjóðhetja arabaheimsins í einu vetfangi þegar hann grýtti skóm sínum í George Bush, þáverandi Bandaríkjaforseta, í desember og kallaði hann hund.

Erlent

Samdráttur í Valentínusargjöfum milli ára

Er það virkilega hugurinn sem gildir? Bandarískar turtildúfur komast að því í eitt skipti fyrir öll eftir hálfan mánuð en þá rennur hinn rómaði dagur elskenda upp sem kenndur er við heilagan Valentínus.

Erlent

Mættu með fallbyssukúlu í skólann

Fótur og fit varð uppi í barnaskóla í borginni Naha á japönsku eyjunni Okinawa þegar tveir tólf ára drengir mættu sallarólegir með ósprungna 90 millimetra fallbyssukúlu í skólann í fyrradag.

Erlent

Ráðgjafar Browns höfnuðu sögusafni hans

Áætlanir Gordons Brown, forsætisráðherra Bretlands, um breskt sögusafn, voru blásnar af og það af hans eigin ráðgjöfum. Í stað sögusafns vilja ráðgjafarnir að rafrænum sýndarveruleikasöfnum verði komið fyrir á þeim söfnum sem þegar eru til, þar sem ýmis rafræn söguleg gögn verði höfð til sýnis, svo sem gömul gagnasöfn og vefsíður. Með því sparast stórfé, að mati ráðgjafanna.

Erlent