Sjálfsmark Shaw skildi liðin að

Anton Ingi Leifsson skrifar
Markið skorað.
Markið skorað. vísir/getty
Barcelona er með 1-0 forystu gegn Manchester United eftir fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Leikið var á Old Trafford fyrir framan fullu húsi í kvöld.

Börsungar voru mikið með boltann í upphafi leiksins og það var ekki mjög óvænt þegar Börsungar komust yfir á tólftu mínútu leiksins. Heppnisstimpill yfir markinu en einnig sofandi háttur í varnarleik United.

Lionel Messi fékk boltann inni í teignum hjá United, vippaði boltanum á fjærstöngina þar sem Luis Suarez skallaði boltann í Luke Shaw og í netið. Í fyrstu var markið dæmt af vegna rangstöðu en eftir skoðun í VARsjánni var markið dæmt gott og gilt.







United fékk tækifæri í fyrri hálfleik til þess að jafna metin. Diego Dalot fékk gapandi frían skalla á fjærstönginni en skallaði framhjá. Börsungar voru 1-0 yfir í hálfleik.

Síðari hálfleikurinn var mjög svo rólegur. Lítið um færi og Börsungar héldu boltanum vel innan liðsins. United náði aldrei að setja almennilega pressu á Barcelona og lokatölur 1-0.

Það er því verk að vinna fyrir United í síðari leiknum sem fer fram á Camp Nou næsta þriðjudag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira