Erlent

Tveir Bretar féllu í Afganistan

Tveir breskir hermenn létu lífið í sjálfsmorðssprengjuárás talíbana í Helmand-héraðinu í Afganistan í gær. Sprengjumennirnir komu akandi á bifhjóli upp að herflokki á eftirlitsferð og sprengdu sig í loft upp.

Erlent

Kínverjar byggja lengstu brú heims

Kínverjar hafa hafist handa við að smíða brú sem verður sú lengsta í heimi og teygir sig milli Hong Kong og Macau, alls 50 kílómetra vegalengd, þar af 35 kílómetrar yfir hafi.

Erlent

Skaut rakettu að bæjarstarfsmanni

Maður var handtekinn í bænum Nørresundby á Norður-Jótlandi eftir að hann skaut stórri rakettu að bæjarstarfsmanni sem hafði nýlokið við að saga niður tré við götuna. Sá, sem rakettunni skaut, var staddur á svölum íbúðar sinnar og var að sögn lögreglu ósáttur við að bæjaryfirvöld hygðust fjarlægja tréð.

Erlent

Frá Guantanamo til Illinois

Margir þeirra fanga, sem enn eru í haldi í fangabúðum Bandaríkjahers í Guantanamo á Kúbu, verða fluttir í hámarksöryggisfangelsi í Illinois.

Erlent

Milljón Bretar á sjúkrahús vegna drykkju

Tæplega milljón breskir ofdrykkjumenn voru lagðir inn á sjúkrahús árið 2008 vegna ýmissa kvilla sem tengdust drykkjunni. Slíkum tilfellum hefur fjölgað um helming síðan árið 2004 ef marka má svar við fyrirspurn sem lögð var fram á breska þinginu nýlega.

Erlent

Enginn heimsendir enn

Öreindahraðall evrópsku kjarnarannsóknastofnunarinnar CERN í Sviss hefur framkallað meira en 50 þúsund árekstra öreinda á hærra orkustigi en nokkru sinni hefur þekkst frá því hann var tekinn í notkun á ný í síðasta mánuði.

Erlent

Olli jarðskjálfta með djúpborun

Jarðfræðingurinn Markus Häring sætir nú málaferlum í Sviss fyrir að hafa valdið nokkrum jarðskjálftum með tilraunum sínum með djúpboranir árið 2006.

Erlent

Nokkrir sendir til Illinoisríkis

Lítið notað ríkisfangelsi í sveitahéruðum Illinois verður notað til að hýsa nokkra fanga sem Bandaríkjaher hefur haldið árum saman án dóms og laga í Guantanamo-búðunum á Kúbu.

Erlent

Notar kókoshnetur til skjóls

Ástralskir vísindamenn hafa fundið kolkrabbategund í Indónesíu sem safnar kókoshnetuskeljum og notar þær til að skýla sér. Þetta er líklega í fyrsta sinn sem hryggleysingi sést nota verkfæri.

Erlent

Hraunfljótið ógnar íbúum

Mayon er virkasta eldfjallið á Filippseyjum. Fyrir fjórum árum þurftu þrjátíu þúsund manns að flýja að heiman þegar eldgos hófst í fjallinu. Annað eldgos árið 1993 kostaði 79 manns lífið.

Erlent

Silvio Berlusconi: Ástin sigrar hatrið

Forsætisráðherrann umdeildi, Silvio Berlusconi, sendi stuðningsmönnum sínum skilaboð frá spítalanum þar sem hann dvelur en þar stóð meðal annars að ástin sigrar hatrið að lokum.

Erlent

Árásarvopn selst eins og heitar lummur

Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu hefur sent stuðningsmönnum sínum orðsendingu þar sem hann þakkar þeim fyrir hlýhug eftir árásina sem hann varð fyrir í Milanó um síðustu helgi.

Erlent

Tugþúsundir flýja eldfjall á Filipseyjum

Yfirvöld á Filipseyjum byrjuðu í dag að flytja um fimmtíu þúsund manns í Albay héraði þar sem eldfjallið Mayon er talið um það bil að gjósa. Það er um 500 kílómetra sunnan við höfuðborgina Manila.

