Körfubolti

Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlin voru mun sterkari í leiknum gegn Bonn í kvöld.
Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlin voru mun sterkari í leiknum gegn Bonn í kvöld. getty/Soeren Stache

Alba Berlin styrkti stöðu sína í 2. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta með öruggum sigri á Bonn, 91-75, í kvöld.

Martin Hermannsson og félagar eru nú með 42 stig í 2. sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Bayern München sem hefur leikið einum leik færra en Alba Berlin.

Berlínarliðið byrjaði leik kvöldsins af miklum krafti og náði strax góðu forskoti. Eftir 1. leikhluta munaði fjórtán stigum á liðunum, 32-18, og í hálfleik var munurinn átján stig, 52-34.

Snemma í seinni hálfleik var ljóst í hvað stefndi og á endanum vann Alba Berlin sextán stiga sigur, 91-75.

Martin skoraði þrettán stig á þeim tæpu sextán mínútum sem hann spilaði í kvöld. Hann hitti úr fimm af sex skotum sínum og nýtti bæði vítin sín. Martin gaf einnig þrjár stoðsendingar.

Alba Berlin á eftir að spila fimm leiki áður en úrslitakeppnin hefst. Næsti leikur liðsins er gegn Ulm á miðvikudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×