Erlent
Enginn hefur fundist á lífi Búið er að finna 38 lík úr Boeing þotu Ethiopean Airlines sem fórst skömmu eftir flugtak í Líbanon í gærkvöldi. Líbanski herinn stjórnar leitinni undan strönd landsins. Búið er að finna bæði brak úr vélinni og lík. Enginn hefur fundist á lífi og er ekki búist við að það gerist. Erlent 25.1.2010 16:46
Efnavopna-Ali hengdur Írakinn Ali Hassan al-Majid, eða Efnavopna-Ali eins og hann var yfirleitt kallaður, var tekinn af lífi í dag. Hann var frændi Saddams Hussein fyrrum Íraksforseta. Erlent 25.1.2010 14:47
Á fjórða tug látnir í Bagdad Að minnsta kosti 32 eru látnir og 40 eru særðir eftir að þrjár sprengjur sprungu á sama tíma í miðborg Bagdad, höfuðborgar Íraks, fyrr í dag. Breska fréttastofan Sky hefur eftir írösku lögreglunni að um hafi verið að ræða bílsprengjur sem sprungu við þrjú hótel í miðborginni. Erlent 25.1.2010 14:01
Aung San sleppt eftir kosningar í Burma Ráðherra í Burma hefur sagt að Aung San Suu Kyi leiðtoga stjórnarandstöðunnar verði sleppt úr stofufangelsi í nóvember næstkomandi. Erlent 25.1.2010 10:38
Var Da Vinci sjálfur Mona Lisa? Vísindamenn og sagnfræðingar í ítölsku Þjóðminjanefndinni hafa farið framá að fá að opna grafhýsi Leonardos Da Vinci til að komast að því hvort málverkið af Monu Lisu sé sjálfsmynd listamannsins. Erlent 25.1.2010 10:05
Köld eru kvenna ráð Þegar Charles Philips ákvað að snúa sér eingöngu að konu sinni eftir átta ára framhjáhald með YaVaughnie Wilkins hefndi hún sín rækilega. Erlent 25.1.2010 08:32
Chavez lokar sjónvarpsstöð Húgó Chavez forseti Venesúela hefur látið loka sjónvarpsstöð sem hefur verið gagnrýnin á stjórn hans. Erlent 25.1.2010 08:28
Kínverjar afneita Google hakki Google hótaði hinn tólfta þessa mánaðar að hætta allri starfsemi í Kína og loka þar skrifstofum sínum eftir að einhverjir hökkuðu sig inn í rafpóst mannréttindasamtaka bæði kínverskra og erlendra. Erlent 25.1.2010 08:20
Vilja kaupa frið af talibönum Utanríkisráðherra Þýskalands vill að Vesturveldin kaupi Talibana frá uppreisnariðju sinni. Bandaríkin eru sögð styðja þá hugmynd. Erlent 25.1.2010 08:16
Hrapaði eftir fimm mínútna flug Veður var vont þegar Boeing þota Ethiopian Airlines tók á loft frá flugvellinum í Beirut, þrumur og eldingar og úrhellis rigning. Aðeins fimm mínútum síðar rofnaði samband við vélina og hún hvarf af ratsjá. Erlent 25.1.2010 06:44
Tala látinna komin í 150 þúsund Tala látinna í Port-au-Prince höfuðborg Haítí er komin í 150 þúsund, að því er fréttastofa BBC greinir frá. Erlent 24.1.2010 21:00
Varnarmálaráðherra Breta kjaftaði af sér Bob Ainsworth, varnarmálaráðherra Breta, virtist í dag óvart hafa talað af sér varðandi fyrirhugaða dagsetningu á næstu þingkosningum í Bretlandi. Flest bendir til þess að Bretar gangi að kjörborðinu þann 6. maí næstkomandi. Erlent 24.1.2010 16:14
Sannfærðir um að Bernanke haldi áfram í seðlabankanum Hæstráðendur í Hvíta húsinu í Bandaríkjunum eru sannfærðir um að Öldungadeild Bandaríkjaþings muni staðfesta val forsetans á Ben Bernanke í embætti seðlabankastjóra næstu fjögur árin. Erlent 24.1.2010 14:46
Árásum á Bandaríkin hótað Frekari árásum á Bandaríkin er hótað í myndskeiði ef stjórnvöld þar halda áfram að styðja Ísraelsríki. Myndskeiðið er sagt vera frá Osama Bin Laden. Erlent 24.1.2010 10:30
Konur þjálfaðar í sjálfsmorðsárásir á vestræn skotmörk Hryðjuverkahópar úr röðum al-Qaeda hafa þjálfað konur til þess að gera sjálfsmorðsárásir á vestræn skotmörk, að því er bandarísk yfirvöld fullyrða. Erlent 24.1.2010 10:16
Vitjuðu rústa Montana hótelsins á Haítí Ættingjar Bandaríkjamanna sem fórust í jarðskjálftanum á Haítí vitjuðu rústa Montana hótelsins í Port-au Prince höfðuðborg landsins í gær, þar sem talið er að fólkið hvíli enn undir rústum hótelsins. Erlent 24.1.2010 09:17
Danir finna fyrir agavandamálum Næstum hvern einasta dag koma upp vandamál vegna hávaða í skólastofum. Þetta sýna niðurstöður sem gerðar voru á meðal danskra nemenda. Niðurstöðurnar sýna einnig að þetta hafi skaðleg áhrif á nám barnanna. Erlent 24.1.2010 08:00
Ný rannsókn bendir til þess að kódein auki líkur á banaslysum Lyfið kódein, sem er algengt verkjalyf, getur aukið líkur á banaslysum í umferðinni, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem sagt er frá á vef Daily Mail í dag. Erlent 23.1.2010 14:23
Fundu yfirgefið barn í kapellu Sjö mánaða gamalt barn fannst yfirgefið í kapellu á Írlandi seinnipartinn í gær. Talið er að barnið sé frá Nottinghamskíri en hvarf barnsins uppgötvaðist á fimmtudag. Erlent 23.1.2010 13:13
Bretar óttast hryðjuverk Bretar hafa fært viðbúnaðarstig sitt vegna hryðjuverkaógnar í „alvarlegt ástand" vegna ótta um að al-Qaeda hryðjuverkasamtökin séu að skipuleggja árásarhrinu í Bretlandi eftir að hafa reynt að sprengja upp farþegaþotu á leið til Detroit í Bandaríkjunum um jólin. Erlent 23.1.2010 11:32
Stjörnunar öfluðu fjár fyrir Haítí Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna óttast um þau þúsundir barna sem urðu munaðarlaus í jarðskjálftanum á Haítí og ráfa jafnvel um án nokkurar umönnunar fullorðins fólks. Unnið er að því að reyna að sameina sem flest þeirra einhverjum ættingjum eða koma þeim í öruggt skjól. Talsmenn Barnahjálparinnar óttast að börnin verði misnotðuð eða þeim rænt. Erlent 23.1.2010 09:52
Kvartar undan orðum Clinton Kínversk stjórnvöld hafa brugðist illa við hvatningarorðum Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um að hömlum á notkun Netsins verði aflétt í Kína. Erlent 23.1.2010 03:45
Fólk verður flutt í tjaldbúðir Stjórnvöld á Haítí ætla að hjálpa um 400 þúsund manns að flytja úr höfuðborginni Port-au-Prince í nýjar tjaldborgir utan við borgina. Tilgangurinn er sá að koma í veg fyrir að smitsjúkdómar breiðist út meðal borgarbúa, sem hafa þurft að hola sér niður hvar sem þeir geta eftir að harður jarðskjálfti lagði borgina nánast í rúst snemma í síðustu viku. Erlent 23.1.2010 03:00
Herðir tökin á stórbönkunum Barack Obama Bandaríkjaforseti kynnti á fimmtudag hertar reglur um starfsemi fjármálafyrirtækja. Meðal annars verður ríkinu gert heimilt að takmarka það hversu stór og flókin starfsemi þeirra getur orðið. Einnig verður hægt að takmarka möguleika þeirra til að taka þátt í áhættuviðskiptum. Erlent 23.1.2010 01:00
Þingmenn láti af sníkjum Úrskurður Hæstaréttar Bandaríkjanna á fimmtudag, um að fyrirtækjum sé heimilt að styrkja kosningabaráttu stjórnmálamanna að vild, hefur vakið margvísleg viðbrögð. Erlent 23.1.2010 00:30
Dæmd fyrir ónáttúruleg kynlífsöskur Caroline Cartwright hefur verið dæmd í átta vikna fangelsi en refsingu skal frestað í tólf mánuði og fellur niður haldi hún almennt skilorð. Glæpurinn sem hún er dæmd fyrir; Caroline öskraði af svo miklum krafti þegar hún svaf hjá eiginmanni sínum að það þótti ástæða til þess að ákæra hana og að lokum dæma. Erlent 22.1.2010 23:06
Skyndi-ættleiðingar geta aukið á hryllilegar upplifanir barna frá Haítí Unicef hefur varað við fyrirhuguðum flýtimeðferðum á ættleiðingum barna frá Haítí. Allnokkur lönd hafa í hyggju að flýta ferlinu þannig að það sé hægt að ættleiða eitthvert af þeim þúsundum börnum sem eru heimilislaus eftir jarðskjálftann. Erlent 22.1.2010 21:27
Abbas hafnar friðarviðræðum við Ísrael Mahmoud Abbas forseti palestínumanna hefur synjað beiðni Bandaríkjamanna um að hefja aftur friðarviðræður við Ísrael. Erlent 22.1.2010 16:18
Larsson skrifaði ekki Millenium bækurnar Sænskur blaðamaður segir að metsöluhöfundurinn Stieg Larsson hafi skrifað svo illa að útilokað sé að hann hafi skrifað Millenium bækurnar um þau Blomkvist og Lisbet Salander. Erlent 22.1.2010 15:55
Yemen snýst til varnar gegn al-Kaida Yfirvöld í Yemen hafa þrengt verulega vegabréfsáritanir til þess að reyna að stemma stigu við því að islamistar laumi sér inn í landið til þess að komast í þjálfunarbúðir al-Kaida þar. Erlent 22.1.2010 15:18