Erlent

„Flögudíler“ rekinn úr skóla

Tólf ára gömlum dreng hefur verið vikið tímabundið úr skóla í Liverpool fyrir að selja skólafélögum sínum kartöfluflögur. Breska blaðið Liverpool Echo greinir frá þessu en strákurinn seldi flögupokann með fimmtíu pensa álagningu.

Erlent

Fimm létust í sprengingu í Kabúl

Fimm eru látnir hið minnsta og tugir særðir eftir að maður sprengdi sjálfan sig í loft upp í Kabúl höfuðborg Afganistan í morgun. Á meðal þeirra sem létust voru lífverðir fyrrverandi varaforseta landsins Ahmed Zhia Massoud. Sprengingin varð rétt áður en forseti landsins Hamid Karzai átti að halda opnunarræðuna á þriggja daga ráðstefnu sem ætlað er að fjalla um spillingu í landinu.

Erlent

Forskot íhaldsmanna minnkar

Ný könnun sýnir að forskot breska Íhaldsflokksins á Verkamannaflokkinn hefur ekki verið minna í heilt ár. Breska blaðið Guardian lét fyrirtækið ICM gera könnunina og kemur í ljós að forskot íhaldsmanna er aðeins níu prósent, en minni munur hefur ekki mælst í könnunum frá því í desember 2008. Blaðið telur ljóst að þetta auki líkurnar á því að Gordon Brown forsætisráðhera Breta boði til kosninga fyrr en seinna.

Erlent

Árásarmaður Berlusconis fyrir rétt í dag

Maðurinn sem henti styttu af dómkirkjunni í Mílanó í andlitið á Silvio Berlusconi forseta Ítalíu verður dreginn fyrir rétt síðar í dag. Massimo Tartaglio er ákærður fyrir að valda opinberum embættismanni skaða og gæti hann átt yfir höfði sér fimm ára fangelsi. Atvikið vakti mikla athygli en Berlusconi blóðgaðist nokkuð þegar styttan kom fljúgandi auk þess sem tvær tennur brotnuðu. Hann verður frá vinnu um tíma vegna þessa.

Erlent

Verkfall yfirvofandi hjá British Airways

Flugliðar hjá British Airways hafa samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta að fara í verkfall fyrir jól náist ekki samkomulag í vinnudeilu þeirra við fyrirtækið. Tekist er á um niðurskurðaráætlanir sem gera ráð fyrir fækkun flugmanna og breytingum á launasamningum.

Erlent

Hitabeltisstormurinn Mick fór yfir Fiji

Þrír eru látnir í það minnsta á eyjunni Viti Levu, sem er stærsta eyja Fiji eyjaklasans í Kyrrahafinu, eftir að hitabeltisstormurinn Mick fór þar um. Rafmagnslaust er á eyjunum og þurftu þúsundir eyjaskegga að flýja heimili sín og í sérstök stormskýli. Miklir vatnavextir fylgdu veðrinu en Mick er fyristi stormur sumarsins sem er nýgengið í garð á þessum slóðum. Mick stefnir nú hraðbyri að eyjunni Tonga þar sem menn búa sig undir hið versta.

Erlent

Sprengt í Bagdad

Nokkrar bílsprengjur sprungu með stuttu millibili í Bagdad, höfuðborg Íraks í nótt. Að minnsta kosti fjórir eru látnir og tugir slasaðir en sprengjurnar sprungu allar fyrir utan hið vígvarða Græna svæði. Ofbeldisverk hafa aukist í borginni upp á síðkastið og í síðustu viku létust 127 í svipaðri árás þar sem margar sprengjur sprungu með skömmu millibili og í október féllu 155 manns, einnig í röð sprengjuárása.

Erlent

Átök í Kristjaníu

Til nokkura átaka kom á milli lögreglu og mótmælenda í Kaupmannahöfn í nótt þar sem Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna stendur nú sem hæst. Mest voru lætin í Kristjaníu og beitti lögreglan táragasi gegn fólki og sveimuðu þyrlur yfir hverfinu sem í gegnum tíðina hefur oft verið vettvangur átaka á milli lögreglu og íbúa þess.

Erlent