Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Aron Guðmundsson skrifar 17. apríl 2026 07:33 Ægir Þór óttaðist að körfuboltaferlinum væri lokið en nú stefnir hann á að koma sterkari til baka. Vísir/Bjarni Ægir Þór Steinarsson, lykilmaður í liði Stjörnunnar og landsliðsfyrirliði í körfubolta óttaðist að sínum ferli væri lokið eftir að hann meiddist í leik gegn KR í úrslitakeppni Bónus deildarinnar. Úr myrkrinu hefur hann nú risið og ætlar sér að koma sterkari til baka.
Ægir fór sárkvalinn af velli í leiknum gegn KR fyrr í vikunni og var ljóst að eitthvað alvarleg hafði gerst. Hann var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús og seinna kom í ljós að Ægir hafði olnbogabrotnað en án síns leiðtoga stigu Stjörnumenn upp og unnu leikinn, sem var tvíframlengdur, og tryggðu sér sæti í undanúrslitum. „Upp á spítala var ég bara mjög lyfjaður og eðlilega mjög glaður með að við skyldum ná að sigra þetta,“ segir Ægir í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Stoltur af strákunum fyrir að hafa náð að kreista þetta fram. Sýnir kannski að þegar það er smá mótlæti þá getur það þjappað mönnum saman. Það var mikil gleði. Svo kannski sest maður smá í tilfinningarnar. Að meiðast. Geta ekki tekið meira þátt. Þá verður maður sorgmæddur. Núna er það að rífa sig upp úr því og takast á við næsta verkefni.“ Gerði sér von um snögga endurkomu Nákvæma tímasetningu er varðar endurkomu Ægis er erfitt að koma með en hann er sjálfur brattur. „Þetta geta verið þrír mánuðir, plús eða mínus. Ég veit það vel að ég er í mjög góðum höndum. Sérstaklega innan Stjörnunnar. Ég er með svo mörg álit, marga menn sem eru mjög færir í því sem þeir gera. Ég er mjög vongóður um að ná góðu bataferli.“ Áfallið við það lenda í þessu og meiðast stórt því úrslitakeppninn er nú í fullum gangi. Annað smávægilegra áfall, þegar að Ægir var farinn að fá smá von um snögga endurkomu, kom síðan skömmu seinna. „Ég fór í myndatöku til að sjá hver staðan væri á olnboganum. Þá hafði hann farið úr lið og spurning hvort hann væri brotinn líka. Það reyndist rétt. Ég er bara svæfður og þeir setja olnbogann í lið. Það er tekin mynd og honum og sést þá að hann er brotinn líka. Ég var mjög vongóður um einhvers konar endurkomu þegar að ég vissi að hann væri úr lið en svo þegar ég heyrði af því að hann væri brotinn þá fór sú von að það væri einhver endurkoma fljótlega.“ Vonbrigði eftir krefjandi tímabil Svekkelsið mikið. „Ég held að þetta tímabil hafi líka verið dálítið þannig hjá mér. Það var krefjandi líkamlega. Síðustu ár hafa verið krefjandi líkamlega fyrir mig en ég hef alltaf komist í gegnum það. Spilað í gegnum lítilsháttar eymsli. Þetta setti svona punktinn yfir i-ið. Það er búinn að fara mikill kraftur og orka í að halda sér gangandi. Það voru vonbrigði að geta ekki verið með strákunum og spilað með þeim af því að það er mikill kraftur sem fer í það. Ég mun taka að mér nýtt verkefni innan liðsins. Ég er bara mjög spenntur fyrir því, er búinn að tala við strákana og við erum strax farnir að huga að næstu seríu.“ Óttaðistu um ferilinn? „Já vissulega. Ég ætla ekkert að ljúga því. Í þessu ferli, það eru búnir að líða tveir dagar núna. Þá getur maður lagst það djúpt að maður sé nánast bara hættur í körfubolta. Auðvitað getur maður gert það. En það eru bara einhverjar aðrir raddir að segja það inn í hausnum á mér.“ Ægir Þór var sárþjáður Vísir/Anton „Ég er það vongóður, í það góðum höndum, að ég trúi því að ég komi sterkari og betri inn á völlinn þegar líður á. Þetta eru alltaf bara einhver smá skilaboð, einhver svona atvik. Ég á bara að fara í gegnum þetta. Þetta er ekkert flókið ferli. Ég er búinn að rísa upp úr þessu myrkri sem ég var í. Að það væru einhver endalok að olnbogabrotna. Það verður bara upp og áfram. Mér líður vel í líkamanum. Þetta verður alltaf meira og meira krefjandi er varðar endurheimt. En mér líður vel, þetta eru ekki alvarleg meiðsli, miðað við hvað hefði geta gerst. Ég er ofboðslega vongóður og finnst enn þá gaman í körfubolta.“ Pressan á Tindastól Stór skörð hafa verið hoggin í lið ríkjandi Íslandsmeistara Stjörnunnar því auk Ægis er landsliðsmaðurinn Orri Gunnarsson frá vegna krossbandsslita. Stjarnan mætir Tindastól í undanúrslitaeinvígi og er mat margra að þar eigi Garðbæingar ekki séns án tveggja af sínum bestu leikmönnum. Ægir hefur mikla trú á sínum mönnum. Bakvarðateymi Stjörnunnar, Hilmar Smári og Ægir Þór Steinarsson. Þeir tryggðu Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli Tindastóls á síðasta tímabiliVísir/Hulda Margrét „Heldur betur. Við vorum að fara í gegnum KR-ingana. Strákarnir þjöppuðu sér heldur betur saman til að klára þá seríu og við kláruðu seríu þar sem KR-ingarnir voru ákveðnir favourites. Við tölum líka alveg hreina íslensku með það að ef það myndi vanta Basile eða Taiwo Badmus í lið Tindastóls þá ætti Stjarnan að vinna þá. Ægir og Orri eru ekki með Stjörnunni og Stólarnir eiga að vinna þessa seríu. Pressan er á þeim. Það væri skandall ef þeir vinna ekki þessa seríu.“
Bónus-deild karla Stjarnan Landslið karla í körfubolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Sjá meira