Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Arnar Skúli Atlason skrifar 21. apríl 2026 21:08 Íslandsmeistarar Stjörnunnar eru komnir í 1-0. Vísir/Diego Íslandsmeistarar Stjörnunnar eiga frábærar minningar úr Síkinu á Sauðárkróki og bættu í safnið í kvöld með mögnuðum sigri gegn Tindastóli, 96-95, í fyrsta leik undanúrslita Bónus-deildar karla í körfubolta. Stjarnan fór inn í þetta einvígi án landsliðsmannanna Ægis Þórs Steinarssonar og Orra Gunnarssonar, sem báðir hafa helst úr lestinni vegna meiðsla, en sýndu í kvöld að þeir eru áfram staðráðnir í að verja titilinn sinn. Það voru strákarnir í Tindastól sem byrjuðu betur í kvöld og röðuðu stigum á lið gestanna. Fljótlega voru Stólarnir komnir með ágætis forystu. Dedrick Basile var að valda Stjörnumönnum miklum vandræðum og áttu þeir erfitt með að halda aftur að honum. Um miðjan fjórðunginn vöknuðu gestirnir og fóru að ná stoppum og auðveldum körfum. Seth LeDay var frábær í kvöld og Stólarnir voru í allskonar veseni að hægja á honum og hann fékk hjálp frá Pablo Bertone. Tindastóll hélt samt út fjórðunginn og leiddi að honum loknum, 27-25. Stjarnan hélt áfram að herða vörnina í öðrum leikhluta og Tindastóll átti svakalega erfitt með að opna vörnina en hinu megin míglak hjá Stólunum og Stjarnan komst í góða forystu og leiddi með 9 stigum. Þegar tvær mínútur lifðu fyrri hálfleiksins tók Tindastóll ágætis sprett og náði muninum niður í 4 stig áður en hálfleikurinn var úti og gestirnir leiddu 44-48 í hálfleik. Tindastóll byrjaði betur seinni hálfleikinn og komst yfir strax í upphafi leikhlutans. Arnar Björnson var að setja stemningsskotin sín en það var jafn mikið áfall þegar hann fékk sína fjórðu villu. Við þetta kom góður kafli hjá Stjörnunni og þeir komu tilbaka og komust aftur yfir. Giannis Agravanis fyrrverandi leikmaður Tindastóls var frábær á þessum kafla og áttu heimamenn erfitt með að stoppa hann. Stjarnan leiddi fyrir lokaleikhlutann með einu stigi en staðan var 68-69, og var kominn talsverður hiti í menn eins og sást þegar þeim Seth LeDay og Arnari Guðjónssyni lenti saman. Stjarnan hóf fjórða leikhlutann miklu betur og kom muninum strax upp í 7 stig. Tindastóll kom sér aftur inn í þetta með hjálp Basile sem setti stór skot til að halda Tindastól á lífi. Stjarnan reif sig aftur frá Tindastól þegar 3 mínútur voru eftir og það leit út eins og gestirnir ætluðu að hlaupa með þetta heim. Tindastóll, með einhverjum ótrúlegum hætti, kom sér inn í þetta og var yfir með einu stigi þegar Stjarnan fór í sókn, þegar 8,2 sekúndur voru eftir. Seth LeDay fékk boltann og keyrði á körfuna og brotið var á honum og hann fékk 2 vítaskot. Hann kórónaði leik sinn með að skora úr báðum vítunum og Tindastóll gat ekki svarað og þar með sigldi Stjarnan þessu heim en lokatölurnar voru 95-96. Stjarnan fer með risastóran sigur heim í Garðabæinn og 1-0 forystu í einvíginu. Næsti leikur er á laugardaginn 25 apríl og miðað við þennan leik verður þetta rosalegt einvígi. Atvik leiksins Vítin tvö sem Seth LeDay setti ofaní fyrir sigrinum voru rosaleg. Hann vann leikinn og kórónaði frammistöðu sína með því að sigla þessu yfir línuna. Stjörnur Hjá Tindastól var Dedrick Basile frábær með 27 stig og 6 fráköst og 6 stoðsendingar, Arnar var með 17 stig og Badmus með 16 stig. Hjá Stjörnunni var Seth LeDay geggjaður með 27 stig og 15 fráköst. Pablo og Luka sitthvor 16 stigin og Giannis 14 stig og 8 stoðsendingar. Dómararnir Mjög erfiður leikur að dæma og oft á tíðum slepptu þeir bara að dæma en dæmdu svo á lítið atriði nokkrum andartökum seinna. Hafa átt betri dag og það er svigrúm til bætingar. Stemningin og umgjörð Það var