Markalaust hjá United og AZ

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Mason Greenwood var á meðal ungu leikmannanna sem fengu sénsinn í kvöld
Mason Greenwood var á meðal ungu leikmannanna sem fengu sénsinn í kvöld vísir/getty
Manchester United tókst ekki að skora mark gegn AZ Alkmaar í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.

United átti ekki eitt skot á markrammann í leiknum og endaði hann í 0-0 jafntefli. Hvorugt lið gerði sig almennilega líklegt til þess að skora mark og niðurstaðan því þessi.

Jesse Lingaard komst hvað næst því að skora í annars bragðdaufum leik en skot hans fór framhjá markinu. Þá vildu bæði lið fá vítaspyrnu en litháenski dómari leiksins gaf það ekki eftir.

United er með fjögur stig í riðlinum eftir sigur í fyrstu umferðinni en Alkmaar tvö.

Albert Guðmundsson gat ekki spilað með AZ vegna meiðsla.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira