Fótbolti
Bale er enn meiddur og gæti misst af leiknum gegn AC Milan Gareth Bale hefur farið á kostum með liði Tottenham í vetur í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu. Litlar líkur eru á því að landsliðsmaðurinn frá Wales verði klár í slaginn gegn AC Milan frá Ítalíu í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar sem hefst í næstu viku. Enski boltinn 10.2.2011 10:00
Hughton tekur líklega við WBA Chris Hughton verður að öllum líkindum næsti knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins WBA en hann var rekinn frá Newcastle fyrr í vetur. Talið er að forráðamenn WBA greini frá ráðningu hans í dag en WBA hefur verið í viðræðum við Hughton undanfarna daga. Enski boltinn 10.2.2011 09:30
Adriano neitaði að blása í áfengismæli og missti prófið Brasilíski framherjinn Adriano er manna duglegastur að koma sér í vandræði utan vallar og nú síðast missti hann bílprófið þegar hann var heima í Brasilíu. Adriano er nýkominn aftur til Ítalíu til að spila með Roma en var í Brasilíu í meðferð vegna axlarmeiðsla. Fótbolti 9.2.2011 23:45
Lampard hrósaði Wilshere Frank Lampard bar fyrirliðabandið hjá Englandi í fyrsta skipti á ferlinum í kvöld er England sótti Dani heim á Parken. England vann leikinn, 1-2. Fótbolti 9.2.2011 23:19
West Ham að vinna kapphlaupið um Ólympíuleikvanginn BBC-fréttastofan greindi frá því í kvöld að West Ham hefði unnið slaginn um Ólympíuleikvanginn í London og félagið tæki því við vellinum eftir ÓL árið 2012. Enski boltinn 9.2.2011 22:45
England lagði Dani - Messi hafði betur gegn Ronaldo Ashley Young tryggði Englandi sigur á Dönum á Parken, 1-2, eftir að Englandi hafði lent undir í leiknum er Daniel Agger skoraði fyrir Dani. Fótbolti 9.2.2011 22:04
Tollverðir eyðilögðu HM-skyrtu Trezeguet frá 1998 HM-treyja Frakkans David Trezeguet frá því í úrslitaleik HM 1998 var eyðilögð af tollvörðum í Frakklandi á leið sinni til manns sem hafði borgað 7350 evrur fyrir treyjuna eða 1,1 milljón íslenskra króna. Fótbolti 9.2.2011 19:15
Zlatan Ibrahimovic: Er að gera út af við mig á öllum þessum hlaupum Zlatan Ibrahimovic kvartar mikið undan álaginu hjá AC Milan en þessi snjalli sænski knattspyrnumaður á mikinn þátt í frábæru gengi liðsins í ítölsku deildinni á þessu tímabili. Zlatan kom til AC Milan frá Barcelona fyrir tímabilið og hefur skorað 13 mörk og gefið 10 stoðsendingar í 22 leikjum í ítölsku A-deildinni í vetur. AC Milan er á toppnum. Fótbolti 9.2.2011 18:30
Mario Gomez: Chelsea bauð 42 milljónir evra í mig í janúar Mario Gomez, framherji Bayern Munchen, segir að Chelsea hafi reynt að kaupa sig frá þýska liðinu í janúarglugganum. Bayern hafnaði tilboði Chelsea upp á 35,7 milljónir punda og keypti í staðinn Fernando Torres fyrir 50 milljónir punda frá Liverpool. Enski boltinn 9.2.2011 17:45
James Hurst lék vel með 19 ára landsliði Englendinga í gær James Hurst, fyrrum leikmaður Eyjamanna, átti mjög góðan leik í hægri bakverðinum þegar 19 ára landslið Englendinga mætti Þjóðverjum í vináttulandsleik í gær. Þjóðverjar unnu leikinn 1-0 en spilað var á heimavelli Chesterfield. Fótbolti 9.2.2011 17:00
Vieira: Tevez er eins góður og Thierry Henry var Patrick Vieira hrósaði Carlos Tevez mikið í viðtali við Daily Star í dag og segir að Argentínumaðurinn sé jafnmikivægur fyrir Manchester City og Frakkinn Thierry Henry var fyrir Arsenal á sínum tíma. Henry raðaði inn mörkum á meðan Arsenal raðaði inn titlum á átta árum hans hjá félaginu. Enski boltinn 9.2.2011 16:30
Barcelona-ævintýri Cesc Fabregas úr sögunni Raul Sanllehi, yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona, segir að félagið muni ekki gera annað tilboð í Cesc Fabregas, fyrirliða Arsenal, en félagið eltist við Fabregas allt síðasta sumar og hefur verið orðað við leikmanninn í langan tíma. Enski boltinn 9.2.2011 16:00
Bendtner: Walcott-sagan má ekki endurtaka sig með Wilshere Daninn Nicklas Bendtner hefur varað Englendinga við því að þeir verða að fara betur með Jack Wilshere en þeir gerðu með Theo Walcott á sínum tíma. Wilshere byrjar inn á í fyrsta sinn með enska landsliðinu á móti Dönum í kvöld. Enski boltinn 9.2.2011 15:30
Bent og Rooney byrja líklega saman frammi á móti Dönum Darren Bent fær væntanlega tækifæri í byrjunarliði enska landsliðsins á móti Dönum í kvöld en Fabio Capello mun líklega tefla fram honum og Wayne Rooney saman í framlínu enska liðsins á Parken. Enski boltinn 9.2.2011 13:30
