Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. apríl 2026 21:00 Valur - Grindavík Subway karla L3 sumar 2024 Valsmenn réðu lögum og lofum í fyrri hálfleik í fyrsta leik undanúrslita Bónus deildar karla í Grindavík í kvöld. Höfðu þó bara tíu stiga forskot en Grindavík náði að kreista fram eins stigs sigur 82-81 og hafa tekið forskot í einvíginu. Heimamenn skoruðu fyrstu fimm stig leiksins en svo fraus allt saman í sóknarleik þeirra sem gerði það að verkum að Valsmenn jöfnuðu metin í 5-5 og keyrðu síðan áfram upp í 5-10 og svo 11-20 þegar fyrsta leikhluta var lokið. Varnarleikur beggja liða var frábær en Valsmenn nýttu það betur á sóknarhelming vallarsins og komu sér í góða stöðu. Grindvíkingar hins vegar nýttu hvorki sniðskotin sín né þristana og voru með 30% nýtingu í heild sinni í leikhlutaskiptunum. Valsmenn skoruðu fimm fyrstu stig annars leikhluta og þetta gat varla gengið verr hjá heimamönnum. Þeir náðu þó einhverjum tökum á leik sínum en Valsmenn náðu að keyra upp í 16 stiga forskot 19-35 þegar um fjórar mínútur voru til hálfleiks og manni leið eins og munurinn ætti að vera meiri og að deildarmeistararnir væru úr leik bara. Grindavík lokaði leikhlutanum þó betur á meðan sóknarleikur gestanna stirðnaði algjörlega. Valsmenn komust upp í 39 stig þegar tvær mínútur voru eftir og svo ekki söguna meir. Grindavík skoraði sjö síðustu stig fyrri hálfleiks og voru ekki nema 10 stigum undir í hálfleik, 29-39 en það er lægsta stigaskor Grindvíkinga í hálfleik í úrslitakeppni síðan 1994. Leikur tveggja hálfleika Eins og ég sagði áðan þá hélt blaðamannastúkan að þessum leik væri lokið. Grindvíkingar voru ekki á sama máli. Þeir byrjuðu þriðja leikhlutann á 11-2 áhlaupi og allt í einu var staðan 40-41. Valsmenn þurftu að taka leikhlé og svöruðu með sex næstu stigum og svo var skipst á körfum út þriðja leikhlutann en Valur alltaf í bílstjórasætinu. Grindavík jafnaði metin í 58-58 en Keyshawn Woods sá til þess Valur var með sex stiga forskot eftir þriðja leikhluta en staðan þá 58-64. Bæði lið voru eilítið vanstillt í upphafi fjórða leikhluta og tóku skrýtnar ákvarðanir og skrýtin skot. Leikurinn var þó í jafnvægi og orðinn mjög spennandi. Liðin skipsust aftur á körfum og Valsmenn náðu ekki að slíta sig frá og Grindvíkingar náðu ekki að jafna metin. Igor Maric kom inn á og setti niður þrjá þrista í röð sem hjálpaði Valsmönnum til að komast í 11 stiga forskot 68-77. Aftur fraus í sóknarpípum gestanna en það voru fjórar mínútur eftir af leiknum. Grindavík nagaði niður forskotið og jöfnuðu metin í 80-80 þegar um tvær mínútur voru eftir. Þá stirðnuðu bæði lið en Frank Booker setti niður víti sem gerði það að verkum að Valur var einu stigi yfir. Bæði lið reyndu eins og þau gátu til að skora en þegar 26 sekúndur voru eftir af leiknum mætti Jeremy Pargo inn í teiginn, sendi Hjálmar Stef í loftið og sökkti skoti sínu niður. Staðan 82-81 og Grindavík yfir í fyrsta skipti síðan í stöðunni 5-0 þegar 8:37 voru eftir af fyrsta leikhluta. Valsmenn reyndu eins og þeir gátu að komast á körfuna, Woods komst nálægt, en skotið geigaði og 1 sekúnda eftir. Óli Óla fékk villu og brenndi af tveimur vítum og Grindavík kom í veg fyrir að Woods næði að henda boltanum yfir allan völlinn. Grindavík er því komið með 1-0 forystu og einvígið á leiðinni á Hlíðarenda á sunnudaginn. Atvik leiksins Sigurkarfa Jeremy Pargo er atvik leiksins. Tvímælalaust. Jeremy þurfti að hafa fyrir öllum stigum sínum en þegar á hólminn er komið senda svona gæðaleikmenn knöttinn í gegnum gjörðina. Stjörnur og skúrkar Deandre Kane var frábær í kvöld. Hann skilaði 30 stigum í hús og 28 framlagsstigum. Hann hitti úr fyrsta þristinum sínum í kvöld en klikkaði á næstu fimm. Hann setti sex þrista í 12 tilraunum og dró sína menn áfram. Jeremy Pargo var síðan hetjan en hann skilaði 17 stigum í hús ásamt sigurkörfunni. Jordan Semple var svo frábær í seinni hálfleik en hann skoraði 16 stig í heild en 14 þeirra komu í seinni hálfleik. Hjá Val var það Keyshawn Woods sem skoraði mest eða 24 stig. Kristófer Acox skoraði síðan 12 stig og tók 13 fráköst. Stemmning og umgjörð Ég bjóst við betri mætingu verð ég að segja en stemmningin var frábær. Grindvíkingar þögnuðu oft þegar útlitið var svart en tóku við sér og öskruðu sína menn áfram. Dómararnir Sigmundur, Bjarki og Eggert voru ekki í sviðsljósinu og þannig á það að vera. Það er að sjálfsögðu fullt leyft en það var hjá báðum. Líka lítið farið í skjáinn. Finnur Freyr: Gerðum of mikið af mistökum varnarlega Þjálfari Vals var að vonum súr með niðurstöðuna í leiknum í kvöld. Finnur Freyr Stefánsson var til viðtals við Andra Má Eggertsson eftir leik. Valsmenn leiddu leikinn í 38 mínútur ca. en hvað gerðist sem varð til þess að leikurinn tapaðist? „Bara frábær karfa far Jeremy Pargo og við klikkuðum hinum megin. Þrátt fyrir að vera yfir lungað úr leiknum þá vorum við ekki góðir og sérstaklega ekki varnarlega. Gerðum mikið af mistökum varnarlega. Grindvíkingar náðu bara að refsa okkur á réttum augnablikum.“ Hvað var að ganga vel í fyrsta leikhluta sem gerði það að verkum að Grindavík skoraði ekki nema 11 stig í fyrsta leikhlutanum? „Við vorum bara að gera góða hluti þar og halda Pargo vel niðri. Semple fékk til dæmis mjög fá tækifæri. En svo í seinni hálfleik vorum við bara slakir.“ Hvað var það helsta sem breyttist í seinni hálfleik? „Þeir bara komu með orku og við duttum niður. Við misstum einbeitingu á mikilvægum augnablikum.“ Valur fékk tækifæri til þess að komast aftur yfir á loka andartökunum. Grindvíkingar gerðu vel og nýttu villurnar sem þeir áttu inni til að trufla Woods. Hvernig fannst Finni þeir spila út úr þessu? „Vel, Keyshawn fær mjög gott skot sem dansar af hringnum. Hann kemst á stað sem honum líður vel á og klikkar skotinum. Hann gerði það vel.“ Lazar Nikolic sneri á sér ökklann í fyrri hálfleik og spilaði ekkert eftir fyrstu innkomuna hans. Frank Booker lenti líka í meiðslum og svo stífnaði Kristófer Acox líka upp. Er það að hafa áhrif að Valur var í oddaleik fyrir nokkrum dögum síðan? „Ég veit það ekki. Kannski. Snúinn ökkli er tilfallandi eins og með Booker. Stundum gerist mikið af þessu og stundum lítið.“ Jóhann: Ótrúlegt hvað við vorum slakir Þjálfari Grindvíkinga var sáttar, að sjálfsögðu, en kollegi sinn eftir frábæran sigur á Val í kvöld. Jóhann Ólafsson mætti í viðtal hjá Andra Má Eggertssyni. Hvað varð til þess að Grindavík náði að snúa þessum leik við? „Leikurinn opnaðist í seinni hálfleik en það hentar okkur betur. Við vorum að skora mikið í snöggum sóknum og náðum að ráðast á þá á fyrsta tempói og fengum mikið af körfum þar. Svo er þetta bara stál í stál. Það er ekkert eitt sem kemur okkur af stað. Flatneskjan í fyrri hálfleik er eitthvað, ótrúlegt hvað við vorum slakir. Svo gíruðum við þetta upp og fengum auðveldar körfur. Þetta var stál í stál og sem betur fer vorum við réttum megin við strikið. Við vorum yfir í ca. tvær mínútur en það telur ekkert.“ Hvað var að gerast í fyrri hálfleik? Grindavík t.d. skoraði bara 11 stig í fyrsta leikhluta. „Valsararnir komu okkur dálítið á óvart. Þeir komu fram við okkur eins og við værum lélegustu skotmenn Evrópu. Þeir gefa Kane 1,5 meter og við hittum mjög illa. Vorum 2/20 í fyrri hálfleik og svo bara einhvern veginn fórum við af stað. Þeir lokuðu teignum vel og komu okkur á óvart og gerðu bara vel.“ Fannst Jóhanni þeir ná upp sjálfstrausti í lok fyrri hálfleiks þar sem þeir skoruðu síðustu átta stigin? „Já, það hjálpaði klárlega en heilt yfir var fyrri hálfleikurinn bara slakur. Það situr í manni en það eru ljósir punktar eins og hvernig við gefum í í lok hálfleiksins. Lagar stöðuna. Rosalegt að við vorum bara 10 stigum undir eftir svona slakan hálfleik. Við tökum sigurinn bara og fullt af hlutum sem við getum lagað. Serían er bara rétt að byrja.“ Hvernig fannst Jóhanni lokasekúndan vera. Pargo skorar sigurkörfuna og brutu síða en Grindavík átti nokkrar villur til að gefa. „Við nýttum þetta bara vel. Pargo var með Óla opin sem var ekki búinn hitta neitt allan leikinn þannig að hann nýtti hann ekki. Hann er bara hokinn af reynslu og hefur gert þetta allt saman áður. Við komum þeim úr takt en Woods fær tækifæri sem var sem betur fer stöngin út og við réttum megin við línuna.“ Bónus-deild karla UMF Grindavík Valur
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti