Andlát Björgvins Halldórssonar

Fréttamynd

Bubbi komst ekki í jarðar­för Bjögga

„Ég veit það bara að Ari getur ekki brugðist mér. Það er bara svo­leiðis,“ segir Bubbi Morthens sem gat ekki verið viðstaddur jarðarför Björg­vins Halldórs­sonar en segja má að með sí­gildri eftir­hermu hafi Ari Eldjárn farið nærri því að fylla skarð hans.

Lífið
Fréttamynd

Bó kvaddur í hinsta sinn

Forseti Íslands, ráðherrar, tónlistarmenn og aðstandendur voru viðstaddir útför Björgvins Halldórssonar, eins ástsælasta tónlistarmanns þjóðarinnar, í Hallgrímskirkju í dag. 

Innlent
Fréttamynd

Út­för Björg­vins Hall­dórs­sonar

Útför Björgvins Halldórssonar fer fram í dag og verður gerð frá Hallgrímskirkju. Séra Guðni Már Harðarson jarðsyngur en athöfnin er opin almenningi auk þess sem hægt verður að fylgjast með henni í beinu streymi á Vísi og Sýn.

Lífið
Fréttamynd

Hlustun á Bó snaraukist

Hlustun á poppgoðsögnina Björgvin Halldórsson hefur snaraukist frá því hann lést 9. apríl síðastliðinn. Mánaðarleg hlustun á Björgvin á Spotify hefur frá síðasta mánuði aukist um tæp fjörutíu prósent og á Youtube hefur áhorfið aukist um rúm 400 prósent. Íslenskar sjónvarpsveitur hafa sömuleiðis grafið upp og gert aðgengilega ýmsa gullmola með Björgvini gegnum tíðina.

Tónlist
Fréttamynd

Út­för Björg­vins opin al­menningi

Útför tónlistarmannsins Björgvins Halldórssonar verður opin almenningi og fer hún fram frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 28. apríl klukkan 15. Björgvin lést þann 9. apríl og hefði orðið 75 ára í dag.

Lífið
Fréttamynd

Hafn­firðingar vinna að sýningu um Bó

Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti í dag að hefja undirbúning að sýningu um ævi og feril Björgvins Halldórssonar, eins dáðasta sonar Hafnarfjarðar. Bærinn vill með sýningunni heiðra minningu manns sem markaði djúp spor í íslensku menningarlífi og átti einstakt samband við Hafnfirðinga.

Menning
Fréttamynd

Krummi kveður pabba sinn

Tónlistarmaðurinn Krummi Björgvinsson minnist föður síns goðsagnarinnar Björgvins Halldórssonar í einlægum texta í tilefni þess að í dag hefði hann orðið 75 ára. Krummi segist kveðja með brotið hjarta sem þó sé fullt þakklætis og fullt af minningum, ást og arfleifð sem lifi áfram í Krumma. Hann segir föður sinn á síðustu árum hafa átt erfitt vegna heilsu og það hafi haft mikil áhrif.

Lífið
Fréttamynd

Sjarmatröllið sem setti popp­tón­list í önd­vegi

„Maður er mjög sorgmæddur en síðan fyllist maður einhverjum yl og gleði þegar maður sér þessi myndskeið sem sýna hvað hann gerði mikið fyrir íslenskt tónlistarlíf. Hann setti popptónlist í öndvegi og sinnti henni af mikilli elju alla tíð. Það er eitthvað sem við Íslendingar fílum.“

Lífið
Fréttamynd

Halla gerir undan­tekningu vegna andlátsins

Halla Tómasdóttir forseti Íslands deilir mjög sjaldan færslum á sinni persónulegu Facebook-síðu. Í dag gerði hún hins vegar undantekningu á því er hún skrifaði fallega færslu þar sem hún minnist Björgvins Halldórssonar.

Lífið
Fréttamynd

Það er komið gó hjá Bó

Íslenski tónlistarbransinn, og reyndar þjóðin öll, er í áfalli eftir að fráfall Björgvins Halldórssonar spurðist út en hann varð brákvaddur í morgun tæplega 75 ára gamall. Samfélagsmiðlar eru að fyllast af kveðjum til fjölskyldu og vina en fólk lýsir yfir harmi miklum nú þegar gó er komið frá sjálfum Bó.

Lífið
Fréttamynd

Svala minnist pabba síns

Svala Björgvins, dóttir Björgvins Halldórssonar, minnist föður síns í fallegri færslu sem hún birti á Facebook í dag. Björgvin var bráðkvaddur að heimili sínu nú í morgun, 9. apríl, en hann var 74 ára gamall.

Lífið
Fréttamynd

Björg­vin Hall­dórs­son látinn

Björgvin Halldórsson söngvari er látinn. Hann fæddist 16. apríl 1951 og var því hartnær 75 ára gamall þegar hann andaðist. Hann varð bráðkvaddur að heimili sínu nú í morgun, 9. apríl.

Innlent