Stelur Manchester United þessum strák af Porto? - myndband Honum hefur verið líkt við Lionel Messi og þykir einn af efnilegustu knattspyrnumönnum heims. Hinn 17 ára gamli Juan Manuel Iturbe hefur farið á kostum með argentínska 20 ára landsliðinu í Suður-Ameríkukeppni 20 ára og yngri sem nú stendur yfir í Perú. Enski boltinn 9.2.2011 12:30
Capello líkir Jack Wilshere við Baresi, Maldini og Raúl Jack Wilshire, miðjumaður Arsenal, verður í fyrsta sinn í byrjunarliði enska landsliðsins í kvöld þegar Englendingar mæta Dönum í vináttulandsleik á Parken í Kaupmannahöfn. Fabio Capello hefur mikla trú á stráknum og ætlar að byggja enska landsliðið í kringum hann. Enski boltinn 9.2.2011 11:30
Eyjólfur ráðinn aðstoðarþjálfari Wolfsburg Eyjólfur Sverrisson hefur samkvæmt heimildum Visis verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari þýska liðsins Wolfsburg. Eyjólfur er staddur í Þýskalandi þessa stundina þar sem hann er að ganga frá sínum málum við félagið en hann mun starfa hjá liðinu út leiktíðina. Fótbolti 9.2.2011 10:53
Richard Keys og Andy Gray komnir með nýjan spjallþátt - í útvarpi Andy Gray og Richard Keys hafa fundið sér nýja vinnu eftir að Sky-Sjónvarpsstöðin rak þá á dögunum fyrir karlrembu ummæli sín um kvenkyns-dómara. Atvikið gerðist utan útsendingar á leik Wolves og Liverpool þegar Sian Massey var aðstoðardómari. Enski boltinn 9.2.2011 10:45
Samningi Ingólfs við Heerenveen sagt upp - fer hann í Val? Ingólfur Sigurðsson er hættur hjá Heerenveen í Hollandi en það kemur fram á vef hollenska félagsins að samningi hans hafi verið sagt upp. Fótbolti.net skrifar um það í dag að Ingólfur sé hugsanlega á leiðinni í Val. Íslenski boltinn 9.2.2011 10:15
Sir Alex samdi við Serbana um að hvíla Nemanja Vidic Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, gerði sitt í að tryggja það að liðið verði örugglega með annan aðalmiðvörð sinn kláran fyrir Manchester-slaginn á móti City á laugardaginn. Enski boltinn 9.2.2011 09:45
Didier Drogba: Chelsea-liðið þjakað af þunglyndi Didier Drogba, framherji Chelsea, segir að tapið á móti Liverpool verði liðinu mjög dýrkeypt í titilbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni og að allt Chelsea-liðið sé í raun í sárum eftir leikinn. Enski boltinn 9.2.2011 09:15
Risa vináttulandsleikir í kvöld Það verða flottir landsleikir spilaðir í kvöld en þá fara fram fjölmargir vináttulandsleikir. Það eru sex vikur í að undankeppni EM 2012 fari aftur af stað á nýjan leik og er Ísland aðeins ein af fjórum Evrópuþjóðum sem eru ekki að spila í þessari viku. Hinar eru Færeyjar, Svartfjallaland og Litháen. Fótbolti 9.2.2011 07:00
Meint hjákona Tevez stígur fram Carlos Tevez stendur sig vel innan vallar sem utan því hann er duglegur að slá sér upp með hinum og þessum gyðjum frá Argentínu. Enski boltinn 8.2.2011 23:30
Leikmenn Liverpool vilja halda Dalglish Það virðist aðeins vera tímaspursmál hvenær Kenny Dalglish skrifi undir langtímasamning við Liverpool. Hann er á mikilli siglingu með liðið og leikmenn vilja halda honum. Enski boltinn 8.2.2011 23:00
Pep Guardiola búinn að framlengja samning sinn við Barcelona Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, er búinn að samþykkja að framlengja samning við við Barcelona til enda næsta tímabils. Guardiola mun undirrita nýja samninginn á næstu dögum. Fótbolti 8.2.2011 22:30
Brasilíumaðurinn Motta stoltur af því að spila fyrir Ítalíu Það hefur vakið talsverða athygli að Brasilíumaðurinn Thiago Motta, sem leikur með Inter, hafi ákveðið að spila með ítalska landsliðinu. Fótbolti 8.2.2011 21:45
Svíar unnu 2-0 sigur á Kýpur Kýpverjar, næstu mótherjar íslenska landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins, undirbjuggu sig fyrir Íslandsleikinn í næsta mánuði með því að fá Svía í heimsókn í dag. Svíar unnu leikinn 2-0 en bæði mörkin komu í fyrri hálfleiknum. Fótbolti 8.2.2011 19:11
Villa segir að Carroll og Suarez muni slá í gegn David Villa, framherji Barcelona, virðist fylgjast vel með enska boltanum því hann hefur nú lagt orð í belg varðandi hið nýja framherjapar Liverpool. Enski boltinn 8.2.2011 18:45
Grant réð ekki við sig og hélt upp á afmælið í spilavíti Avram Grant, stjóri West Ham, varð 56 ára á sunnudag og fékk tap í afmælisgjöf frá lærisveinum sínum. Með tapinu fylgdi botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 8.2.2011 18:00
Chelsea ætlar að bjóða 50 millur í Fabregas Barcelona fær ekki að bjóða í friði í Cesc Fabregas. Chelsea ætlar að blanda sér í slaginn og er sagt vera til í að greiða sömu upphæð og fyrir Fernando Torres - 50 milljónir punda. Enski boltinn 8.2.2011 17:30