Óveður 26. mars 2026

Fréttamynd

Ó­þarfi að fella niður allt skóla­hald

Ég er kennari í Reykjavík. Kenni unglingum sem ljúka grunnskóla í vor. Sultuslakur eftir að hafa í rólegheitum drukkið kaffi með konunni í morgun – því ekki fór ég í vinnuna enda engir nemendur sem biðu mín.

Skoðun
Fréttamynd

Barn­laus leik­skóli

Sigrún Grétarsdóttir, leikskólastjóri í Hólaborg í Breiðholti í Reykjavík, var mætt til vinnu snemma í morgun en lágmarksopnun var í öllum leikskólum borgarinnar og mælst var til þess að fólk kæmi ekki með börnin nema nauðsyn væri.

Innlent
Fréttamynd

Strætó hættir akstri í dag

Strætó hefur stöðvað allan akstur strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu vegna erfiðrar færðar og veðurskilyrða. Vagnar voru fastir víða og einhverjar leiðir hættar áður vegna erfiðrar færðar. 

Innlent
Fréttamynd

Vetrarþjónusta í gangi og fer á fullt um há­degi

Hjalti J. Guðmundsson, skrifstofustjóri reksturs og umhirðu hjá Reykjavíkurborg, segir vel ganga að halda helstu stofnleiðum auðum. Vetrarþjónusta fari á fullt um hádegisbil svo helstu stofnæðar, fyrir bíla, gangandi og hjól, verði greiðar þegar umferð hefst að nýju þegar viðvörun rennur úr gildi um 13.

Innlent
Fréttamynd

Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður

Sorphirða fór fram í Reykjavík í morgun í ákveðnum hverfum og í Kópavogi samkvæmt ábendingum. Fréttastofa hefur fengið nokkrar ábendingar frá lesendum sem furða sig á því að sorphirðufólk hafi verið sent af stað þegar aðrir voru beðnir að vera heima.

Innlent
Fréttamynd

Skóla­haldi ekki af­lýst en raskanir boðaðar

Biðlað er til foreldra á höfuðborgarsvæðinu að hafa börn sín heima meðan óveður ríður yfir landshlutann. Töluvert rask verður á skólastarfi en skólar og leikskólar verða opnir til þess að framlínustarfsmenn geti sinnt störfum sínum. 

Veður
Fréttamynd

Vaktin: Þjóðin býr sig undir ill­viðri

Appelsínugul veðurviðvörun tekur gildi á suðvesturhluta landsins í fyrramálið og síðar tekur gul viðvörun gildi í öðrum landshlutum. Búist er við raski á samgöngum, skólastarfi og í atvinnulífinu vegna veðursins. 

Veður
Fréttamynd

Af­lýsa og seinka flug­ferðum

Morgunflugi Icelandair frá Keflavíkurflugvelli á morgun hefur ýmist verið aflýst eða því seinkað vegna veðurs. Komuflugi Icelandair frá Norður-Ameríku hefur verið seinkað frá morgni til hádegis og búist er við að veðrið muni hafa áhrif á innanlandsflug fyrri partinn.

Innlent
Fréttamynd

Auka við­búnað í Grinda­vík vegna veðurs

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, í samráði með Almannavörnum, varar við vondu veðri á morgun. Appelsínugular veðurviðvaranir verða í gildi fyrripart dags. Viðbúnaður verður aukinn sérstaklega í Grindavík.

Innlent
Fréttamynd

Taka á­kvörðun um skóla­hald síð­degis

Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins fundar klukkan 17 með sviðsstjórum fræðslusviða höfuðborgarsvæðisins og tekur ákvörðun um skólahald á morgun. Þegar börn eiga að mæta til skóla á morgun verður appelsínugul viðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu. 

Innlent
Fréttamynd

„Um­ferðin kemur til með að hægja veru­lega á sér“

Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu í fyrramálið vegna suðaustan storms og stórhríðar. Skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg býst við að verulega hægist á umferð og segir að viðbragðsáætlun vegna veðursins hafi verið virkjuð.

Innlent
Fréttamynd

Spá nú enn verra veðri á fimmtu­dag

Í morgun gaf Veðurstofa Íslands út gula veðurviðvörun fyrir landið allt á fimmtudaginn vegna suðaustan hríðarbyls. Viðvörunin tekur gildi klukkan fimm að morgni fimmtudags og gildir til klukkan 18 sama dag. Viðvörunin hefur nú verið uppfærð þar sem útlit er fyrir enn verra veður.

Veður
Fréttamynd

Gefa út gula við­vörun fyrir allt landið

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir landið allt á fimmtudaginn vegna suðaustan hríðarbyls sem von er á. Viðvörunin tekur gildi klukkan fimm að morgni fimmtudags og gildir til klukkan 18 sama dag.

Veður