geggjuð stemning í kvöld og þú fannst hvað það var mikið undir í kvöld. Áhorfendur frábærir og gæslan í toppmálum hjá Stólunum. Frábært að undanúrslitin eru byrjuð. Viðtöl Seth LeDay leikmaður Stjörnunnar var sáttur með sigurinn og sagði að lykilinn væri að hlusta á það sem Baldur Ragnarsson væri að predika fyrir mönnum. „Við hlustuðum bara á þjálfarann. Við erum með besta þjálfarann í deildinni. Við treystum honum. Það eru allir að tala og tala en við hlustum bara á þjálfarann okkar. Þrátt fyrir meiðsli þá höldum við áfram að berjast og það er það sem við gerum.“ Hvernig leið þér þegar þú varst að taka þessi víti þegar það var lítið eftir ? „Sama gerðist í KR leiknum. Ég tók mér bara tíma og setti vítin ofaní. Ég hef hef unnið að þessu og treysti á mig og setti þetta ofaní.“ Hvernig fannst þér biðin sem dómararnir sköpuðu með að fara í skjáinn tvisvar sinnum á meðan þú beiðst eftir að taka vítin ? „Það var eiginlega betra því það gaf mér tíma að slaka á. Ég setti bæði ofaní og við unnum. Núna þurfum við bara 2 sigra í viðbót.“ Hvernig líður þér að hafa unnið hérna í kvöld ? „Það er gott að vera kominn yfir í einvíginu. Við komum hingað og unnum. Núna er það bara að fara aftur heim og vinna þar.“ Baldur þór ragnarsson, þjálfari Stjörnunar var ánægður með sigur sinna manna í kvöld en ítrekaði að þeir þyrftu að halda sér á jörðinni fyrir næsta leik. Þið vinnið eins stigs sigur í kvöld í leik þar sem var búið að mála ykkur sem undirhund í þessu einvígi en þið neituðuð að hlusta á það ? „Við erum með frábæra leikmenn. Við spiluðum góðan leik í dag. Varnarleikurinn þéttur hjá okkur meirihlutan á leiknum. Fókusinn sérstaklega góður og við þurfum að halda því við þurufm ða hitta á okkar bestu leiki til að vinna þá. “ Þið voruð yfir í hálfleik hvernig fannst þér þetta í fyrri hálfleik, Stólarnir voru að rúlla á mörgum en þið í skertri róteringu? „Þetta verður svona í þessari seríu. Þeir eru með 10 leikmenn jafnvel 11 verð að gefa Viðari Ágústssyni það að hann getur spilað á þessu leveli. Það er eins og það er. Ef ég væri Arnar hinum meginn væri ég að rótera líka. Ég er í annarri stöðu Bjarni og Viktor eru að koma inn af bekknum og voru að koma með frábærar mínútur. Við þurfum það besta frá öllum til að geta unnið. Það gekk í dag og áfram með lífið.“ Seth LeDay fékk tæknivillu fyrir að hanga í hringnum í því augnabliki sem þið voruð að ströggla, hvað fannst þér um það ? „Hann þarf að sleppa upphífingunni. Ég held að hann hafi verið með leikmann undir sér en það er ákveðið show í honum það er bara týpan. Ég fíla þetta ekki ef ég á segja þér alveg eins og er.“ Stólarnir komu vel út í seinni hálfleik og tóku 7-0 kafla, hvernig fannst þér þið koma út úr hálfleiknum ? „Við komu ekki nægilega vel fyrst þeir áttu 7-0 kafla. Þeir eru frábærir og skora í búnkum þegar þeir eru í gangi. Þú mátt ekki missa einbeitingu af þeim í eina sekúndu þá er þetta done deal.“ Hvað fannst þér þínir menn spila þegar allt var undir í blálokinn og liðin að skiptast á körfum ? „Vorum að keppa til að vinna bæði lið til að vinna. Þetta datt okkar meginn það þannig sem þetta var.“ Hvernig verður að halda þínum mönnum niður á jörðinni eftir þennan sigur hérna í kvöld? „Menn verða að vera niðri á jörðinni því ef þú ferð eitthvað upp tapar þú næsta leik. Það er sagan í þessu. Menn geta ekki verið stórir í einu eða neinu enda má ekket útaf bregða hjá okkur því þá eigum við ekki séns að vinna. Það þurfa allir sem eru í Stjörnubúning, þjálfarateymi, sjúkraþjálfara, þeir sem eru stuðningsmenn Stjörnunnar þurfa að gera allt sitt besta og þá getum við náð í sigra.“ Bónus-deild karla Tindastóll Stjarnan